Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Side 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Side 1
LÍFIÐ í LANDINU Þríðjudagur 18. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 33. tölublað KA liðið mátti hvíla sig í gær en síðan tekur við undirbúningur fyrir bikarleikinn við Haukana sem er á laugardaginn. Það er Inga Ragnarsdóttir, nuddari í KA heimilinu sem hér vinnur á aumum vöðvum Guðmundar Arnars Jónssonar. Mynd: GS MAÐUR VAR ÓVENJU LÍTILL Ungverska liðið Fotex Veszprém malaði handknattleiks- lið KA á laugardaginn og er mál manna að þar hafi lé- leg mar/cvarsla haft sitt að segja. Hvað klikkaði eigin- lega hjá Guðmundi Arnari Jónssyni markverði? „Maður verður auðvitað að taka á sig einhverja sök. Ég fann mig alls ekki í fyrri hálf- leik. - En hvað það nákvæmlega var sem klikkaði veit ég ekki. í stöðunni 7:7 gerðust afdrifarík mistök í sóknarleiknum og við misstum boltann og fengum á okkur tvö til þrjú hraðaupp- hlaup. Markvarslan var síðan mjög léleg.“ Hverju viltu kenna um? „Ungverjarnir voru að skjóta á allt aðra staði en í fyrri leikn- um, maður reynir alltaf að punkta niður hjá sér hvar menn hafa verið að skjóta en þeir voru allt öðruvísi úti en hérna heima.“ Hvernig upplifðirðu leikinn? „Það er náttúrulega aldrei gaman að tapa svona stórt, við erum með betra lið en þessi leikur sýndi en þeir eru líka mjög góðir enda erum við að tala um menn sem æfa tólf sinnum í viku. Maður hefði auð- vitað viljað hafa úrslitin hag- stæðari en þrátt fyrir tapið var gaman að taka þátt í þessu og stemmningin í húsinu var ólýs- anleg, áhorfendurnir voru alveg frábærir fyrir Ungverjana. Viss taugaveiklun Skotnýting Ungverjanna var lyginni líkust í fyrri hálfleik eða 18 mörk úr 21 skoti. En hvað finnst Guðmundi, hefði ekki átt að skipta honum meira út, úr því gekk svona illa? „Eftir þrettán mínútur af fyrri hálfleik fór ég út af enda ljóst að ég fann mig ekki í leikn- um, Hermann kom inn á og fékk strax mikið af hraðaupp- hlaupum og erfiðum skotum á sig og þá var ákveðið að setja mig inn á aftur. - Því miður bætti það ekki neitt. Ég náði aldrei takti í fyrri hálfleik en síðan gekk þetta nú aðeins bet- ur eftir leikhlé. Allir menn geta átt sína döpru daga en maður vonar alltaf að það gerist ekki í svona leikjum." Var undirbúningurinn sá rétti? „Það er ekkert hægt að setja út á undirbúninginn, menn voru vel stemmdir eins og sýndi sig fyrsta korterið en það er alltaf erfitt að fá á sig tvö til „Auðvitað er það dauða- dómur þegar svona gerist en maður getur lítið sagt. Það bara lak allt í gegn. “ þrjú hraðaupphlaup þegar það er svona mikil stemmning í húsinu. Þeir komust þremur mörkum yfir og þá kom, eins og alltaf, bakslag. Við vorum þarna með þrjú þúsund manns á móti okkur og menn verða taugaveiklaðir. Ég fann fyrir þessu en er í því sambandi líka að tala um sóknarleikinn sem varð óöruggur, við fórum að missa boltann fyrir klaufa- skap.“ Dauðadómur Guðmundur Arnar náði sér að- eins á strik í seinni hálfleik og varði þá sjö af þeim átta skot- um sem hann varði í leiknum öllum. Ummæli þjálfarans, Al- freðs Gíslasonar, eftir leikinn voru á þá lund að þegar mark- verðirnir verðu eitt skot í einum hálfleik væri verið að kalla yfir sig hreinan dauðadóm. „Alfreð messaði auðvitað yfir mönnum í hálfleik en síðan varð maður bara að taka sig á og breyta þessu vitandi að mað- ur gat miklu meira. Það var ör- lítil uppreisn æru að verja meira í seinni hálfleik. - En það er rosalega erfitt að lýsa því hvað klikkar, stundum finnur maður sig og stundum ekki. Það er lítið uppörvandi þegar skorað er næstum úr hverju skoti.“ Hvað finnst þér um ummœli Alfreðs? „Auðvitað er það dauðadóm- ur þegar svona gerist en maður getur lítið sagt. Það bara lak allt í gegn. Maður var óvenju lítíll í þessum leik. Voru hinir í liðinu ekkert svekktir út í þig? „Nei, nei, alla vega vil ég ekki halda það og þeir komu ekki fram við mann þaniúg. Það er ekkert svoleiðis, maður hef- ur átt dapra daga áður og þá er manni frekar klappað á bakið. Það er stutt vel við mann og það eru aldrei nein leiðindi." Stórleikur framundan Bikarúrslitaleikurinn við Hauk- ana er næst á dagskrá KA-liðs- ins og Guðmundur Arnar ætlar að standa sig betur þá? „Já, ég vona að maður verði ekki rekinn. Við skulum vona að þetta sé einstakt fyrirbæri þetta með að verja ekki nema eitt skot í fyrri hálfleik, það er mjög lélegt en maður verður að horfa fram á við.“ -mar

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.