Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Fimmtudagur 22. maí 1997 Jlagur-®mmn FÓLK R eykj av ík u rlistin n fagnar kosiungum að ári Ingibjörg Sólrún var veislustjóri á fagnaði Reykjavíkurlistans á Hótel Borg að kvöldi annars hvítasunnudags. Það var svo gaman að borgarstjóri spurði „af hverju gerum við þetta ekki oftar“ og svarið var í salnum: „það gerum við“. Stefnt er á feiknalegt gleðihóf að kvöldi kjördags eftir ár, en smœrri áföngum verði fagnað innilega fram að því. Fjörið á Borginni gaffullt tilefni til. Guðlaugur Tryggvi var með myndavél: Borgarstjóri og Guðrún Ogmunds voru teknar í hristisveitina, ásamt Pétri Jónssyni (sjá breiða bak- ið). Annars er Guðrún núna á ferð með Hugleik og leikur símastúlku í Ráðhúsinu! Margrét Pálma fór hreinlega á feikna- legum kostum með óléttuna út í loftið - hún sagðist hlakka til að bæta við nýj- um Reykvíkingi í sumar undir styrka stjórn Regnbogans. Stuðið var mikið í söngnum við þau tíðindi. ignúsdóttir borgarlull.nii n,»n, "'j!"i’SuTupp^ Steinunn Valdís og Ólafur maður hennar sátu ásamt Bergþóri baráttu- glaða við borð „fótgönguliða11 - en á næsta borði sat stuðningshópur sem kom frá Akureyri. Jon Baldvin, Bryndís og Gunnar Giss við krataborðið, en hvað er Guðný Guðbjörns að gera þarna annað en bræða saman sjónarmið? Aðalræðumaður kvöldsins: Einar Már Guðmundsson verðlaunaskáld. Fór yfir sögu feðra sinna og mæðra í bænum og lagði út af. Eins og venju- lega var góður róm- ur gerður að róm- miklum flutningi skáldsins.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.