Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Side 4
16 - Fimmtudagur 22. maí 1997 |Dagur-'3Imttmt Umbúðalaust Að skapa sjáJfan sig Lína hefur nú aldeilis þótt frek. Agnarsdóttir g hef oft fengið að heyra það að ég sé frek. Alveg frá því ég var lítil hef ég verið skömmuð fyrir frekju. Mamma kom því snemma inn hjá mér að í stórum systkina- hópi eins og þeim sem ég átti, þýddi ekki að æða áfram án þess að taka tillit til annarra. Og uppeldi hennar hefur skilað árangri, ég er alls ekki eins frek og ég hefði getað orðið, þökk sé uppeldinu og minni eigin sjálfs- sköpun. En auðvitað hefur viss skammtur af frekju minni oft komið sér vel. Um leið geri ég mér grein fyrir að þessi frekja hefði heitið öðru nafni hefði ég fæðst sem strákur. Konur eru nefnilega frekar, en karlar ákveðnir. Ef kona er ákveðin og fylgin sér og sínum skoðunum er hún dæmd frekja, gribba og brjáluð brussa. Kannski vegna þess að konum hættir til að blanda tilfinningum og per- sónulegum skoðunum saman við málefni sem þær þurfa að kljást við þegar þær vinna stjórnunarstörf. Pær vilja í lengstu lög komast hjá því að móðga eða særa og eiga því erf- iðara með að setja mörk í sam- skiptum við aðra. En svo eru auðvitað til bölvaðar frekjur af báðum kynjum og frekja þeirra á meira skylt við persónuleika- truflanir en hæfileika til að stjórna með ákveðni og heil- brigðum sjálfsstyrk. Óþolandi frekjudósir Orðið „prímadonna" hefur fengið yfirfærða merkingu í daglegu tali og þýðir þá hrein- lega frekjudós eða frekjudolla, þ.e. manneskja sem lítur mjög stórt á sig og sker sig úr hópi manna með óæskilegri og oft dónalegri hegðun og fram- komu. Prímadonnur skortir til- litssemi og hógværð og eru oft yfirgengilega tilætlunarsamar og sjálfsuppteknar. Allir þurfa að skilja prímadonnuna, setja sig inn í hennar mál, snúast í kringum hana, beygja sig og sveigja svo hún fari ekki í fýlu eða móðgist. Prímadonnur eru ekki bara í leikhúsum og óper- um, þær eru út um allt, í öllum listgreinum, stjórnmálum og vinnustöðum. Þær eru haldnar primmustælum“ sem eru bæði þreytandi og óþolandi eiginleik- ar til lengdar og reyna mjög á þolrif allra samverkamanna. I allt of mörgum tilvikum kemst primman" upp með að pína samstarfsfólk sitt til eftirgjafar með hægfara þrýstingi eða nöldri. Sama, rispaða grammi- fónplatan er sett á hvað eftir annað máli sínu og rökum til stuðnings þar til allir verða úr- vinda og láta undan. Svosem þekkt aðferð í allrri samninga- tækni, að þreyta andstæðinginn með orkusogi. Stælarnir geta verið af ýmsum toga, en oftast orsakast þeir af því að primm- an sér ekkert nema sjálfa sig og getur alls ekki hlustað á aðra og finnst hennar hagsmunum og vilja stöðugt vera ógnað ef hún fær ekki sínu fram. Allir eiga að skilja primmuna, en hún skilur engan. Pegar primmustælar ganga út í öfgar hjá vissum einstaklingum geta þeir orðið sjúklegir. Að elska eigin spegilmynd í geðlæknisfræðinni má finna sjúkdómsgreiningu sem getur vel átt við geggjaðar primmur. Það er persónuleikatruflun sem er kennd við sjálfan Narcissus hinn gríska, sem varð ástfang- inn af eigin spegilmynd. Helstu einkenni einstaklinga með slíkar truflanir eru stór- fenglegar hugmyndir um eigið mikilvægi og ágæti, stöðug þörf fyrir aðdáun annarra, en um leið skortur á innlifun í tilfinn- ingar hinna sömu, hluttekningu eða samúð, sem leiðir til kald- lyndis. Þessir einstaklingar of- meta getu sína og afrek og belgja sig út af monti og tilgerð. Þeir álíta að allir aðrir liafi sömu skoðun og þeir á eigin getu þeirra og afrekum og rek- ur í rogastans þegar þeir njóta ekki hrifningar og hóls sem þeir stöðugt búast við og ætlast til að fá. í upphöfnu sjálfsáliti þeirra felst um leið vanmat á framlagi og afrekum annarra. Þessir einstaklingar eru oft haldnir ranghugmyndum um takmarkalausa velgengni, völd, snilld, fegurð og fyrirmyndar ástarsambönd, sem þeir halda að engum nema þeim einum geti hlotnast að eiga í. Þeir eru í stöðugum samanburðarleik við frægt forréttindafólk sem það vill helst líkjast. Homo mobile Fólk með þessar persónuleika- truflanir trúir því að það sé al- veg sérstakt og einstakt í sinni röð og ætlast til þess að aðrir trúi því líka. Því finnst að enginn skilji það nema þá þeir sem eru af sama sauðahúsi og það sjálft og það myndar helst ekki tengsl við aðra en þá sem eru sérstak- ir, hátt settir, einstakir og full- komnir. Þeir eru svo illa á sig komnir að þeir geta ekki staðið í biðröð t.d. í banka eða í öðr- um opinberum erindagjörðum og þeir véfengja alltaf heilindi annarra, trúnað og traust. Sem betur fer getum við afstýrt því að frekja okkar verði sjúkleg, en til þess þurfum við að vera tilbúin til að þroska okkur og vera móttækileg fyrir endurnýj- un lífdaga, andlegri uppbygg- ingu og leiðsögn. Við höfum öll möguleika á að fæðast aftur með því að skapa okkur sjálf og losna þannig undan áþján frekju og primmustæla. Við er- um ekki steinrunnin stytta af manni, heldur homo mobile, hinn hreyfanlegi maður svo vitnað sé í ágætis grein Vilborg- ar Halldórsdóttur „Hvers vegna ætti ég að finna lífi mínu til- gang“ í Lesbók Morgunblaðsins sl. laugardag. Erótísk pólitík Davíð Þór Jónsson, brottfallinn guðfræði- nemi, Radíusbróðir og útvarpsmaður er í viðtali dagsins í Degi-Tímanum í gær í tilefni þess að hann hefur verið ráðinn ritstjóri tímaritsins Bleiks og blás. Davíð er borubrattur og segist ætla að gefa út blað um kynlíf en í bland verði fjallað um þjóðfélagsmál og pólitík með þeim hætti að blaðið hrifsi til sín frum- kvæði í umræðunni. Litirnir bleikt og blátt munu þannig væntanlega fá nýja vídd, nýja pólitíska skýrskotun þar sem blátt vísar til Sjálf- stæðisflokksins en bleikt til Blairískrar jafnaðarmanna- hreyfingar sem innbyrt hef- ur Kvennalistann. íslensk pólitík Ititstjórinn verðandi gefur það út í viðtalinu að tímarit um kynlíf geti tekið pólitíska afstöðu auk þess sem kynlíf sé líka menning, bókmennt- ir og listir. Þetta er auðvitað hverju orði sannara hjá Davíð Þór. Erótísk pólitík hefur iðulega vakið athygli í heimspressunni þó íslensk pólitik hafi verið áberandi snauð af erótfk. Það er einna helst að ein og ein blautleg vísa hafi skotist fram í bakherbergjum á Al- þingi þegar næturfundir hafa staðið lengi fyrir jólin og kaupstaðalykt komin af mönnum. Erótíkin í bók- menntunum og listum hefur hins vegar verið öllu meiri í gegnum árin enda löng hefð í landinu fyrir því sem nær allt aftur til Bósasögu. Davíð Þór og byltingin Það er því mikil kynlífsbylt- ing hjá Davíð Þór að draga fram erótíkina í íslenskri pólitík. Eftir því hefur lengi verið beðið og næsta víst að áhugamönnum um stjórn- mál mun ljölga til mikilla muna. Stóra byltingin hjá Davíð Þór verður hins vegar sú að stórfjölgíi í hópi þeirra sem skoða myndir af alls- beru fólki sér til dundurs. Davíð ætlar greinilega að nýta sér tækni Playboy tímaritsins sem blandar saman þjóðlífsviðtölum og myndum af berum konum. Playboy gerir þetta svo karl- arnir geti sagst kaupa og lesa blaðið út af þjóðlífsvið- tölunum! Eins verður með Bleikt og blátt. Menn munu loksins geta beðið um það í sjoppum - og sagst vera að kaupa það vegna þjóðlífs- umfjöllunarinnar. Garri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.