Dagur - Tíminn Akureyri - 25.01.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 25.01.1997, Blaðsíða 2
14- Laugardagur 25 janúar 1997 Fyrir smáfólkið Nú er helgarfríið runnið upp og all- ir krakkar spenntir að taka sér sitthvað skemmtilegt fyrir hendur með pabba og mömmu, tU dæmis að fara í labbitúr út í náttúruna eða sækja listviðburði... Hér koma nokkrar góðar ábendingar. Tröll í leikhúsi Á sunnudaginn heimsækir Sögusvuntan, brúðuleikhús Hallveigar Thorlacius, Möguleikhúsið með ferðasýninguna Minnsta TRÖLL í heimi. Sýningin stend- ur í 40 mínútur og er fyrir krakka á aldrinum tveggja til átta, foreldra þeirra, afa, ömmur, frænkur og frændur. Minnsta tröll í heimi fjallar um agnar- litla tröllastelpu og seinheppin músa- strák, sem heitir Leifur heppni. Þau lenda í miklum vandræðum sem áhorf- endur hjálpa þeim að leysa. Hampus og eggið Brúðuleikhúsið Hampus og eggið frá Sví- þjóð verður með litríkar og fjörlegar brúður sínar í Norræna húsinu á sunnu- daginn klukkan 14. Sýningin er ætluð börnum á aldrinum þriggja til sex ára og er eftir leikskólakennara sem heitir Eva Ljungar. Eva blandar saman íslensku og sænsku í sýninguni þannig að allir geta fylgst með þó að þeir skilji ekkert í sænskunni. Aðgangur er ókeypis. n* Litli-Kláus og Stóri- /*—-* J Kláus Á sunnudaginn er tilvalið að fara með börnin í Þjóðleikhús- ið þar sem munurinn á réttu og röngu, góðu og slæmu, er prédikaður á skemmtilegan og líflegan hátt í hinu sí- gilda verki Litli-Kláus og Stóri-Kláus eft- ir H.C. Andersen. Sýningin byrjar klukk- an 14. Sjá umfjöllun á síðu 15. Latibær og Skari skrípó Magnús Scheving heldur áfram að hvetja börn til hollra lífshátta í hinu fjör- uga Ieikriti Áfram Latibær sem sýnt er í Loftkastalanum. Þegar er uppselt á fyrri sýninguna á morgun en önnur sýning verður klukkan 16 og hugsanlegt að hægt sé að næla sér í miða þá. Popp og kók Fjölbreytt efni er í kvikmyndahúsunum fyrir börnin að vanda. í Borgarbíó á Ak- ureyri verða tvær barnasýningar klukk- an 15 á morgun, Litla prinsessan og Hringjarinn frá Notredame. Eitthvað minna úrval í Reykjavík en venjulega en þó hægt að sjá Gosa í Háskólabíói eða Hringjarann frá Notradame í Sambíóun- um. Ef ekkert freistar í bíó er alltaf hægt að arka út á myndbandaleigu og ná sér í einhverja góða fjölskyldumynd sem gaman er að horfa á saman. Það getur verið notalegt að koma sér vel fyrir í sóf- anum með popp og kók (eða bara mjólk, til að hafa hollustuna á hreinu) og horfa á ljúfa mynd með börnunum. En munið, þið verðið að vera með, ekki nota mynd- ina sem barnapíu! Fjöldinn allur af unglingum á aldrin- um 13-17 ára er byrjaður að æfa undir Freestyle danskeppnina ár- legu í Tónabæ en undankeppnin á höf- uðborgarsvæðinu fer fram 7. febrúar og úrslitakeppnin 14. febrúar. Mikið annríki er í mörgum skólum en unglingarnir láta það ekki á sig fá, skipuleggja tíma sinn vel og æfa af kappi enda markið sett á sigur í flestum tilfellum. „Við erum búnar að æfa í tvær vikur en það var ekki fyrr en á laugardaginn sem dansinn var fullsaminn. Við erum búnar að mixa saman tónlistina og ákveða í hverju við ætlum að keppa,“ segja stelpurnar í danshópnum Splash en þær ætla að taka þátt í Freestyle keppninni og sýna frumsaminn dans, sem þær nefna því erlenda nafni Coupe. Þekkjast úr ballett Það eru vinkonurnar Sigrún Huld Gunn- arsdóttir, 13 ára nemi í Hagaskóla, Edda Pétursdóttir, 12 ára nemi í Álftamýrar- skóla, Gyða Bergs, 13 ára nemi í Voga- skóla og Sigríður Wikfeldt, 13 ára nemi í Garðaskóla, sem mynda Splash en þær hafa verið saman í ballett og þekkjast þaðan. Stelpurnar leggja hart að sér við æf- ingarnar og segjast æfa mest um helgar. í fyrra varð Ópus hópurinn frá Sauðárkróki í þriðja sæti en þá kepptu stelpurnar undir nafninu E-rotik. Hópinn skipa Guðrún Rut Guðmundsdóttir, íris Ösp Sveinbjörnsdóttir, Erna María Þrastardóttir, Silvía Rut Þor- steinsdóttir og Áróra Rós Ingvadóttir. „Við æfum þrisvar eða fjórum sinnum í viku og höfum mixað saman fjórum lögum sem við dönsum eftir.“ Myna. jhf Stöllurnar Sigrún Huld Gunnarsdóttir, Hagaskóla, Gyða Bergs, Vogaskóla, Sigríður Wikfeldt, Garðaskóla og aftast Edda Pétursdóttir, Alftamýrarskóla, mynda hópinn Splash. Þær eru á fullu að æfa fyrir Freestyle keppnina. Myn&. bg Þær sofa þá saman heima hjá einhverri þeirra og æfa myrkranna á milli. Þær eru ákveðnar í að æfa vel fyrir keppnina enda þekkja þær margar í hópi kepp- enda og vita að samkeppnin verður hörð. Tvær úr Splash voru með í keppni 10-13 ára í fyrra og lentu þá í öðru sæti. Undankeppni fyrir Freestyle keppnina fer fram víða um landið en í fyrra fór hún fram á átta stöðum, í Vestmannaeyj- um, á Akranesi, Sauðárkróki, Neskaup- stað, Selfossi, Akureyri, fsafirði og í Njarðvík. Úrslit í undankeppninni þurfa að vera ljós kringum 10. febrúar og verða lögin í úrslitakeppnina að hafa borist Tónabæ þá. Bæði er um einstak- lings- og hópakeppni að ræða. Haldin er danskeppni fyrir 10-12 ára í Tónabæ og fer sú keppni fram 22. febrú- ar. Ekki fer fram nein undankeppni heldur taka dansarar bara þátt í aðal- keppninni. GHS Óður til manns- sálarinnar Um helgina verður myndlistarsýningu Þórs Stiefels og Gerhard Zellers slúttað með dagskrá þar sem brædd verða saman þrjú ólík listform. „Við erum að sýna hér abstraktmyndir sém eru á vissan hátt ljóð. Ljóð geta verið tónar og tónlist getur brugðið upp myndum fyrir fólki. Við erum öll að flytja sama óðinn til mannssálarinnar en hvert með okkar stefi,“ segir Þór en hann, Gerhard, Guðni Franzson, Ari Gísli Bragason og Nína Björk Árnadóttir __________________ ætla að mætast í Nor- ræna húsinu kl. 17 á sunnudaginn „til að enda gjörningavökuna sem hefur verið allar helgar sem sýningin hefur staðið yfir. Þetta er lokadagskráin þar sem þessi listform mætast öll.“ Og hvernig mætast þessi listform? „Jú, Guðni spinnur tónlist á staðnum út frá þeim áhrifum sem hann verður fyrir frá myndunum og þau velja þau ljóð sem þeim finnst passa inn í sýninguna." lóa „Þetta eru myndir þar sem andstæðurnar form og flæði takast á. Þar sem undirmeð- vitundin ræður ríkjum og rökhugsun er lögð til hliðar." L ar: jóðin á dagskránni eru eins konar svörun við Imálverkum sýningarinn- Ekki gráta elsku barn langt í Jjarska slær það, hjartað okkar. Ari Gísli Freestyle keppnin er að byrja í Tónabæ

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.