Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 6
18 - Þriðjudagur 18. febrúar 1997 !®agurJ(Etmmrt MENNING O G LISTIR LEIKFÉLA6 AKUREYRAR Kór Leikfélags Akureyrar Kossar og kúlissur Laugard. 22. febr. kl. 20.00. Sunnud. 23. febr. kl. 16.00. Föstud. 28. febr. kl. 20.00. laugard. 1. mars kl. 20.00. Athugið breyttan sýningartíma. Afmælistilboð Miðaverð 1500 krónur. Börn yngri en 14 ára 750 krónur. Undir berum himni eftir Steve Tesich Sýningar á „Renniverkstæðinu" (Strandgötu 49) Föstud. 21. feb. kl. 20.30. Uppselt. Síðasta sýning Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hæat að hleypa gestum inn í salinn ettir að sýning er hafin. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánud. kl. 13.00-17.00 og fram að sýningu sýningardaga. Símsvari allan sólarhringinn. Sími í miSasölu: 462 1400. Jlagur-^ímmn - besti tími dagsins! Blúndur og blásýra Haukur Ágústsson skrifar Laugardaginn 15. febrúar frumsýndi Leikfélag Rauf- arhafnar Blúndur og blá- sýru eftir Kesselring í þýðingu Ævars Kvarans. Leikstjóri er Bergljót Arnalds. Blúndur og blásýra er hryll- ings-gamanleikur, þar sem manneskjur, sem eru ljúfleikinn einn á því borði, sem að samfé- laginu snýr, fremja morð í góð- semi sinni og telja sig vera að þjóna þeim samborgurum sín- um, sem erfitt eiga eða hafa hvergi höfði sínu að halla, með því að losa þá úr þeirri eymd, sem jarðlífið færir þeim. Verkið hefur lengi notið vin- sælda, enda er það, eins leik- stjórinn segir í leikskrá: „skemmtilegt leikrit og hefur staðist vel tímans tönn.“ Boðskapargildi þessa verks er lítið sem ekkert. Því er ætlað að skemmta og vekja hlátur og það tekst í mörgum tilfellum í uppsetningu Leikfélags Raufar- hafnar. Systurnar Abby og Mörthu Brewster leika þær Anna M. Hjálmarsdóttir og Sigurveig Björnsdóttir. Þær gera hlutverk- sem verkið á að gerast á. Leikstjórinn hefur í heild tekið unnið verk sitt vel. Svið- ferð er í góðu Iagi og afar lítið um dauðar stöður, þó að þær komi því miður fyrir einkum í fjölmennum -atriðum. Ferli fer vel af stað, en nokkuð dofnar yfir því er líða tekur á fyrri hluta verksins. Seinni hlutinn er vel líflegur ekki síst framan af, þar sem næst gott tempó og fjörleg tilþrif hjá flytjendum. Leikkfélag Raufarhafnar er gott dæmi um félagsskap áhugafólks um leiklist, sem læt- ur ekki deigan síga, þó að kringumstæður séu ekki þær, sem bestar verður á kosið hvað snertir tíma þeirra, sem taka þátt í uppfærslu leikverka. í leikskrá kemur fram, að at- vinnulífið hafi haft drjúg áhrif á æfingatímanum, svo mjög, eins og segir í leikskrá, að legið hef- ur við að „sumir hafi þurft að æfa sín atriði bréílega." Svo getur orðið í samfélögum, þar sem vinna er í skorpum og eng- inn getur sagt fyrir um það, hvenær að þeim kemur. Það er ekki síst með þetta í huga sem það er ánægjulegt að geta sagt, að þrátt fyrir annir og atvinnu hefur félögunum í Leikfélagi Raufarhafnar tekist að koma á ijalirnar sýningu, sem í heild tekin er lífleg og góð skemmt- un. um sínum góð skil og eru fullir þátt- takendur á því, sem gerist á svið- inu. Nokkuð staðl- að fas spillir per- sónusköpun beggja dálítið. Séra Harper er leikinn af Páli Þormari. Hlut- verkið er ekki ýkja stórt, en Páll gerir því góð skil. Hann nær prest- legu fasi jafnt í hreyfingum sem málfari. Bróðirinn, Teddy, sem er talsvert utan þessa heims, er leikinn af Jónasi Fr. Guðnasyni. Hann nær víða mjög skemmtileg- um tökum á per- sónunni og er sannarlega einn af burðarásum uppsetningarinn- ar. Jónas er einnig í hlutverki herra Gipps, ein- stæðings, sem kemur í her- bergisleit og sleppur naumlega við aðstoð systr- anna. Þetta er htið hlutverk, Jónas gerir því góð skil. Lögregluþjónana tvo, Klein og O’Hara, leika þeir Heimir Þór Tryggvason og Páll Ingi Jónasson. Þeir gera báðir nokk- uð vel, en hættir til þess að vera leslegir í framsögn, einkum Páli Inga Jónassyni. Báðir ná allvel fasi hins vinveitta lögreglu- þjóns, sem er sem næst ijöl- skylduvinur á heimilinu. Elaine Harper, prestdóttirin og unnusta ...............1___ Mortimers Brewsters, er leikin af Arn- þrúði E. Jóns- dóttur. Því mið- ur nær Arn- þrúður ekki sem skyldi að komast að per- sónunni. Hún er heldur dauf- leg og nær ekki æskilegri sam- fellu í túlkun en sma. Leikfélag Raufarhafnar er gott dœmi umfélags- skap áhugafólks um leik- list, sem lœtur ekki deig- an síga, þó að kringum- stœður séu ekki þœr, sem bestar verður á kosið hvað snertir tíma þeirra, sem taka þátt í upp- fcerslu leikverka. Mortimer hans og fas ýtir undir þetta at- riði. Hins vegar er túlkunin í heild sinni heldur einhæf og skorðuð og missir því um of marks er á hður. Dr. Einstein, félaga Jonat- hans Brewsters, leikur Hörður Þorgeirsson. Hann nær víða skemmtilegri túlkun og sviðferð ekki síst í samleik við Jonathan. Rooney lögregluforingi er leikinn af Kristjáni Önundar- syni. Hlutverkið er ekki mikið, .........—..... en Kristján gerir því allgóð og röskleg skil. Annað smátt hlutverk er í höndum Er- lings Thorodd- sens og er það herra Withers- poon, forstöðu- maður dvalar- stofnunar. Hlutverkið ger- ir ekki kröfu til tilþrifa og gerir Erlingur því vel viðunandi skil. Brewster, bróð- ur systranna og Teddýs, leikur IJrólfur Björnsson. Hann á góða spretti einkum í seinni hluta verksins, en í heild tekið er túlkun Hrólfs nokkuð ósamfelld og á stundum ekki nógu sam- færandi. Jonathan Brewster, svarta sauðinn í ijölskyldunni, leikur Jóhann H. Þórarinsson. Gervi Jóhanns er gott, en það á að minna á Frankenstein og gerir það sannarlega. Raddbeiting Likin, sem dragnast er með fram og aftur í verkinu, eru Garðar Þormar og kemur hann lífleysi þeirra vel til skila. Sviðsmynd er fallega unnin og fellur ágætlega að verkinu. Búningar eru einnig vel við hæfi, en þó hefði mátt huga nokkuð að sviðsklæðnaði Elain- ar Harpers einkum framan af verkinu. Lýsing gerir verkinu góð skil og tónlist, sem ílutt er, er vel valin og í anda þess tíma, ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen Fimmtud. 20. febr. Nokkur sæti laus. Laugard. 22. febr. Uppselt. Laugard. 1. mars - Laugard. 8. mars KENNARAR ÓSKAST eftir Ólaf Hauk Símonarson Föstud. 21. febr. Uppselt Fimmtud. 27. febr. - Laugard. 1. mars ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Sunnud. 23. febr. - Sunnud. 2. mars Föstud. 7. mars Ath. Fáar sýningar eftir. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 23. febr. kl. 14.00. Sunnud. 2. mars kl. 14.00. Laugard. 8. mars kl. 14.00 Sunnud. 9. mars kl. 14.00 Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Föstud. 21. feb. Nokkur sæti laus. Laugard. 22. feb. Uppselt. Fimmtud. 27. feb. - Laugard. 1. mars. Laugard. 8. mars Athygli skal vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt aö hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla sviðið kl. 20.30 í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson Sunnud. 23. feb. - Sunnud. 2. mars Síðustu sýningar Ekki er hægt að hleypa gestum inn 7 salinn eftir að sýning hefst. Gjafakort í leikhús - sígild og skemmti- leg gjöf Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frákl. 10 virka daga.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.