Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Blaðsíða 12
wmmm^m^mmmmm
JDagur-®tmtmt
Laugardagur 8. mars 1997
|Dagur-®tmmn
-besti tími dagsins!
Konur gegn plebbamenningu
Kvennalistakonur vilja sporna
gegn plebbamenningu, sem þær
segja breiðast út í borginni í formi
fatafellusýninga og erótískra
símaþjónusta.
Plebbamenning breiðist óð-
um út í Reykjavík, segja
Kvennalistakonur, sem
ætla að koma saman síðar í
mánuðinum og ræða hvort og
hvernig hægt sé að sporna gegn
þessu. „Við erum tala um þessa
skemmtistaði sem spretta upp
hver á fætur öðrum og bjóða
upp á fatafelludans. Þetta er
orðið mjög áberandi og einnig
auglýsingar í dagblöðunum á
ástarlínum og fleiru í þeim
dúr,“ segir Sigrún Erla Egils-
dóttir, starfsmaður Kvennalist-
ans. „Þetta er auðvitað spurn-
ing um hvað við viljum hafa
sem hluta af okkar menningu
og hvað ekki. Mörgum konum
finnst það slæmt að þetta sé
farið að grassera hér óárBeitt."
Fyrr í vetur var talsvert um það
rætt hvort skilgreina ætti fata-
felludansins sem list eða klám
og það ætla Kvennalistakonur
m.a. að ræða á fundi 20. mars
næstkomandi. Sigrún Erla seg-
ist ekki vita hvers vegna það
sem þær kalla „plebbamenn-
ingu“ hafi færst í vöxt hér á
landi.
„Þetta er auðvitað mjög
áberandi víða erlendis og ég
held þetta hafi viðgengist mjög
lengi hér í einkaklúbbum. Hins
vegar veit ég ekki alveg af
hverju þetta er svona sýnilegt
núna. Þetta er kannski hluti af
þessum afstæðishugsunarhætti
sem ræður ríkjum. Allt á að fá
að blómstra í nafni frelsins og
fólk í dag er ragara við að taka
afstöðu en áður var.“
, —2
fyrírru*n‘
Opnuro
0Pnunartfmi
Opemng hoors
%*>- til iim
íö Thi>
21-00-01,00
StansU
} sýnin
Spriklandi fatafellur um allan bæ... plebbamenning?
VORTILBOÐ!
Vorið kemur með SAS
Sumaráætlun SAS á íslandi
hefst 5. apríl
SAS fagnar vorkomu með tilboði á ferðum
til nokkurra borga í Evrópu ef ferðast er á
tímabilinu frá 5. apríl til 13. júní. Flogið er
til Kaupmannahafnar á laugardögum og til
íslands á föstudögum. Hámarkstími er
1 mánuður og lágmarkstími er 6 dagar.
Barnaafsláttur er 50%.
Allar nánari upplýsingar færðu á ferðaskrif-
stofunni þinni eða söluskrifstofu SAS.
Kaupmannahöfn 21.060
Mílanó 30.480
Parfs 30.130
Vín 31.040
Ziirich 30.590
Amsterdam Flugvallarskattar eru innifaldir í verði. 29.340
Laugavegi 172 Simi 562 2211