Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 3
JDagur-tEmrmn
Miðvikudagur 7. maí 1997 - 3
F R É T T I R
Lífeyrissjóðafrumvarpið
Afgreitt úr nefnd í dag?
Lífeyrissjóðafrumvarpið
hefur tekið nokkrum
breytingum í meðförum
Efnahags- og viðskiptanefnd-
ar Alþingis að undanförnu.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
nefndarinnar, lagði fram
málamiðlunartillögur í fyrra-
kvöid með samþykki fjár-
málaráðherra og mun nefndin
taka á málinu í dag. Mun þá
væntanlega fást úr því skorið
hvort samkomulag næst að
mati Vilhjálms.
„Breytingarnar ganga út á
að séreignarsjóðirnir staríl
áfram en verði að bjóða upp á
lágmarkssamtryggingu í gegn-
um aðra sem sam-
svarar 12.000 kr. á
mánuði. Kjara-
samningasjóðirnir
geta þá opnað sér-
eignardeildir og
ráðið því sjálfir
hvaða lágmark
þeir vilji fá í sam-
tryggingu. Ilvort
þeir vilja 12.000,
40.000 eða hvaða
upphæð sem þeim
dettur í hug. En ef þeir opna
séreignardeild verður hún að
vera á samkeppnisgrundvelli,"
sagði Vilhjálmur.
Spurður um hvernig komið
væri á móts við t.d. hávær mót-
mæh ASÍ frá fyrri drögum,
sagði Vilhjálmur að aðilar
vinnumarkaðarins hafi sam-
kvæmt þessum tillögum fullt
forræði yfir þeim sem væru
bundnir af kjarasamningum.
„Þannig að þeir geta ráðstafað
þess vegna 10% af þeirra ið-
gjöldum í samtryggingu eða
opnað séreignardeildir. Þeir eru
algjörlega frjálsir að því vali en
þeir geta hins vegar ekki lagt
kvaðir á aðra en þá sem eru
bundnir í kjarasamningum.“
Grótar Þorsteinsson, formað-
ur ASÍ, virtist ekki allt of
ánægður þegar Dagur-Tíminn
náði lali af honum síðdegis í
gær. „Við erum að funda um
þetta og höfum ekki enn komist
að opinberri niðurstöðu," sagði
Grétar. Þegar hann var spurður
hvernig tónninn væri í mönnum
svaraði hann: „Það vekur at-
hygli margra að þetta séu kall-
aðar málamiðlunartillögur." Af
þeim orðum að dæma er ennþá
langt í land með að sátt ríki um
frumvarpið.
„Þetta er í áttina," sagði
Baldur Guðlaugsson, formaður
Samtaka áhugafólks um lífeyr-
issparnað. „Með þessu er horfið
frá því að leggja séreignarsjóði
af sem lífeyrissjóði. Þ.e.a.s. það
er fallist á að þeir séu hluti af
lífeyrissjóðakerfinu. Þar með
hafa einstaklingar val um
hvernig þeir útfæra sinn
skyldulífeyrissparnað."
Varðandi lágmarkið sem
verður að ganga til samtrygg-
ingar sagði Baldur að hann
teldi að pólitísk nauðsyn væri
fyrir því. „Hins vegar hygg ég
að þeir sem hafi greitt í sér-
eignarsjóði kannist ekki við að
hafa það að markmiði að
leggjast upp á kerfið.“ BÞ
Útför Steindórs
Útför Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum fór fram á Akureyri í gær og var kostuð af bænum í viðhafnar-
skyni við hinn látna. Steindór var heiðursborgari á Akureyri og þjóðkunnur fræðimaður. Við athöfnina flutti
Ágúst Sigurðsson minningarorð en séra Birgir Snæbjörnsson þjónaði fyrir altari. MyndjHF.
Grétar Þorsteinsson
formaður ASÍ
„Vekur athygli
að þetta kallist
málamiðlunar-
tillögur. “
Vikurútflutningur
Siðlaust og
forkastanlegt
Utanríkisráðherra
gerir athugasemdir
við starfsemi
dótturfyrirtækis
íslenskra aðal-
verktaka.
s
slenskir aðalverktakar
hafa orðið uppvísir að því
að reyna með undirboð-
um að sölsa til sín viðskipti
með vikur í Þýskalandi,
sagði Árni
Johnsen, Sjálf-
stæðisflokki, á
Alþingi í gær.
Árni sagði fyr-
irtækið m.a.
státa af því að
íslenska ríkið
væri sinn bak-
hjarl. „Þetta
hefur þegar
skaðað mjög
framgang gild-
andi viðskipta-
samninga og
haft neikvæð
áhrif á verð,“ sagði Árni.
Ilann sagði að fyrirtækið
Lava hefði undanfarið boðið
vikur á 10% lægra verði, en
íslensk fyrirtæki hefðu sam-
ið um og það þýddi tugmillj-
óna króna tjón. Lava væri í
meirihlutaeigu íslenskra að-
alverktaka og þar með ís-
lenska ríkisins og fjárhags-
leg geta þess til að standa
við tilboð sín, þar til keppi-
nautum hefði verið rutt úr
vegi, væri ekki dregin í efa.
Árni krafðist þess að stjórn-
völd tækju á þessu máli,
enda væri það bæði siðlaust
og forkastanlegt að ríkisfyr-
irtæki væru að undibjóða
brautryðjendastarf einka-
fyrirtækja á erlendum
mörkuðum, þar sem sam-
keppnin væri mjög hörð.
Finnur Ing-
ólfsson, iðnað-
arráðherra,
sagði að Lava
hefði ekki vik-
urnámaleyfi
hér á landi, en
væri samt að
bjóða lang-
tímasamninga
um sölu á um-
talsverðu
magni af vikri.
Honum þótti
framganga
fyrirtækisins
um margt óeðlileg. Þá kom
fram hjá honum að utanrík-
isráðherra hefði gert at-
hugasemdir við starfsemi
Lava, eftir að kvartað hafði
verið undan því.
-yj
Árni Johnsen.
Póstur & sími
Fékk forstjóriim ftmm
millj. kr. kauphækkun?
Álíka og samanlögð
upphæð til 150
símsmiða þegar
slitnaði uppúr.
Verkfallsmenn skrúfa
fyrir allar undan-
þágur.
Rafniðnaðarmenn í verk-
falli hjá Pósti & síma telja
ekki ólíklegt að Guð-
mundur Björnsson, forstjóri
P&S, hafi fengið um 5 milljóna
króna kauphækkun um síðustu
áramót. Það jafngildir 400 þús-
und króna kauphækkun á mán-
uði. Þeir telja að 5 milljóna
króna kauphækkun forstjórans
sé álíka og samanlögð upphæð-
in til 150 símsmiða sem bar á
milli þegar slitnaði upp úr
samningaviðræðunum á milli
þeirra og Pósts & síma.
„Við höfum skotið á að þetta
sé kannski spurning um 5 millj-
ónir króna á ári,“ segir Sigurð-
ur Kjartansson hjá verkfalls-
nefnd rafiðnaðarmanna.
Töluverð harka er hlaupin í
verkfall rafiðnaðarmanna hjá
Pósti & síma eftir að yfirmenn
fyrirtækisins fengu tæknifræð-
ing til að gera við þá bilun sem
varð í Landssímahúsinu í fyrra-
dag. Áður höfðu verkfallsmenn
hafnað beiðni um undanþágu.
Þeir samþykktu hinsvegar
beiðni um viðgerð hjá Veður-
stofu íslands. Verkfallsmenn
telja framferði yfirmanna Pósts
& síma vera algjört verkfalls-
brot. Þeir fullyrða einnig að
yfirmenn tæknifræðingsins hafi
beitt hann harðræði til að vinna
verkið í Landssímahúsinu.
Á fundi verkfallsmanna með
fulltrúum Pósts & síma í gær
kom fram að fyrirtækið telur sig
geta sett hvaða menn sem er til
að sinna störfum verkfalls-
manna. í framhaldi af því hefur
undanþágunefnd verkfalls-
manna skrúfað fyrir allar und-
anþágubeiðnir. Sigurður Kjart-
ansson hjá RSÍ segir að það sé
til lítils af þeim að hafna eða
samþykkja undanþágubeiðnir
þegar yfirmenn Pósts & síma
geta síðan sent menn í verk
sem verkfallsnefndin hefur
kannski hafnað.
-grh
Skaginn
Sameigiiileg framboð í bígerð
A lþýðubandalagsfélagið
ÁvAkranesi samþykkti á
a
samþykkti á fundi
í fyrrakvöld að veita stjórn um-
boð til þess að ræða samstarf
við önnur félagshyggjuöfl í
sveitarstjórnarkosningum á
næsta ári. Samskonar tillaga
verður borin upp á fundi Al-
þýðuflokksins á Akranesi fljót-
lega. Jóhann Ársælsson, nyr
formaður Alþýðubandalagsfé-
lagsins á Skaganum, og Hervar
Gunnarsson, formaður Alþýðu-
flokksfélagsins, komu sér sam-
an um að bera tillöguna upp í
fiokkum sínum. Það verður
væntanlega gert á fundi hjá
krötum í næstu viku og segist
Hervar ekki eiga von á neinni
andstöðu frá sínu fólki.
Viðræður um samstarf og
sameiginleg framboð A-flokka
eru hafnar í mörgum stærstu
bæjarfélögum landsins, t.d. í
Reykjaneskjördæmi og á Vest-
ur- og Norðurlandi. -vj
- Sjá bls.6