Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 4
16- Þriðjudagur 18. febrúar 1997 Umfhíðaftauót Jlagur'®ómmt FerðamannamengtmarvarnaiTáð Hvort mengar meira; álver eða erlendir ferðamenn? Hávísinda- og ferða- mannamengunarvarnarráð Orkustofnunar hefur nú gert á þessu viðamikla rannsókn og er ekki að spyrja að niðurstöðurn- ar tala skýru máli: Ferðmenn menga, margir ferðamenn menga mikið, 110 þúsund ferðamenn menga jafn mikið og eitt álver. Bittinú! Það er ljóst að samkvæmt rannsókn Hávís- indaráðs og guðfræðideildar Orkustofnunar verður þjóðin að velja sér þá mengun sem hún helst getur sætt sig við og lík- legri er til að vera „í lágmarki" eða „viðunandi" einsog sagt er nú til dags. Öll vitum við að það eru óskaplegar sveiflur í ferða- mannaiðnaðinum. Eitt rigning- arsumar getur eyðilagt tekjur af ferðamönnum um mörg ókomin ár. Það er ekkert stabí- litet í þessum bransa. Nú svo á hinn bóginn getur ferðamanna- straumurinn aukist án fyrir- vara, kannski um nokkur þús- und eða tugþúsundir eiturspú- andi útlendinga per ár, sem munu þá skilja eftir sig sviðna jörð og móðuharðindi hin síðari verða snögglega staðreynd. Er ekki miklu einfaldara, hag- kvæmara, já og öruggara að hafa bara eitt stabflt og traust álver sem mengar viðunandi sinn fasta kvóta ár eftir ár? Hvort er líka fallegra og á betur við í íslensku landslagi: skræp- óttir hópar eiturspúandi útlend- inga af öllum þjóðernum á tvist og bast um okkar hreinu nátt- úru, eða álver sem situr kyrrt á sínum stað málað í felulitunum einsog járnblendiverksmiðjan og eitrar bara pínu pons, þ.e.a.s. viðunandi? Ég held að þetta sé engin spurning. Niður- stöður Hávísinda- og náttúru- verndarráðs Orkustofnunar gefa skýr skilaboð. Við verðum að hætta þessum ferðamanna- innflutningi. Við getum bara ekki tekið þessa áhættu lengur, það er ljóst. Gróðurhúsaáhrifin munu ríða okkur að fullu og innan tíðar verðum við farin að berj- ast við risat- ómata og og sjö metra gúrkur uppá hálendinu, þ.e.a.s. þau okkar sem munu lifa eyð- inguna af. Kannski hef ég misskilið nið- urstöður Há- vísindaráðs Orkustofnunar, þó mér finnist það ótrúlegt, enda eru þær svo ljósar að þær verða tæplega misskildar. En meining þeirra gæti þó einnig verið sú að þar sem 110 þúsund ferða- menn menga einsog eitt álver, hversvegna er þá ekki allt í lagi að hafa þetta álver? Nei ég get ekki trúað því að þeir hafi verið að meina það. Ég hlýt að álykta sem svo að Hávísindaráð og mannræktardeild Orkustofnun- ar axli þá ábyrgð að kasta ekki svona niðurstöðum í andlit þjóðarinnar til þess eins að rugla okkur í ríminu. Ég hlýt að hafa skilið þá rétt. Meiningin hlýtin- að vera sú að þar sem ferðamenn menga svo mikið sem raun ber vitni þá getur nátt- úra landsins ekki borið tvö- földun á því mengunar- magni frá einu álveri til við- bótar. Það er þetta sem nið- urstöður rann- sóknar Hávís- indaráðs og menningar- málanefndar Orkustofnunar er að segja okkur: Bygging nýs ál- vers er algjört feigðarflan fyrir land og þjóð. Getur verið að ég sé að misskilja þetta? Er ef til vill möguleiki á því að Hávís- inda- og barnaverndarráð Orkustofnunar hafi í raun verið að meina að þar sem eitt álver mengar jafnmikið og 110 þús- und ferðamenn þá muni ferða- menn deyja umvörpum vegna mengunarinnar? Þar sem ál- Gróðurhúsaáhrifin munu ríða okkur að fullu og innan tíðar verðum viðfarin að berjast við risatóm- ata og sjö metra gúrkur uppá hálend- inu, þ.e.a.s. þau okk- ar sem munu lifa eyðinguna af. MBR ÞYK/R KOLSK/ ORÐ/NM KJARKAÐUR! B0C6/ verksmiðja sé ekki lífræn í eðli sínu þá mun hún ekki bera skaða af mengun ferðamann- anna heldur öfugt? Munu björgunarsveitir í asbestgöllum þurfa að hreinsa hálendið á sumrum komandi af hræjum ferðamanna sem hafa kafnað í óskráðum eiturefnasambönd- um? Eða munu ferðamenn framtíðarinnar ef til vill verða myrtir af riastómötunum og sjö metra gúrkunum sem spretta munu upp á hálendinu í kjölfar gróðurhúsaáhrifa? Það kæmi þá vel á vondan. Bölvaðir er- lendu ferðamennirnir sem með eiturspúandi mengunarút- blæstri sínum urðu til þess að ísland varð hitabelti; látum risatómatana kremja þá. Látum sjö metra gúrkurnar berja úr þeim líftóruna, já sendum hel- vítin í rútuvís uppá hálendið þar sem fjórtán tonna Hvera- gerðisbananar mala þá mélinu smærra. Og þegar svo er komið þá getum við líka átt von á því að verða farsæl og lifa lengi í landinu, þar sem við höfum bara þetta eina viðbótar álver sem mengar viðunandi og er þar að auki kyrrt á sínum stað og málað í felulitum í þokkabót. Þá verðum við líka millar eins og frændur okkar Norðmenn á því að flytja út risatómata og sjö metra agúrkur. Já og hver mun þá hlæja þegar sagt verð- ur að ísland sé stærsta banana- lýðveldi í heimi? Enginn. Hávís- indaráði og lýðræðisbandalagi Orkustofnunar sé þökk fyrir að benda á þá hættu sem fylgir er- lendum ferðamönnum. Eða - misskildi ég þetta vitlaust? Raðgreiðslu- þjóðfélagið Ferðaskrifstofurnar voru að kynna sólarlandatil- boð sín mn helgina og svo var að heyra að menn væru almennt bjartsýnir á mikla íjölgun ferða. Þjóðin er að rífa sig upp úr niður- sveiflunni og horfir nú fram- an í góðærið, sem þó er ekki augljósara en svo að BSBB tel- ur sig þurfa að auglýsa eftir því í blöðum og á lósvakanum. BSRB vill fá góð- æri handa öllum og út á það ganga auglýs- ingarnar. Og BSRB hefur ver- ið bænheyrt með sínum sérstaka hætti. Auð- vitað er það aðeins fámenn- ur hópur fólks sem virkilega fær að bergja á bikar góðær- isins og sá hópur hefur feng- ið nægju sína og vel það. En góðærið er líka að koma til allra hinna litlu launamann- anna líka. Góðæri launa- mannnsins kemur að vísu ekki í formi hærri launa, heldur í formi greiðsludreif- ingar. Nú hafa launamenn verið frelsaðir imdan átt- hagafjörtum fátæktarinnar með því að þeir geta í fyrsta sinn keypt sér sólarlanda- ferðir á raðgreiðslum til þriggja ára. Það eru augljóst að jafnræði og jafnrétti í landinu er að aukast veru- lega með tilkomu greiðslu- dreifingarinnar sem er hinn frelsandi andi nútímans. Láglaunastéttir í sól Meira að segja láglaunastétt- ir geta nú komist í sólina í útlöndum á þriggja ára fresti og tekið þátt í almennum samræðum við hina sem vita ekki aura sinna tal, um hótelaðstöðu og þjónustu á hinum aðskiljanlegustu stöð- um úti í heimi. Og það er ekki nóg með að góðærið banki upp á hjá láglauna- fólki í formi greiðsludreifing- ar ferðaskrifstofa, heldur kemur þetta í kjölfar þess að greiðsludreifing hefrn rutt sér til rúms í búsáhalda- verslunum og hljómtækja- og húsganga- búðum. Lág- launastéttirnar geta keypt sín leðursófasett, sjónvörp, steríó- græur, ískápa og uppþvottavélar án þess að eiga fyrir því. Kaupin eru einfaldlega gerð á rað- greiðslum og þá er allt í lagi. Og ekk má gleyma hinum nýja mögu- leika láglaunamannsins til að þykjast vera ríkur. Fislétt ijármögnun á flottum nýjum bfl. Allt á raðgreiðslum og það er einfaldlega enginn munur á þeim lægst launaða og burgeisunum sem eiga milljónatugi á bankabók og bréfum hvers konar. Menningarleg sérstaða Þannig hefur greiðsludreif- ingin bjargað menningar- legri sérstöðu landsins þar sem allir eru nánast jafnir og stéttaskipting þekkist ekki. Greiðsludreiflngin er góðæri launamannsins og bjargvættur láglaunamanns- ins, svarið við ákalli BSRB um góðæri handa öllum. Eini gallinn við þetta allt er sá að þrátt fyrir greiðsludreifmg- una þarf víst að borga skuld- irnar og það virðist ganga dálítið illa sem eðlilegt er þegar tekjurnar eru litlar. En slíkt eru bara smámunir miðað við alla möguleikana og skemmtilegheitin sem greiðsludreifingin skapar. Garri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.