Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Page 2
14 - Föstudagur 14. mars 1997
jlÉnjinÁEbtrám
Smíða flugvél sem hægt
erað leggjasaman
Feðgarnir Ragnar Axelsson og Axel Sölvason eru að smíða vél sem hægt er að pakka saman á 15 mínútum, setja upp á vagn og draga ef flugveð-
ur er slæmt. Axel hefur að mestu séð um smíðina enda völundur mikill en Ragnar hefur gripið í þetta þegar hann hefur haft tíma. Hann var við
myndatökur af ísbjörnum á Grænlandi þegar þessi mynd var tekin. Bensínbrúsarnir kunna að vekja athygli.
Feðgarnir Ragnar Axelsson
ljósmyndari og Axel
Sölvason tækjafræðingur
eiga ýmislegt sameiginlegt.
Báðir eru þeir spenntir fyrir
ljósmyndun og báðir hafa þeir
einkaflugmannspróf upp á vas-
ann. Þeir hafa nú tekið sig til og
fjárfest í og ílutt inn ásamt öðr-
um nýja gerð af lítilii og léttri
flugvél til að setja saman og
fljúga við erfið skiiyrði. Axel
hefur tekið að sér að setja vél-
ina saman, Ragnar hjálpar til
þegar hann hefur tíma og Ey-
þór Sigmundsson í Laxakortiun
heldur þeim félagsskap.
„Við erum fyrst og fremst að
smíða vél sem við álítum að sé
afskaplega þénug vegna þess
að á 15 mínútum getum við
pakkað henni saman og sett inn
í vagn sem við drögum eftir bíl.
Þess vegna getum við farið með
hana akandi ef flugskilyrðin eru
þannig að ekki er hægt að
fljúga. Hún á að vera afskap-
lega dugleg í loftið þó að flug-
brautin sé lítii sem engin. Hún
flýgur hægt þannig að það er
mjög gott að taka myndir úr
henni. Við stflum upp á það,“
segir Axei.
Hægt að leggja væng-
ina aftur
Ragnar og Axel hafa báðir verið
með einkaflugmannspróf í
Qölda ára og Axel reyndar í 30
ár. Báðir stunda þeir Iíka ljós-
myndun, Ragnar hefur gert það
að atvinnu sinni eins og al-
kunna er og Axel tekur myndir
í frístundum. Á nýju vélinni get-
ur ljósmyndarinn annað hvort
flogið sjálfur og tekið myndir
um leið eða verið með flug-
mann í för. Þá getur annar ein-
beitt sér að því að fljúga meðan
hinn einbeitir sér að myndatök-
um.
„Þegar hún breiðir almenni-
lega úr sér er hún býsna stór og
ekkert ólík flugvélunum sem
sjást dags dagiega fljúga yfir
Reykjavík. Meginmálið er að
það er hægt að leggja vængina
aftur með skrokknum og gera
hana svo þunna að það er hægt
að setja hana upp á kerru.
Þetta verður ósköp viðlíka eyki
og með svifflugur. Þetta verður
ekkert vandamál, þægilegt og
aðgengilegt með öllu,“ segir
Axel og bætir við að hægt verði
að geyma vélina inni í bflskúr.
Klárar fyrir vorið
Hann hefur sett vélina saman
hjá bróður Eyþórs x' vélsmiðj-
unni Formax þar sem hann hef-
ur fengið gott pláss og getur
fullklárað að setja vélina sam-
an. Axel eyðir öllum helgum og
mörgum kvöldum í viku í smíð-
ina og kveðst bjartsýnn á að sér
takist að klára fyrir vorið þann-
ig að þá sé hægt að byrja að
fljúga henni. Það verður þó ekki
seinna vænna því að feðgarnir
hafa selt vélina sem þeir áttu
fyrir og hafa enga aðra vél til
að fljúga en þessa.
„Það er afskaplega skemmti-
legt að smíða svona vél. Ég er
kominn afar langt með hana,“
segir Axel. „Þetta verður fyrir-
ferðarmikið þegar maður setur
vængina á hana.“ -GHS
Klukkan á
nokkrum stöðum
Hafnfirðingar eru spaugarar miklir
og bara gott eitt um það að segja,
enda löngu ljóst að hláturinn ger-
ir ekkert annað en að lengja lífið. Fram-
takssamir Hafnfirðingar hafa nú tekið
upp á því að laða fólk í Hafnarfjörð, fyrst
með grfnhátíðinni miklu í fyrra og nú
með fallegum auglýsingaspjöldum sem
dreift er í hús og slegið á léttar nótur.
Það er fyrirtækið Aðalskoðun sem
stendur að spjöldunum skemmtilegu og
gefur þar ýmsar nytsamlegar upplýsing-
ar, til dæmis þann alkunna sannleika að
morgunstund gefi gull í mund. Það læðir
líka frá sér öðrum upplýsingum, svo sem
um vindhraða, vindstig og vegalengdir
milli staða á íslandi. Að ekki sé minnst á
Klukkuna á nokkrum stöðum þegar hún
er 12 á hádegi í Hafnarfirði.
Þegar klukkan er 12 á hádegi í Hafn-
arfirði er hún 12 í Reykjavík, 12 í Kópa-
vogi, 12 á Seltjarnarnesi, 12 á Álftanesi,
12 í Garðabæ, 12 í Mosfellsbæ, 12 í
Grindavflc, 12 í Vogum, 12 á Reykjanesi
að ekki sé minnst á Akureyri, Ólafsfjörð,
Grímsey og Hrísey. Þar er
klukkan líka 12 þegar hún
er 12 á hádegi í Hafnarfirði.
Svo mætti lengi telja.
Aðalskoðimarmenn geta
svo í lokin ekki stillt sig um að
klykkja út með því að „Á íslandi
eru 24 klukkustundir í sólarhring
allt árið. Ef farið er milli staða inn-
anlands ber að taka tillit til þess.“
Það getur enginn sagt að ekki séu
húmoristar í Hafnarfirði!
-GHS
)