Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Qupperneq 11
Jbtgur-'®tOTÓm
Fimmtudagur 22. maí 1997-23
VIGDIS
STEFÁNSDÓTTIR
SKRIFAR
Vigdís svarar í símann í dag að venju, milli klukkan 9 og 10.
Ertu með spurningu, viltu ráð eða viltu gefa, skipta eða ... láttu
Vigdísi vita í síma 460 6100. Algjör trúnaður og nafnleynd ef þú
vilt. Símbréf til Vigdísar? Þá er númerið 551 6270.
Tölvupóstur til Vigdísar? Þá er netfangið vigdís@itn.is
Hvað er í matinn?
Pasta
með Pesto sósu.
Þessi réttur er sérlega einfaldur
og þægilegur og að sjálfsögðu
ódýr. Uppskriftin er fyrir 2-4
eftir magastærð.
350 gr. pastarör
1 tsk. olia
1 laukur, smátt skorinn
2 hvítlaukslauf pressuð, eða 1 tsk.
hvítlaukskrydd
4 tsk. pesto sósa (fœst tilbúin)
1 dl af rjóma eða mjólk
um 1 dl af rifnum osti, helst Parm-
esan
salt, pipar
Sjóðið pastað í léttsöltu vatni.
Hitið olíuna á pönnu og léttsteikið
laukinn og hvítlaukinn. Setjið pesto
sósuna, rjótnann, ostinn og kryddið
samanvið og hitið aðeins, þetta má
ekki sjóða. Látið vatnið renna af
pastanu, setjið það í skál og hellið
sósunni yfir og blandið vel saman.
Berið fram með góðu salati, grófu
brauði og ísköldu vatni.
HVAÐ A EG AÐ GERA
Meðalalykt í skápum
Ég er nýflutt og í einum skápnum í eldhúsinu er
svo mikil meðalalykt. Þetta er bagalegt þar sem
við ætlum ekki að nota skápinn sem lyfjaskáp og
ekkert sem við höfum reynt hefur dugað.
Það sem mér dettur fyrst í hug er; að iáta edik í
skál og skilja eftir yfir nótt. Edik er gott til að
eyða lykt. Ef það dugar ekki má reyha áð þvo all-
ann skápinn að innan úr blöndu af klóri og vatni
og sápuþvo vel á eftir og láta skápinn standa op-
inn í a.m.k. sólarhring. Síðasta úrræði væri að
mála skápinn að innan ef hann er þannig að það
er hægt.
Til _
umhugsunar
í kristinni trú er til það sem
kallað hefur verið „Gullna
reglan" og oft haft á orði að
fari fólk eftir þessu eina boð-
orði, sé heiminum borgið.
Þegar málið er skoðað,
kemur í ljós að í flestum öðr-
um trúarbrögðum er svipað
uppi á teningnum og hér má
sjá nokkur slík boðorð.
Það sem þér viljið að aðrir
gjöri yður, það skuluð þér og
þeim gjöra.
Kristin trú, Matteus 7:12.
Þér skuluð eigi særa aðra
með því sem þér vitið að
særir yður.
Buddatrú. Udana-Varga
5:18.
Lítið á ávinning nágrannans
sem yðar eigin og missi hans
sem yðar.
Taoismi. Tai Shan Kan
Ying Pien.
Það sem þér mislíkar skaltu
eigi gera náunga þínum. Það
er grundvöllur laganna, allt
annað eru útskýringar.
Gyðingatrú. Talmud,
Shabbat 31 a.
Þetta er niðurstaðan: Ekki
gera öðrum það sem myndi
valda þér sársauka ef það
væri yður gert.
Brahma. Mahabharata
5:1517.
Hápunktur umhyggjunnar er
sannarlega: Gerið öðrum eigi
það sem þér viljið ekki láta
gera yður.
Confucismi. Analects
15:32
Enginn ykkar er sanntrúað-
ur fyrr en hann óskar bróður
sínum það sem hann óskar
sér.
Islam. Sunnah.
Gengur símiim fyrir?
Mig langar til að þusa
dálítið og segja frá
reynslu sem ég varð
fyrir. Ég var stödd í Hag-
kaup, nánar til tekið í gler-
augnaversluninni og ætlaði
að skoða sólgleraugu. Við af-
greiðslu voru karlmaður og
ung stúlka. Þegar ég kom
inn í verslunina var þar fólk
fyrir og ég beið róleg. Svo
losnaði stúlkan og enginn
beið nema ég, svo ég taldi
víst að hún myndi afgreiða
mig. Nei, aldeilis ekki. Hún
sneri sér undan og náði í
körfu með gleraugum og tók
upp símann og hringdi eitt-
hvert til að fá upplýsingar
um símaresept varðandi
þessi gleraugu. Ég beið
smástund en fór svo án þess
að ljúka erindi mínu. Mér
flnnst svona framkoma alveg
ómöguleg. Þegar viðskipta-
vinur er á staðnum á hann
Frá lesendum
auðvitað að ganga fyrir sím-
anum, ég tala nú ekki um ef
ekki er verið að hringja til
viðkomandi, heldur er hann
að hringja sjálfur.
Annars er afgreiðslufólkið
í stórmörkuðum yfirleitt
mjög kurteist og elskulegt og
vonandi er þetta bara eitt-
hvað sem aldrei gerist aftur.
Dálítið sár lesandi.
TEITUR ÞORKELSSON
skrifar
ÍKaíró
s
IKaíró sem annarstaðar í
heimi múslima, ræður ein
grundvallarregla allri kven-
tísku. Ekkert hörund má vera
sýnilegt. Allt sem konur klæðast
á að vera síðerma og skósítt og
hár þeirra á að vera hulið.
Meira að segja skutlurnar í
magadansarabransanum verða
að hlíta lögum Kóransins og
notast því við örþunna blæju
sem umlykur mittið. í svefnher-
berginu gilda hins vegar önnur
lögmál. Gift kona má klæðast
hverju sem er fyrir framan eig-
inmann sinn, allir draumar
mega rætast. Hefðbundin og
klæðamikil nærföt seljast ekki
einu sinni. Þetta er ein af and-
stæðum Egyptalands, konurnar
eru með blæju á götum úti en
undir niðri þrá þær hið kyn-
þokkafulla og æsandi. Á undir-
fatamörkuðum borgarinnar
eyða karlmenn sparifé sínu í
heitustu undirföt heimsins
handa eiginkonum sínum og
ungar konur koma til að búa
sig undir brúðkaupsnóttina:
„Það er allt í lagi með losta og
tælingu svo lengi sem hún er á
milli hjóna sem elska hvort
annað“, heyrist mild rödd segja
handan einnar blæjunnar.
Múhameðstrú er öllu af-
slappaðri en Kaþólska kirkjan
hvað varðar getnaðarvarnir og
kynlíf til ánægju. Enda virtist
sjálfur Múhameð ekki hafa haft
neitt að athugá við fjörugt kyn-
líf hjóna á milli. Sjálfur átti
maðurinn níu konur.
AKUREYRARBÆR
Skólaskrifstofa
Akureyrar
Starf skólafulltrúa Akureyrarbæjar er laust til
umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun eða
hliðstæða menntun. Einnig er æskilegt að hann hafi
þekkingu og reynslu af stjórnunarstörfum í grunn-
skóla.
Auk starfa fyrir skólanefnd bæjarins, þarf viðkom-
andi að vera við því búinn að þurfa að sinna verk-
efnum á fleiri sviðum innan fræðslu- og frístunda-
sviðs, en þar er verkefnaskipting nefnda og deilda í
endurskoðun.
Upþlýsingar um starfið veita sviðsstjóri fræðslu- og
frístundasviðs í síma 460 1461 og starfsmannastjóri
Akureyarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild í
Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 8. júní.
Starfsmannastjóri.
AKUREYRARBÆR
Lóðahreinsun og
fegrunarvika
Eigendur og umráðamenn lóða á Akureyri eru
áminntir um að hreinsa af lóðum sínum allt sem
er til óþrifnaðar og óprýði og hafa lokið því fyrir
31. maí nk.
Hin árlega fegrunarvika á Akureyri er ákveðin 26.-
30. maí nk. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu fjar-
lægja rusl sem hreinsað hefur verið af íbúarðhúsa-
lóðum og sett er í hrúgur á götukanta framan við
lóðir eftirgreinda daga.
Innbær og suðurbrekka
sunnan Þingvallastrætis og
austan Mýrarvegar.
Lundahverfi og Gerðahverfi.
Miðbær, Oddeyri og ytri-
brekka norðan Þingvalla-
strætis og austan Mýrarveg-
ar.
Hlíðahverfi og Holtahverfi.
Síðuhverfi og Giljahverfi.
Mánudag 26. maí:
Þriðjudag 27. maí:
Miðvikudag 28. maí:
Fimmtudag 29. maí:
Föstudag 30. maí:
Nánari upplýsingar varðandi hreinsunina verða
gefnar á skrifstofu heilbrigðiseftirlitsins, Gránufé-
lagsgötu 6, sími 462 4431.
Umráðamenn fyrirtækja eru hvattir til að taka þátt í
hreinsunarátakinu, raða snyrtilega upp heillegum
hlutum og henda því sem ónýtt er.
Gámar fyrir rusl (ekki tað) verða staðsettir í hest-
húsahverfunum í Breiðholti og við Lögmannshlíð
þessa viku. Hestamenn eru hvattir til að nýta sér
þessa þjónustu.
Athygli er vakin á því að heilbrigðisnefnd er heimilt
að fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök að
undangenginni viðvörun með álímingarmiða.
Sérstaklega er minnt á að Vinabæjamót verður á
Akureyri 23.- 27. júní.
Sýnum gestum okkar hvað bærinn okkar getur verið
snyrtilegur.
Heilbrigðisf ulltrúi.