Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Síða 10
10 - Miðvikudagur 7. maí 1997
|Oagur-®mrám
H E S T A R
Toppeinkunnir i hverjum fíokki
Eiður frá Oddhóli stakk aðra af. Knapi Sigurbjörn Bárðarson.
HESTA-
MÓT
Kári
Arnórsson
Vorsýningin í Gunnars-
holti, sem var vel sótt að
vanda, hófst með hópreið
hestamanna úr Hestamannafé-
laginu Geysi. Að því loknu
komu fram þeir hestar sem
hæsta einkunn höfðu hlotið í
hverjum flokki.
í flokki 4ra vetra hesta hlutu
9 hestar fullnaðardóm. Einn
þessara hesta, Númi frá Þór-
oddssstöðum í Grímsnesi, bar
þar af, en hann hlaut í einkunn
8,13 fyrir byggingu og 8,21 fyr-
ir hæfileika; aðaleinkunn 8,17.
Þetta er mjög góð frammistaða
og fetar hann þar í fótspor
frænda síns frá því í fyrra.
Númi hefur mjög jafnar ein-
kunnir, en það endurtekur sig
nú ár eftir ár að hestar ættaðir
frá Laugarvatni hljóta svona
jafnar einkunnir sem er auðvit-
að mjög farsælt fyrir ræktunina.
Númi hlaut 8,5 fyrir háls og
herðar og fyrir fótagerð. Hann
fékk 8,5 fyrir skeið, stökk, geðs-
lag og fegurð í reið.
Þetta er glæsilegur foli. Númi
er undan Svarti frá Unalæk og
Glímu frá Laugarvatni sem
hlotið hefur heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og ætlar svo
sannarlega að standa við það.
Annar foli í þessum flokki er
einnig mjög álitlegur, en það er
Tývar frá Kjartansstöðum, son-
ur Þokka frá Garði og Ternu frá
Kirkjubæ. Þessi foli hlaut 8 fyrir
byggingu og 7,70 fyrir hæfileika
skeiðlaus; aðaleinkunn 7,85.
Þetta er góð einkunn hjá 4ra
vetra fola en Tývar hlaut 8,5
fyrir tölt. Þrír aðrir folar, Stæll
frá Austvaðsholti, Hrannar frá
Sæfelli og Baldur frá Skeiðhá-
holti hlutu viðunandi einkunn
fyrir byggingu en hæfileikaein-
kunn var slök. Þeir eiga þó alla
möguleika á að bæta sig þar.
Eiður í sérflokki
Mikil þátttaka var í dómi hjá 5
vetra folum. Þar hlutu 24 hest-
ar fullnaðardóm. Það er alltaf
mjög spennandi að vita hvernig
þeir folar koma undan vetri
sem hátt voru dæmdir á síðasta
ári og svo koma alltaf nokkrir
folar í dóm í fyrsta sinn 5 vetra.
Það er skemmst frá því að segja
að einn foli stakk hina af. Þett
er Eiður frá Oddhóli sem fékk
hvorki meira né minna en 8,53
fyrir hæfileika, þar af þrjár 9,
fyri tölt, vilja og fegurð í reið.
Fyrir byggingu hlaut Eiður 8,15
sem er góð einkunn sérstaklega
fyrir það að hann fer hvergi
niður fyrir 8 og 9 fær hann fyrir
fótagerð. Aðaleinkunn Eiðs er
8,34 og var hvergi ofgefið. Eng-
inn 5 vetra foli náði svo hárri
einkunn í fyrra og aðeins einn í
hittið fyrra, Andvari frá Ey. Eið-
ur er undan. Gáska frá Hofs-
stöðum og Eiðu frá Skáney.
Þessi hestur er Vestlendingur
ræktunarlega séð þó Sauðár-
króks- og Hornafjarðarblóð sé í
framættum, og merkilegt nokk
þá er ekkert Ilrafnsblóð í hon-
um.
Annar í þessum flokki var
Hamur frá Þóroddsstöðum.
Hamur var efstur 4ra vetra
hesta í fyrra. Hann hækkaði nú
í byggingu og hlaut 8,28 í ein-
kunn, þar af tvær 9 fyrir fóta-
gerð og hófa. Fyrir hæfileika
hlaut hann jafnar einkunnir en
hæfileikaeinkunnin er 8,01.
Ilamur hefur lækkað í hæfileik-
um frá því í fyrra en þá hlaut
hann 8,21. Rétt er að taka fram
að nú eru ekki gefin brot, að-
eins hálfar eða heilar tölur og
samráð um niðurstöðu. Þetta er
því ekki alveg sambærilegt við
dóminn í fyrra og mér sýnist
þetta koma mjög vel fram í ein-
kunnum Hams. Hamur er und-
an Galdri frá Laugarvatni og
Illökk frá Laugarvatni. Laugar-
vatnsræktunin er því í fremstu
röð bæði í 4 og 5 vetra ílokki.
Þriðji í röðinni var Skorri frá
Blönduósi. Hann fékk góða
byggingareinkunn 8,23 og þar
af 9 fyrir háls og herðar. Fyrir
hæfileika fékk hann 8,06 og í
aðaleinkunn 8,14. Ilann hefur
því einn fárra hesta bætt sig
verulega frá í fyrra. Skorri er
undan Orra frá Þúfu og Skikkju
frá Sauðanesi sem er undan
Feng frá Bringu.
í ijórða sæti var svo Hilmir
frá Sauðárkróki. Miklar sögur
höfðu gengið um glæsileik
þessa hests og því biðu menn
spenntir eftir því hvernig hann
kæmi út úr dómi. Hann hlaut
mjög góðan byggingardóm 8,30
og trónar þar í efsta sæti ásamt
Roða frá Múla. Fyrir háls og
herðar og fyrir bak og lend
hlaut Hilmir 9. Hæfileikaein-
kunn hans var þokkaleg, þó
hún stæði ekki undir þeim
væntingum sem gerðar voru og
magnaðar höfðu verið upp, eig-
endum til lítillar ánægju. Af
sögusögnum mátti ímynda sér
að þarna væri stórstirni á ferð
og var mönnum þá hugsað til
Galsa hálfbróður hans. Aðalein-
kunn Hilmis er 8,11 sem verður
að teljast góð einkunn hjá 5
vetra fola. Þennan hest vantar
hins vegar ennþá vilja til að
fylgja eftir hæfileikunum. Hann
er mjög stór og þarf því mikinn
kraft í stórbrotnar hreyfingar.
Hann á framtíðina fyrir sér að
þessu leyti. Hilmir er undan
Ófeigi frá Flugumýri og Hervu
frá Sauðárkróki.
Roði frá Múla sem stóð sig
mjög vel í fyrra hlaut nú mjög
góðan byggingardóm 8,30 þar
af 9 fyrir bak og lend og hófa.
Hann missti hins vegar Ilugið
hvað hæfileikana snertir og
lækkaði úr 8,03 í fyrra niður í
7,84. Aðaleinkunn hans er 8,07
sem er svo sem þokkaleg ein-
kunn hjá svo ungum hesti, en
hann hefur átt við heltisvanda-
mál að stríða í vetur segir þjálf-
arinn. Roði er undan Orra frá
Þúfu og Litlu-Þrumu frá Múla.
Þrír fengu yfir 8
Þrír aðrir hestar náðu yfir 8.
Ljósvaki frá Akureyri, sem er
undan Kjarval frá Sauðárkróki
og Kviku frá Brún við Akureyri,
hlaut 8,05 fyrir byggingu og
8,01 fyrir hæfileika; aðalein-
kunn 8,03 og hækkaði frá í
fyrra úr 7,84. Hann hlaut jafnar
einkunnir og er mjög gæfulegur
hestur. Esjar frá Holtsmúla
undan Ófeigi frá Flugumýri og
Freyju frá Glæsibæ II skaust
líka upp yfir 8 og hlaut sömu
einkunnir og Ljósvaki. Sigurður
í Holtsmúla var ekki að þreyta
þennan hest með því að þvæla
honum í dóm í fyrra heldur
leyfa honum að þroskast. Það
gaf ávöxt núna og á örugglega
eftir að skila meiru. Þór frá
Kjarri, sonur Pilts frá Sperli og
Þrumu frá Selfossi, hlaut 7,93
fyrir byggingu þar af 9 fyrir
fótagerð og 9 fyrir hófa sem er
skemmtilegt því ekki standa að
honum hófasterk hross. Fyrir
hæfileika fékk Þór 8,07, jafnar
einkunnir fyrir allt nema skeið
sem á eftir að skila sér; aðal-
einkunn 8.00. Það var eins með
Þór eins og Esjar að hann var
ekki sýndur í fyrra.
Skorri frá Gunnarsholti sem
hlaut einkunn yfir 8 í fyrra fékk
núna 7,92. Aðallega lækkaði
hann í hæfileikum en það gildir
það sama um hann eins og aðra
5 vetra fola sem getið hefur
verið hér að framan að hann á
möguleika á því að bæta sig.
Eldur frá Vallarnesi, Kveldúlfur
frá Kjarnholtum, Öngull frá Ak-
urgerði og Garri frá Grund
fengu allir einkunn yfir 7,80
sem er þokkalegt. Sumir þeirra
dúndruðu þó hrikalega niður í
byggingu eins og Garri frá
Grund sem fer úr 7,97 í fyrra í
7,60 en kostirnir hækka aftur,
7,72 upp í 8,04 þar af 9 fyrir
brokk. Fótaeinkunnin lækkar
úr 8,5 niður í 7,5 sem er magn-
Myndir E.J.
að. Þegar svona miklar breyt-
ingar verða þá vaknar spurn-
ingin hvort ekki sé rétt að dóm-
arar séu með síðasta bygging-
ardóm á endurdæmdum hest-
um til hliðsjónar, eins og áður
var og færi þá rök fyrir breyt-
ingunum. Svona mikli breyting
er geldingardómur. Fáni frá
Kvíarhóli hrapar úr 8,09 í fyrra
í byggingu niður í 7,85 og fleiri
dæmi mætti nefna um stórar
breytingar.
í þessum flokki voru tveir
hestar sem aðeins komu í bygg-
ingardóm. Logi frá Flugumýri
sonur Kveiks frá Miðsitju hlaut
8,18 og Álfur frá Akureyri und-
an Gassa frá Vorsabæ II hlaut
7,98.
Margir 5 vetra hestar lækka í
hæfileikadómi frá síðasta ári og
vekur það upp spurningar um
ofþjálfun á hestunum 4ra vetra.
Er hæsta einkunn
ársins komin fram?
í flokki 6 vetra og eldri hlutu 18
hestar fullnaðardóm. Flestir
hestanna eru 6 vetra en þó
voru tveir 9 vetra, einn 8 vetra
og tveir 7 vetra.
Sex hestar af þessum 18
fengu svo lélegan dóm að geld-
ing hlýtur að blasa við. Tveir
hestar voru byggingardæmdir
og hlaut Prúður frá Kotströnd
sem er sonur Platons frá Sauð-
árkróki 8,15 en Mjölnir sá frægi
töltari frá Sandhólaferju 7,65.
Efstur í þessum flokki var
Glaður frá Hólabaki í Austur-
Hún. Þetta er vel gerður hestur
með 8,28 fyrir byggingu, þar af
9 fyrir hófa. Fyrir hæfileika fær
Glaður 8,54 og þar í tvær 9 fyr-
ir stökk og vilja; aðaleinkunn
8,41. Glaður er skapríkur hest-
ur og á sýningunni á laugar-
daginn var hann greinilega orð-
inn leiður á þessu standi. í
dómi kom hann hins vegar vel
fyrir. Glaður er undan Garði frá
Litla-Garði og Lýsu frá Ilóla-
baki. Garður hefur skilað nokk-
uð góðum afkvæmum, sem yfir-
leitt eru betur gerð en hann
sjálfur. Með þessu afkvæmi er
hann kominn í hóp bestu feðra.
Það verður gaman að fylgjast
með því hvort einhverju kyn-
bótahrossi tekst í sumar að
komast upp fyrir Glað í heildar-
einkunn. Einkunnin 8,41 var
hæsta einkunn fyrir kynbóta-
hross 1995.
Annar í þessum fiokki, sem
líka er 6 vetra eins og Glaður,
var Ásaþór frá Feti. Þarna er
gæðingur á ferð. Hann fær 8,25
fyrir byggingu, þar af þrjár 9
fyrir háls og herðar, samræmi
Glaður frá Hóiabaki efstur í 6 v. flokki. Knapi Sigurður V. Matthíasson er
þriðji frá vinstri.
Númi frá Þóroddsstöðum, frábær sonur Svarts. Knapi Þórður Þorgeirs-
son.