Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Síða 7
ptgur-®fmtmt Föstudagur 14. mars 1997 -19 Helgin framundan Umsjón Marín G. Hrafnsdóttir Akureyri/Norðurland Steingrímur á heimavelli Amánudag kl. 15 opnar Steingrímur St. Th. Sig- urðsson listmálari sýningu á Sal Menntaskólans á Akureyri. Þetta er 82. sýning Steingríms, sem um þessar mundir heldur upp á 30 ára starfsafmæli sitt sem listmálari. Sýndar verða olíu- og vatnslitamyndir og ætlar Steingrímur auk þess að mála nokkrar myndir á staðnum, þannig að sýningargestir geta séð handbrögð þessa afkasta- mikla málara. Sýningin stendur frá næstkomandi mánudegi og fram til föstudags og er opin frá miðdegi og fram á kvöld. „Nú er ég kominn heim í norðrið sæla þar sem ég lifði og hrærðist um afar langt skeið,“ segir Stein- grímur, sem er sonur Sigurðar Guðmundssonar, sem lengi var skólameistari Menntaskólans á Akureyri. sbs Dáið þér Beethoven? Sigurður Halldórsson sellóleikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari halda tónleika á vegum Tónlistarfélags Ak- ureyrar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju laugardaginn 15. mars klukkan 17:00. Á efnisskránni erum verk fyrir selló og píanó eftir Ludwig van Beethoven; Tvær sónötur op. 5, Tólf tilbrigði við stef úr óratoríu Hándels „Judas Maccabaeus" og Sjö tilbrigði við stefið „Bei Mánnern, welche Liebe fiihlen" úr Töfraflautunni eftir Mozart. Sigríður Ella og Schubert Sigríður Elia Magnúsdóttir söngkona heldur þessa dagana námskeið á Akureyri. Nemendur víða að taka þátt í námskeiðinu sem er á vegum Tónlistarskóla Akureyrar og styrkt af Tón- listarskóla Eyjafjarðar. Á sunnudaginn klukkan 17:00 verða tónleikar í sal Tónlistarskólans við Hafnarstræti þar sem nemendur af námskeiðinu koma fram og verður stór hluti tónleikanna helgaður Franz Schubert en 200 ár eru frá fæðingu hans. Sigríður Ella syngur eitt verk á tónleikunum ásamt fjórum kven- röddum. Richard Simm leikur undir á píanó. Aðgagnur er ókeypis og öllum frjáls. M

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.