Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Síða 4
4 - Miðvikudagur 7. maí 1997
,©agur-(IIímmtT
F R E T T I R
Barnaheill ; KS
Um 2000 utanbæjarböm á
sjúkrahús borgarinnar
Ibúð fyrir foreldra sjúkra
barna utan af landi bætir úr
brýnni þörf. Kostnaður for-
eldra þessara barna, sem
dvelja langdvölum í borginni á
sjúkrahúsum, hefur reynst
mörgum fjölskyldum um megn.
Ríflega 2 þúsund börn utan
af landi komu til Reykjavíkur
árið 1995 til að fá Iækningu
meina sinna á sjúkrahúsum
borgarinnar, eða 40% barna
sem fara á bráðamóttökur. Þar
er átt við börn sem bjuggu í
klukkutíma íjarlægð frá borg-
inni eða meira. Oftar en ekki
kemur annað foreldra eða bæði
með barni sínu til Reykjavíkur.
Gistikostnaður foreldra, oft í
marga mánuði, hefur stundum
verið óheyrilegur.
Barnaheill, íslandshluti Save
the Children, hafa tekið í notkun
fyrstu íbúðina sem samtökin
koma upp til að bjóða foreldrum
barna utan af landi til umráða,
komi þau með börn sín til
Reykjavíkur til lækninga á
sjúkrahúsunum. íbúðin er að
Rauðarárstíg 33, rétt við Hlemm-
torg. Undirbúningur er hafinn að
kaupum annarrar íbúðar.
„Þetta er afar erfitt fyrir for-
eldrana, oftast er verið að
I íbúð Barnaheilla að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík. Frá vinstri: Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir barnaspítala Hrings-
ins, Karl M. Karlsson frá Oddfellowreglunni, Þóra Karitas Árnadóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, Einar Gylfi
Jónsson, formaður Barnaheilla, Auður Ragnarsdóttir, deildarstjóri á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, og Jóhannes Pálma-
son, forstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur.
reyna að halda úti tveimur
heimilum og það oft um langan
tíma. Auðvitað fá margir að
vera hjá ættingum og vinum í
borginni, en þegar um langveik
börn er að ræða er ekki víst að
það úrræði dugi,“ sagði Kristín
Jónasdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaheilla, í gær.
Leiga íbúðanna kostar 500
krónur á sólarhring. Verið er að
ganga frá samningum við
Sjúkrahús Reykjavíkur um
rekstrarlega umsjón íbúðarinn-
ar. -JBP
Rekstrartap
163 m. króna
Raupfélag Skagfirðinga var
rekið með 163 milljóna
króna tapi á árinu 1996 sam-
kvæmt samstæðureikningi fé-
Iagsins. Velta KS nam á síðasta
ári 6 milíjörðum króna, eigið fé
í árslok var liðlega 1 milljarður
króna, eiginQárhlutfall 52% og
veltuíjárhlutfall 2.
Skýringa á þessari slæmu af-
komu má að hluta til rekja til
mikils rekstrarhalla dótturfyrir-
tækisins, Fiskiðjunnar- Skag-
firðings hf. Mikið tap varð á síð-
asta ári af landvinnslu FISK í
bolfiski, miklum kostnaði við
veiðar í Barentshafi og eins
varð öflun veiðireynslu við út-
hafsveiðar á Reykjaneshrygg
verulega kostnaðarsöm. Gert er
ráð fyrir því að FISK verði rekið
með hagnaði á þessu ári en
undanfarin misseri hefur verið
unnið að endurskipulagninu á
rekstrinum, ekki síst í land-
vinnslunni. GG
Athugasemd
Igrein blaðsins um forseta-
heimsóknina til S-Þingeyjar-
sýslu sem birtist í gær var mis-
sagt að „aðstoðarkona“ Guðrún-
ar Katrínar væri með í för. Hér
var um að ræða Vigdísi Bjarna-
dóttur, sem er skrifstofustjóri
embættisins. Forsetafrúin ferð-
ast ekki með aðstoðarkonu, og
sér um hárgreiðslu sína sjálf.
Heilbrigðismál
ísland með Gro
V:
a:
lið styðjum góðan Norð-
i,“ segir Ólafur Ól-
afsson landlæknir, sem
nú er á leið á aðalfund Al-
þjóða heilbrigðisstofnunar-
innar í Genf. Þar á hann við
Gro Harlem Brundtland í
jT
Jasstón-
leikar
í kvöldM. 21.30
Pétur 0stlund,
trommur
Fredrik
Ljungkvist,
tenor sax
Eyþór
Gunnarsson,
píanó
Þórður Högnason,
kontrabassi
Jassklúbbur Akureyrar/Hótel KEA
JT
stöðu forstöðumanns stofn-
unarinnar.
Mörg ríki þriðja heimsins
vilja að fulltrúi þeirra fái stöð-
una. „Þeim finnst við hafa það
svo gott,“ segir Ólafur um ríku
löndin, „að við þurfum ekki að
fá þessa stöðu fyrir eitthvert
okkar.“ Ólafur reiknar með að
„afdrifarík ákvörðun" verði tek-
in á fundinum um næsta for-
stöðumann. Hann er ekki vafa
um að hann vilji Gro í sætið,
þetta er „hin vænsta kona eins
og Ólafur Jóhannesson var van-
ur að segja," segir nafni hans
landlæknir.
Kennarar
Nýtt félag
um aldamót?
Áhugi á nýju samein-
uðu kennarafélagi
með sjö þúsund
félaga. Fjölmennasta
félag í opinbera
geiranum.
S:
Ui
BORGARSKIPULAG
REYKJAVÍKUR
BORGARTÚNI3-105 REYKJAVÍK SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 5623219
Skúlagata 21 og 42
og Hverfisgata 105
í samræmi við 17. og 18. gr. skipulagslaga er auglýst
kynning á breyttu deiliskipulagi á lóðum við Skúlagötu
21 og 42 og Hverfisgötu 105.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og Byggingar-
fulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9-16 virka daga og
stendurtil 18. júní 1997.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en miðvikudag-
inn 2. júlí 1997.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
vo getur farið að Kennara-
samband fslands og IJið ís-
lenska kennarafélag verði
sameinuð í eitt deildaskipt fé-
lag. Þá bendir margt til þess að
Félag ísl. leikskólakennara
muni yfirgefa BSRB og ganga
yfir í raðir kennara. Verði þessi
sameining að veruleika með
þátttöku leikskólakennara verð-
ur þetta stéttarfélag eitt hið
stærsta í opinbera geiranum
með hátt í sjö þúsund félags-
menn.
Þetta er meðal þess sem rætt
hefur verið á fulltrúaþingi KÍ
sem hófst sl. laugardag og lauk
í gær. Alls hafa 112 fulltrúar
seturétt á þinginu auk stjórnar
KÍ.
Eiríkur Jónsson, formaður
KÍ, segir að ef þingið samþykkir
að skipa milliþinganefnd til að
semja lög fyrir hið nýja félag,
þá verði þau að liggja fyrir á
næsta ári. Síðan er stefnt að því
að kynning og allsherjarat-
kvæðagreiðsla fari fram árið
eftir, eða 1999. Gangi það eftir
verður boðað til stofnþings á
því ári og nýtt kennarafélag
tekur til starfa í ársbyrjun árið
2000.
-grh
Akureyri
Kjarnaskógur
50 ára
Skógræktarmenn í Eyjafirði
hyggjast hressa upp á
þekkingu sína á nytja-
sveppum sem fylgja skóg- og
trjárækt á aðalfundi sínum,
sem haldinn er í Kjarnalundi í
kvöld. Guðrún Gyða Eyjólfsdótt-
ir mun flytja fyrirlestur um efn-
ið. Skógræktarfélagið fagnar
því að 50 ár eru liðin frá því
rekstur Gróðrarstöðvarinnar í
Kjarna hófst og fyrstu trén voru
gróðursett í Kjarnalandi. Skóg-
ræktarfélagið hyggst gangast
fyrir afmælisfagnaði síðar á ár-
inu í tilefni þessara tímamóta.
Aðalfundurinn í kvöld hefst kl.
20:00.