Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 1
HELGARÚTGÁFA Siglufjörður/Ólafsfjörður Nýr útgerðarrisi á Tröllaskaga Þormóður rammi- Sæberg hf. 3ja stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. s tgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækin Sæberg hf. í Ólafsfirði og Þormóður rammi hf. á Siglufirði hafa sam- einast og verður sameiningin afturvirk frá síðustu áramótum. Starfsemin verður í báðum byggðalögun- um. Hið nýja fyrirtæki mun heita Þormóð- ur rammi-Sæ- berg hf. og verða fram- kvæmdastjór- arnir tveir; Gunnar Sig- valdason í Ól- afsfirði og Ól- afur Marteinsson á Siglufirði. í maímánuði 1996 keypti Þor- móður rammi hf. 20% hlut í Sæ- bergi hf. og gerðu fólögin með sér samstarfssamning sem unnið hefur verið eftir síðan. Tilgang- urinn með samruna félaganna er að auka hagkvæmni með bættri nýtingu eigna og veiði- heimilda, draga úr kostnaði og gera hið sameinaða félag betur búið til að takast á við ný sókn- arfæri. Stefnt verður að stækk- un félagsins og eílingu skipa- stólsins og fyrsta skrefið í því er kaup á frystiskipinu Engey RE-1 af Granda hf., án kvóta, og fer skipið á bolfiskveiðar. Skipið, sem er systurskip Akureyrinnar og Víðis, er nýendurbyggt. Veiðiheimildir beggja félaganna eru um 17 þúsund þorskígildis- tonn að meðtöldum heimildum utan lögsögunnar, og er félagið þriðja stærsta útgerð landsins með tilliti til kvóta, næst á eftir Samherja hf. og Haraldi Böðv- arssyni hf., en með heldur meiri kvóta en Vinnslustöðin hf., Grandi hf. og ÚA. Skipa- eignin verður 5 frystiskip og 4 ískfiskskip sem verða á bolfisk- veiðum og rækju. Heildarvelta Sæbergs hf. var á si. ári 1.350 milljónir króna og Þormóðs ramma hf. 2.272 millj- ónir króna og er stefnt að 3,7 milljarða króna veltu á þessu ári og að starfsmannaflöldinn verði svipaður, eða um 290 manns. Nettóskuldir þess verða um 1,5 milljarður króna. Fiski- skipaflotinn verður stokkaður upp en á þessari stundu er það ekki ljóst með hvaða hætti það verður gert. GG Nýja fyrirtækið hefur keypt Engey RE-1 og á fyrir fjóra frystitogara og fjóra ísfisktogara með samtals 17 þús- und þorskígildistonna kvóta. Rikisstjórn Þensla endurmetin Borgin vill endurskoða frestun framkvæmda. að sem skiptir mestu máli er að sjá einhverja útkomu úr kjarasamningum," segir Ólafur Davíðsson, ráðuneytis- stjóri í forsætisráðuneytinu. Hann segir að á meðan séu ekki uppi nein áform um breyt- ingar á fyrri ákvörðunum sem teknar voru til að koma í veg fyrir þensluáhrif vegna stóriðju- framkvæmda. Ólafur sagði um miðjan dag í gær að gerð kjara- samninga væri ekki komin á það stig að ríkisstjórnin sæi ástæðu til að koma að þeim með hugs- anlegar aðgerðir í skattamálum og fleiru. Á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri að endurskoða þyrfti samkomulag við samgönguráðherra um frest- un framkvæmda hjá borginni gegn breikkun Ártúnsbrekku, vegna þeirrar ákvörðunar Landsvirkjunar að fresta hluta af fyrirhuguðum virkjunarfram- kvæmdum. Talið er að þessi áform Landsvirkjunar hafi í för með sér allt að 3.3 milljarða kr. minni fjárfestingar en áætlað var á næstu þremur árum. -grh Eitt sinn var skilgreining á frétt sú að ef hundur biti mann væri það ekki frétt, en ef maður biti hund væri það frétt. En ef hundur glefsar í skokkara? Þá er það Dags-Tímafrétt. m Afengismál Páll gegn ESB Félagsmálaráðherra segir að ekki verði un- að við úrskurð frá ESB- dómstóli um að aflétta verði ríkiseinkasölu á áfengi. etta er eins og margt ann- að sem frá Brussel kemur. Ég er auðvitað ekkert hrif- inn af þessu. Þegar við vorum að gerast aðilar að Evrópsku efnahagssvæði, þá sóru þeir og sárt við lögðu talsmenn aðildar, að ekki þyrfti að koma til breyt- ing á áfengislöggjöfinni í fram- haldi af aðild okkar. Sama saga gekk á hinum Norðurlöndunum. Nú kemur annað í ljós og er það eftir öðru í samskiptum okkar við Evrópusambandið," sagði Páll Pétursson félagsmálaráð- herra í samtali við Dag- Tímann í gær. „Á sínum tíma byggði ég and- stöðu mína við aðild að EES á því að við værum að afsala okk- ur sjálfsforræði í mjög veiga- miklum málaflokkum og yrðum að fara eftir fyrirsögn frá Brus- sel, sem nú er komið á daginn,“ sagði Páll Pétursson. Ráðherrann sagði að aðallög- maður ESB-dómstólsins væri ekki maður óskeikull, alla vega hefði það borið við í tveim tilvik- um í það minnsta að álit hans hefði verið hunsað af dómstóln- um. Lögmaðurinn segir að ís- land og fleiri lönd hefðu átt að leggja niðrn- áfengiseinkasölur þegar eftir undirritun EES- samningsins. Páll sagði að hann hefði áhyggjur af auknu frjálsræði í áfengismálum íslendinga í þá veru sem aðallögmaðurinn vill. Sömu sögu væri að segja af ráðamönnum í nágrannalönd- unum. Enn aukið frelsi mundi alla vega ekki bæta áfengis- menninguna hér á landi. Hér væri um að ræða mál sem snerti ríkissjóð verulega. Aukið frjáls- ræði væri nú að koma í ljós, ríkissjóður yrði af miklum tekjrnn. „Nú virðast menn hættir að mjatla áfeng- inu í land í pappaköss- um, heldur flytja inn ólöglega í heilu gá- rnunurn," sagði félags- málaráðherra. Það er alveg einboðið að í þessu máli munum við ekki una úrskurði eins og þeim sem aðallögmaður- inn ýjar að. Við munum taka á þessu rnáli." -JBP Páll Pétursson félagsmálaráðherra: Aukið frelsi mun ekki bœta áfengis- menninguna og ríkið tapar íslendingaþættir Fylgja blaðinu í dag Lítill Víkingur kr. 250,- Skipagata 14, 5. hæð, sími 462 7100 - opið öll hádegi og öll kvöld

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.