Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Side 8
20 - Föstudaaur 14. mars 1997 IWnÆmrám
íDagur-ÍCímtmt
Mœlir með:
...Hvað gerðist þá?
Bókinni um Mimlu, Múmín-
snáðann og Míu litlu eftir
finnska rithöfundinn Tove Jans-
son sem Böðvar Guðmundsson
þýddi fyrir nokkrum árum.
Bókin er sígild og mikill
skemmtilestur og ekki spillir
fyrir hversu textinn er vandað-
ur og myndirnar sterkar. Bókin
hentar jafnt fyrir unga sem
aldna.
Ketti á
heitu blikkþaki
Það er nauðsynlegt að sjá þetta
stykki til þess að vera með í
umræðunni eldheitu um hvort
Jón Viðar sé með leiðindi út í
Þjóðleikhúsið eða hvort honum
finnist Tennessee Williams
virkilega ekkert sérstakur!
íslandsklukkunni á fær-
eysku. Lífspælingum Jóns
Hreggviðssonar og hinum,
þeirra réttlæti og ranglæti.
Helgarbíltúr
í Hafnarfjörð
.. .fljótlegu rölti um sýningarsal-
ina í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Valdabaráttunni
á Politiken
Úttekt Lise Nörgaard í bókinni
De sendte en dame (er til útláns
í Norræna húsinu) á m.a. valda-
baráttu stjóra og peða á Politik-
en fyrr á árum hífði upp starfs-
vitundina og eíldi ritgleðina. En
þetta er ekki sagt hér af ein-
óisma. Salurinn var allavega
nógu þéttsetinn þegar myndin
Kun en pige (eftir a-hluta ævi-
minninga Lise) kom í bíó í vet-
ur. Og þar voru ekki bara breið-
ar blaðakonur. (En konur voru
þær í yfirgnæfandi meirihluta).
Útivist og ferðalögum
Gerum allt það sem við gátum
ekki gert um síðustu helgi
vegna vonskuveðurs.
HRISALUNDUR
fvrir þig!
Kjötveisla
föstudag
Jónas Þór, kjötverkandi,
verður í kjötborðinu okkar
og veitir ráðgjöf um með-
höndlun á kjöti.
Einnig verður mikið úrval
af tilbúnum kjötréttum ásamt
miklu úrvali af nauta-,
lamba- og svínakjöti.
Komið og nýtið ykkur kunnáttu fag-
manna okkar og Jónasar Þórs...
(Maðurinn sem kenndi þjóðinni að
borða nautakjöt)
ki
Hrísalundur sér um sína
Fyrirmyndaríki Herranætur
Á Herranóttum vetrarins 1997 ætlar Leikfé-
lag MR að leika verk svissneska rithöfund-
arins Max Frisch, Andorra. Max starfaði
sem fréttaritari víðs vegar um Evrópu en
ákvað hálfþrítugur að fara aftur í skóla og
nam arkítektúr. Síðar sneri Max sér heils
hugar að skáldskap. Andorra segir frá ung-
um gyðingadreng sem alinn er upp af ást-
ríkum fósturforeldrum, í „fyrirmyndarríkinu“
Andorra, ástríkir altént þar til hann og
stjúpsystirin Barglin fella hugi saman. Yfir
vofir svo árás „hinna svörtu“(?) sem magn-
ar upp spennu í verkinu. Þykir félögum
Herranætur ísland og Andorra eiga sitt-
hvað sameiginlegt...
Pýramídafræðingur til landsins
Einar Pálsson þeirra Norðmanna, Bodvar Schjel-
derup, er norskur arkítekt sem hefur m.a. lagt sig
eftir pýramídafræðum, táknfræði, korta- og töl-
fræði sem nánast eru óskiljanleg nema fyrir inn-
vígða. Bodvar ætlar að gera sitt til að skýra út
kenningar sínar um pýramídann Giza sem mið-
punkt veraldar á fyrirlestri í Norræna húsinu á
mánudaginn kl. 20. í dag kl. 17 opnar sýning hans
Tákn dagrenningar sem hverfist um hlutverk og
mikilvægi Ólafs helga. En hver eru tengslin milli
Ólafs helga og pýramídans Giza? Jú, samkvæmt
kenningum Bodvars eru mjög greinileg tákn í pýr-
amídanum sem sýna mikilvægi þessa norska
þjóðardýrlings og á sýningin að vera sjónræn
framsetning á þessum táknum.
Tjamarkvartett á Skaganum
Hinn föngulegi og kraftmikli Tjarnarkvartett tók
sér fyrir hendur að syngja fyrir 2150 grunnskóla-
nemendur á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla.
Söngferðinni er nú að Ijúka og verða síðustu
skólatónleikarnir í Grundaskóla á Akranesi í dag.
En í kvöld gefst fullorðnum Skagamönnum tæki-
færi til að hlýða á Tjarnarkvartettinn hefja upp
raustir sínar í fimmundarsöng og fábreyttum
rímnasöng, síðari tíma útsetningum tónskálda á
þjóðlögum en auk þess lögum eftir ýmsa sam-
tímahöfunda. Tónleikarnir verða í sal Grundaskóla
kl. 20.30 í kvöld.
Leðurblakan og leikhústónlist
Vegna þess að uppselt var á bæði
tónlistarkvöld nemendaóperu Söng-
skólans í Reykjavík í mars fá 26 nem-
endur óperudeildarinnar að leggja
undir sig Listaklúbb Leikhúskjallar-
ans á mánudagskvöldið kl. 21 og
flytja úrval úr dagskrá beggja kvölda.
Fluttur verður klukkustundar útdrátt-
ur úr Leðurblökunni eftir Johann
Strauss. Inn á milli verður skotið at-
riðum úr Carmen og Ævintýrum Hoff-
manns. í síðari hluta dagskrárinnar
verða svo sungin lög úr íslenskum
leikritum og amerískum söngleikjum.