Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Qupperneq 1
% % 1 9 ;igur-(Eímmu LIFIÐ I LANDINU FÖStudagur 14. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 51. tölublað BÆTAUPP FYRIRGETU- LEYSIMEÐ HÁVAÐA í Hagkaupsbandinu, sem finnur sig sérstaklega í því að œfa ekki í stórmannlegum stúdíóum heldur í pínu- litlum bílskúr, eru endurskoðandi, fiármálastjóri, for- stöðumaður innra eftirlits, forstjóri og framkvœmda- stjórl Forstjórinn segir að grúbban hafi verið búin til sökum þeirrar öruggu aðferðar að skemmta starfs- fólki með því að yfirmennirnir verði sér til skammar. Sigurður Gísli Pálmason, bassaleikari hljómsveitarinnar og framkvæmdastjóri móður- fyrirtækis Hagkaups Hofs, seg- ist vera „wanna be“, hann langi óskaplega til að geta leikið vel á bassann. „Annars spila ég ekki bara á bassa, við göngum hver í annars störf og skiptum um hljóðfæri ef svo ber undir.“ Verður maður að vera Hag- kaupsmaður til að fá inngöngu? „Já, tengslin við Hagkaup eru náttúrulega algjört skil- yrði en við köllum okkur ekki Hagkaupsbandið. Það hefur ríkt hentistefna í nafngiftum og við skiptum um nafn við hverja uppákomu. Norður á Akureyri hét hljómsveitin „Mér finnst pizza best“ síðan hefur hún heitið „Óði Ósk ar og apótekararn- ir“ og næst kemur hún til með að heita „Hux-jón“. Tryggvi endurskoðandi er einn af alvöru mönnunum í bandinu. „Wild thing“ ákvæðið Sigurður segir verðandi Hux-jóna æfa í bflskúr eins og vera ber og að meðlimum finnist það mikið atriði. -En eru þetta alvöru tónlistarmenn? „Það eru tveir kunna eg er sem dálítið en svokallaður „wanna be“, mig langar en kann voða lítið." Óskar Magnús- Óskar er líka trymbill og söngvari í einu uppáhalds lagi. son forstjóri er í sama flokki. „Við Sigurður verðum að æfa meira en hinir og kaupa fleiri gítarbækur. Ég spila á trommur í sumum lögum og gítar í öðr- um. Ef eitthvað er sérstaklega vandmeðfarið syng ég bara eins og t.d. í Wild thing. Ég syng bara þetta eina lag og það er skilyrði fyrir þátttöku minni í hljómsveitinni að Wild thing sé tekið. Hvar troðiði upp? „Við höfum takmarkað okkur við uppákomur fyrirtækisins fram að þessu en hver veit hvað verður? Nýr markaður í Austur- löndum Hvernig tónlist spiliði? „Ætli meginstefnan sé ekki „rokk’n roll“. Við tök- um t.d. Back in the U.S.S.R., Johnny be good og förum líka yfir í íslensku tilfinn- ingasemina og tökxun Gvend á eyrinni og Kúk í lauginni." Sigurður segir að það sé aldrei að vita nema þeir gefi út plötu og þá líklega vegna ijölda áskor- anna. „Annars hefur mér alltaf fundist ágæt regla að bæta upp fyrir getu- leysi með hávaða, - en þetta hljómar ekki nógu vel, viltu ekki sleppa þessu!" „Við horfum helst til Austur- landa nú ^ < þegar við höfum ofmetn- ast mjög, þar er hæfilega stór markaður fyr- ir okkur“, segir Óskar. Er ekkert Hagkaups- legt við bandið, t.d. „Það er gaman að versla í góðri búð... “? „Nei, við höfum ekki farið út í beinan áróður enda ekki tiigangurinn, Bubbi er í því fyrir okkur," segir Sigurður. „Bandið ber þann svip af fyrir- tækinu að vera ekki mjög fer- kantað, við viljum geta farið út af sporinu þegar okkur hentar eða farið okkar leiðir. Við er- um ekki fyrirsjáanlegir." Kraftmennin og hinir Auk Sigurðar Gísla Pálmason- ar og Óskars Magnússonar eru í hljómsveitinni Tryggvi Jónsson formaður félags lög- giltra endurskoðenda og endurskoðandi Hagkaups, hann spil- ar á gítar og er að sögn afskaplega fær. Þá er Frey- steinn Sigurðs- son hæfileika maður á ýmis liljóðfæri og ágætur söngvari, hann er for- stöðumaður innra eftir- lits í Hag- kaupum. „Á flest Uðtækur Sigurður l.(ngibergur) er alhliða og líka afar góður gítaristi. og gamall hljóm- sveitarhundur.” Sá sem er Qár- málastjóri hjá Hof heitir Sigurð- ur I.(ngibergur) Björnsson og þar er um alhliða mann að ræða og afar góðan gíta- rista. “En við Sigurður erum kraftmennin, höfum mikinn áhuga á að vera músíkstjörnur en höfum heldur minna til þess að bera en aðrir í hljómsveit- inni.“ segir Óskar. -mar Sigurður „wanna be“ bassaleikari segir að kannski gefi þeir út plötu. Myndir: GS Freysteinn, „gamall hljómsveitarhundur", er liðtækur á flest og ágætur söngvari.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.