Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Fimmtudagur 22. maí 1997
Jlagur-®mmn
FÓLK
R eykj av ík u rlistin n
fagnar kosiungum að ári
Ingibjörg Sólrún var veislustjóri á fagnaði Reykjavíkurlistans
á Hótel Borg að kvöldi annars hvítasunnudags. Það var svo
gaman að borgarstjóri spurði „af hverju gerum við þetta ekki
oftar“ og svarið var í salnum: „það gerum við“. Stefnt er á
feiknalegt gleðihóf að kvöldi kjördags eftir ár, en smœrri
áföngum verði fagnað innilega fram að því. Fjörið á Borginni
gaffullt tilefni til. Guðlaugur Tryggvi var með myndavél:
Borgarstjóri og Guðrún Ogmunds voru teknar í
hristisveitina, ásamt Pétri Jónssyni (sjá breiða bak-
ið). Annars er Guðrún núna á ferð með Hugleik og
leikur símastúlku í Ráðhúsinu!
Margrét Pálma fór hreinlega á feikna-
legum kostum með óléttuna út í loftið -
hún sagðist hlakka til að bæta við nýj-
um Reykvíkingi í sumar undir styrka
stjórn Regnbogans. Stuðið var mikið í
söngnum við þau tíðindi.
ignúsdóttir borgarlull.nii n,»n, "'j!"i’SuTupp^
Steinunn Valdís og Ólafur maður hennar sátu ásamt Bergþóri baráttu-
glaða við borð „fótgönguliða11 - en á næsta borði sat stuðningshópur sem
kom frá Akureyri.
Jon Baldvin, Bryndís og Gunnar Giss við krataborðið, en hvað er Guðný
Guðbjörns að gera þarna annað en bræða saman sjónarmið?
Aðalræðumaður
kvöldsins: Einar
Már Guðmundsson
verðlaunaskáld. Fór
yfir sögu feðra
sinna og mæðra í
bænum og lagði út
af. Eins og venju-
lega var góður róm-
ur gerður að róm-
miklum flutningi
skáldsins.