Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 6
6 -Laugardagur 8. mars 1997
iOagur-ÍEtmmn
IÐNÓ
Endurbyggingarnefnd IÐNÓ auglýsir eftir
umsækjendum sem hafa áhuga á að taka að sér
rekstur IÐNÓ.
Umsóknum þar sem gerð skal grein fyrir hug-
myndum umsækjenda um rekstur í húsinu skal
skilað til formanns endurbyggingarnefndar, Pór-
arins Magnússonar, verkfræðings, Austurstræti
6, 3. hæð, fyrir 19. mars nk.
—
AKUREYRARBÆR
Lóð í miðbæ
Laus er til umsóknar byggingarlóð í miðbæ Ak-
ureyrar. Lóðin afmarkast af Strandgötu og
Geislagötu austan Landsbanka, reitur nr. 21 skv.
skipulagi norðurhluta miðbæjar. Lóðin er skil-
greind fyrir miðbæjarstarfsemi og íbúðir.
Fyrirvari er um hvenær lóðin verður byggingarhæf.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um lóðina fást
hjá byggingafulltrúaembættinu á Akureyri.
Umsóknum skal skilað til byggingafulltrúa, Geisla-
götu 9, Akureyri, fyrir 15. mars 1995.
Byggingarfulltrúi Akureyrar.
Við þökkum innilega auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát
og útför
GUÐNÝJAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
frá Rauðaskriðu.
Sérstakar þakkirfærum við starfsfólki á 3. hæð Sjúkrahúss
Húsavíkur.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og út-
för eiginmanns míns og föður okkar,
SÉRA GUÐMUNDAR
SVEINSSONAR,
fyrrv. skólameistara,
Flúðaseli 30, Reykjavík.
Guðlaug Einarsdóttir og dætur.
sem lóst 3. mars sl., verður jarðsunginn laugardaginn
8. mars kl. 14. Athöfnin fer fram í Reykholtskirkju en jarðsett
verður á Gilsbakka.
Ingibjörg Bergþórsdóttir,
Hjörtur Bergþór Hjartarson, Helga Brynjólfsdóttir,
Jónína Marta Árnadóttir, Guðbjörn Sigvaldason,
Þorsteinn Árnason, Pia Hesselvig
og barnabörn.
Sætaferðir verða frá B.S.Í. kl. 10.30 sama dag og Hyrnunni,
Borgarnesi kl. 13.
Hætt að lemja
pizzusendlana
Pizzusendlar á
höfuðborgarsvæð-
inu eiga nú miklu
síður á hættu að
verða lamdir eða
rændir en áður.
Meginvandamálið
nú er hvað þeir
sem panta eru oft
sofnaðir þegar
pizzan kemur.
Heimsending á pizzum er
að verða vandræða-
minni, t.d. miklu minna
um að reynt sé að brjóta eitt-
hvað á pizzusendlunum, ógna
þeim eða plata þá á einhvern
hátt, að sögn Péturs Þórs Guð-
mundssonar, framkvæmda-
stjóra Hróa Hattar. „Sérstak-
lega var það orðið hættulegt
þegar menn voru að berja
sendlana. En það er nú alveg
hætt.“
Dagur-Tíminn hafði sam-
band við Pétur til að fræðast
um hina tiltölulega nýju en
ótrúlega gróskumiklu „pizzu-
menningu“ í landinu. Afgreiðsl-
una segir hann tölvuvædda
þannig að símanúmerið kemur
upp á skjáinn um leið og hringt
er inn. „Þannig sjáum við líka
hvort hringt er úr því númeri
sem gefið er upp - hvort nokkuð
sé verið að gabba. Og þar sjá-
um við líka allar færslur á
hverjum stað.“
Vasapeningar sumra í
pizzur
Pizzur er hægt að panta allan
sólarhringinn. Mest segir Pétur
þó um pantanir um kvöldmat-
arleytið og síðan fram til klukk-
an 2-3 á nóttunni á virkum
dögum, en alveg fram undir
klukkan 8 á morgnana um
helgar. Og yfirleitt sé miklu
mera að gera á nóttunni heldur
en yfir daginn. Töluvert sé um
það að fjölskyldur kaupi pizzur
reglulega einu sinni í mánuði.
Og mikið um það að fjölskyldur
kaupi alltaf pizzu einu sinni í
viku, t.d. hverju föstudagskvöldi
eða laugardegi.
- Panta e.t.v. einhverjir oft í
viku?
„Já, unglingar. Til sumra
þeirra erum við að keyra pizzur
nokkrum sinnum í hverri viku
og alltaf það sama. Svona milli
klukkan 3 til 5 á daginn erum
við aðallega í því að keyra út til
unglinga. Vasapeningarnir
þeirra koma hingað." Lítið er
hins vegar um að fjölskyldur
panti pizzu oft í viku, nema eitt-
vað sérstakt komi upp á; óvenju
seint sé komið heim úr vinn-
unni, eða að fólk standi í stór-
ræðum, t.d. flutningum eða sé
að mála og annað slíkt.
Pizzan sumum ómiss-
andi með íþróttum
„Hins vegar virðist mikið um
það að pizzur séu pantaðar ef
hópur kemur saman, á spila-
kvöld eða þannig. Og líka mjög
mikið með íþróttum. Sumum er
pizzan ómissandi með íþrótt-
um. Við verðum t.d. mikið vör
við það ef er fótbolti í sjónvarp-
inu, eins og í gær. Þá berst mik-
ið af pöntimum".
- Lenda pizzusendlar aldrei í
ströggli eða vandræðum þegar
þeir koma í hús?
„Stundum á næturnar. Það
er ekkert um þetta fyrr en
svona upp úr klukkan eitt á
nóttunni. Þá fer það að byrja að
fólk getur ekki borgað. Sumir
segjast ekki finna veskið sitt
eða því um líkt.“
„Töff“ að ógna
sendlinum eða
ræna hann...
Alvarlegri vandamál af þessum
sökum segir Pétur hins vegar
hafa minnkað verulega. „Það
var svolítið um það að pizza-
sendlar væru rændir; pizzan
bara tekin af þeim og fólk neit-
aði að borga en hótaði að berja
sendilinn ef hann hefði sig ekki
í burtu. En það er orðið mjög
lítið um svona mál. Reyndar
held ég að það sé vegna þess að
ekkert hefur verið fjallað um
þetta í fjölmiðlum að undan-
förnu. En þegar svonalagað
kemst til umræðu í fréttum, þá
verður það eitthvað „töff' og þá
þurfa alltaf einhverjir að reyna
þetta.
Það gekk líka yfir önnur
bylgja. Þá voru pantaðar pizzur
á eitthvert heimilisfang, sem
var gabb og síðan önnur pizza í
sömu götu á nánast sama tíma.
Meðan sendillinn fór inn með
fyrri pizzuna, var farið í bflinn
og hinni pizzunm rænt, þ.e.
meðan sendillinn var kannski
uppi á 4. hæð í blokk að gá að
þeim sem átti að hafa pantað
pizzu, sem enginn kannaðist
við. Þetta var stundað úti um
allan bæ á tímabili, en er líka
næstum búið núna, nema í ein-
stöku tilfellum. Maður heyrir
kannski um eina og eina pizzu
sem hverfur úr bflum.
Þarna held ég að okkar full-
komna símakerfi hafi hjálpað
til. Því við sjáum hvort hringt er
úr því númeri sem tilgreint er,
þannig að það er orðið erfitt að
gabba.“
Svangir - og óskap-
lega syfjaðir
- Eru vandamálin þá að verða
úr sögunni?
„Núna er það aðalvandamál-
ið að fólk pantar á nóttunni, og
er síðan sofnað þegar við kom-
um á staðinn. Hversu snöggir
sem við erum - sérstaklega ef
fólk er eitthvað fþví - þá eru
15-20 mínútur alveg nóg til
þess að fólk steinsofnar á þess-
um tíma, og rumskar ekki þó
sendillinn hamist á dyrabjöll-
unni, eða á stofuglugganum
þegar hann sér kannski þann
sem pantaði sofandi í sófanum.
En fólk haggast ekki.
Um helgar er töluvert mikið
um þetta. Annað vandamál er
fólk sem pantar og fer síðan úr
húsinu áður en við komum, í
annað partí eða eitthvað slíkt.“
Pétur segir nú orðið fremur
lítið um það að fólk panti pizzu
eigi það ekki pening, enda taki
sendillinn hana þá til baka.
„Það er helst, eftir að debet-
kortin komu, að það ætla að
borga þannig. En debetkort er
rafræn greiðsla og útilokuð í
heimahúsi. Við höfum þá annað
hvort boðið kúnanum að koma
daginn eftir, eða að skjótast
bara með hann að borga hjá
okkur," segir Pétur Þór Guð-
mundsson. HEI