Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Qupperneq 2
2 - Föstudagur 27. júní 1997
Jkgxxr-'Sfenum
F R É T T I R
„Á köldum klaka" hefur vakið athygli víða erlendis. Kanadískur pistlahöfundur fjallaði nýlega um myndina og
þótti hún góð.
Sérvitringar sem
drekka breimivín
Heiti Potturinn
ÆT
Iheita pottinum í nýju sund-
lauginni á Selfossi var í
gær verið að ræða um breytt-
an listaverkasmekk ráðmanna
í bæjarfélaginu. Bentu menn á
að nýlega hafi bæjarráði bor-
ist erindi frá Grétari Hjartar-
syni listmálara þar sem hann
bauð Selfossbæ 5 málverk til
kaups. Grétar hafði fulla
ástæðu til að ætla að bæjar-
yfirvöld kynnu að meta list
hans en fyrir nokkrum árum
keypti þáverandi dómsmála-
ráðherra, Selfyssingurinn Óli
Þ. Guðbjartsson, fimm mál-
verk af Grétari sem áttu að
prýða lögreglustöðina á Sel-
fossi. Nú brá hins vegar svo
við að bæjarráð hafnaði
þessu tilboði Grétars, sem
hlýtur að teljast listsöguleg
kúvending........
ÉT
Iheita pottinum í Garðabæ
töldu menn einsýnt að Ingi
Björn Albertsson yrði ráðinn
þiálfari Stjörnunnar í stað
Þórðar Lárussonar. Þar fengu
Stjörnumenn vanan mann en
Ingi Björn hefur tvisvar verið
rekinn sem þjálfari....
að var einnig sagt í heita
pottinum að leitað hafi
verið til Guðjóns Þórðarsonar
um að þjálfa Stjörnuna, en
Guðjón hafi svarað því til að
hann treysti sér ekki til að
blása lífi í líkl!.
Miklar blaðafréttir hafa
verið af verkfallinu á
Sjúkrahúsinu á Húsavík ekki
sist af Friðfinni framkvæmda-
stjóra sem gengið hefur í hin
ýmsu störf, og myndir verið
birtar af honum að vaska upp
og skúra. Þegar verkfallsfólk-
ið var að greiða atkvæði í
gærmorgun kom til tals að
gefa út bókaflokk um Friðfinn
í anda Doddabókanna. Þær
gætu þá heitið: „Friðfinnur
eldar“, „Friðfinnur skúrar“,
„Friðfinnur vaskar upp“, „Frið-
finnur sker upp“, „Friðfinnur
bjargar konu í bamsnauð"...
Kvikmyndin
„Á köldum klaka“
sýnd í Kanada.
Ánægjuleg tilbreyting
að sjá íslendinga
gera grín að sjálfum
sér í stað þess
að gorta, segir
gagnrýnandi.
Kvikmynd Friðriks Þórs, „Á
köldum klaka“ var nýlega
umtalsefni pistlahöfundar
í kanadíska vikublaðinu Vue
sem gefíð er út í Edmonton.
Pistlahöfundurinn, Brad Willis,
segist hafa sérstakan áhuga á
öllu íslensku (engin skýring
hvers vegna!) og því hafi hann
heldur betur orðið ánægður yfir
því að íslensk mynd væri tii sýn-
inga á alþjóðlegri kvikmyndahá-
tíð í Edmonton. Willis var
greiniiega ekki sá eini sem hafði
áhuga á íslandi því um 50
manns þurftu frá að hverfa þeg-
ar hann fór að sjá myndina.
„Kannski vegna þess að í Edm-
onton búa mörg hundruð
manns sem rekja rætur sínar til
íslands?" segir Willis.
Skemmst er frá því að segja
að Willis var yfir sig hrifinn af
myndinni. Sérstaklega þótti
honum ánægjuleg tilbreyting að
sjá íslendinga gera grín að sjálf-
um sér í stað þess að gorta af
sterkasta manninum, fallegustu
konunni o.s.frv. „í myndinni eru
íslendingar sýndir sem saman-
safn af sérvitringum sem búa á
fámennum bóndabýlum, borða
svið og drekka brennivín," segir
Willis m.a. í pistlinum.
Sögurnar eru sannar
En þótt mont íslendinga fari í
taugarnar á Willis segir hann
að hið furðulega sé að flest sem
þeir hreyki sér af sé í raun
sannleikur. „íslendingar eru
mjög sennilega ein mesta bók-
menntaþjóð heims, ísland á í
alvörunni 9 stórmeistara í skák,
sterkasta mann heims og nób-
elskáldið Halldór Laxness er ís-
lenskur. Og það þrátt fyrir að
þarna búi aðeins 260 þúsund
hræður,“ segir Willis.
Mitt í allri þessari heims-
borgaramenningu greinir Wiliis
þverstæðu: íslendingar trúa all-
ir á drauga og yfirnáttúruleg
fyrirbæri. „Ég, sem mikill spek-
úlant um íslenska menningu,
hef aldrei geta skilið þetta. En
eftir að hafa séð myndina „Á
köldum klaka“ örlar þó á skiln-
ingi. Það er landið sjálft, ísland,
sem fær fólkið til að trúa.“ AI
Dalvík
Mikil
hreyfíng
áfólki
Mikil hreyfing hefur verið
á íbúum Dalvíkur að
undanförnu. Þannig hafa
um 50 manns flust frá Dalvík á
tímablilinu frá 6. mars til 16.
júní, en 27 komið í staðinn. Þetta
þýðir fækkun í bæjarfélaginu um
23 en að sögn Guðrúnar Ingva-
dóttur, sem sér um íbúaskrán-
ingu á bæjarskrifstofunni á Dal-
vík, bíður aðflutt fólk skráningar,
auk þess sem von er á fleirum
inn í bæjarfélagið. „Ég held að
það sé ekki hægt að kalla þetta
fólksflótta, heldur flytur fólk á
vorin eins og t.d. kennarar og
svo kemur nýtt fólk í staðinn
seinnipart sumars. Það er að
eiga sér stað mjög mikil breyting
hjá kennaraliðinu hérna,“ sagði
Guðrún og útskýrði að alltaf væri
mikil hreyfing á vorin þótt nú
væri sennilega óvenju mikið um
flutninga. BÞ
Öxnadalur
Minnis-
varði um
Jónas
Minnisvarði um Jónas Hall-
grímsson skáld verður af-
hjúpaður í Jónasarlundi í Öxna-
dal á morgun, laugardag, kl.
14. I ár eru liðin 190 ár frá því
þjóðskáldið og náttúrufræðing-
urinn Jónas fæddist að Ilrauni í
Öxnadal og af því tilefni er
varðinn settur upp. Við athöfn-
ina í Jónasarlundi á morgun
mun Hannes Pétursson skáld
flytja ræðu um Jónas, Mánakór-
inn syngur undir stjórn Micha-
els Jóns Clark og að athöfn lok-
inni verður kaffisamsæti í Gisti-
heimilinu að Engimýri í Öxna-
dal. -sbs.
FRETTAVIÐTALIÐ
BnnBi
ísland miðpunktur sögunnar
Day Olin Mount
Sendiherra Bandaríkjanna á íslandi
Forseti Bandaríkjanna sendi
Forseta íslands heillaóska-
skeyti á þjóðhátíðardaginn
þar sem óskað er eftir sam-
starfi þjóðanna til að minnast
1000 ára afmœli fundar Leifs
heppna á Ameríku,
- Hvað stóð í skeytinu?
„í skeytinu var geflð til kynna, með til-
liti til ársins 2000 og fundar Leifs Eiríks-
sonar á Ameríku, að við vildum með
einhverjum hætti viðurkenna þann at-
burð. Vissulega hafa óformlegar umræður
hafist á milli ríkisstjórnanna og ég myndi
segja að við værum á hugmyndastigi.“
- Hvað telurðu líklegt að þetta sam-
starf muni leiða af sér?
„Við munum skoða margar hug-
myndir. Sumar þeirra eru á sviði ríkis-
stjórnanna, aðrar á sviði einkaaðila.“
- Geturðu nefnt dœmi um þœr hug-
myndir sem ígangi eru?
„Ein þeirra er að byggja á nýlegum
samningi Landsbókasafns og Cornell
háskóla um að setja í stafrænt form ís-
lenska safnið sem er það þriðja stærsta
í heiminum, koma því á alnetið og gera
það aðgengilegt fyrir náms- og fræði-
menn. Önnur hugmynd sem við höfum
rætt ojj' ér í framkvæmd er stofnun Vil-
hjálms Stfefánssonar sem verið er að
koma á fót á Akureyri. Svo má nefna
samning sem við höfum nýlega undirrit-
að við íslensk stjórnvöld og tekur til ís-
lenskra skólabarna. I honum felst að
þau rnæli umhverfið og setji niðurstöður
á alnetið. Það eru nú 53 lönd sem taka
þátt í þessu, þar af öll Norðurlöndin.
Með þessum upplýsingum er hægt að
hugsa sér atburð árið 2000 sem myndi
gera okkur kleift að eiga samræður,
ekki aðeins á milli tveggja landa, heldur
á milli ungs fólks um allan heim, án
þess að mikið kosti.“
- Felur þetta samstarf íslendinga
og Bandaríkjamanna í sér viðurkenn-
ingu Bandaríkjanna á því að Leifur
Eiríksson tilheyri íslendingum?
„Frá mínum sjónarhóli er mikilvægt
að skoða söguna. Líta frekar á hvað
gerðist en sleppa ágreiningi um hvenær
þjóðernið varð til. Þeir geta rætt það
sem vilja. Hvað mig varðar er kynngi
sögunnar miðpunktuð umhverfis ísland.
Þær kynslóðir Bandaríkjamanna, Kan-
adamanna og íslendinga sem munu
fagna tímamótunum árið 2000 munu
fagna hinni stórkostlegu sögu sem þarna
liggur. Viðurkenning þessara afreka
mun vekja athygli heimsins á þessum
heimshluta og þá sérstaklega fslandi. Þá
held ég að umræðan um hver eigi Leif
Eiríksson muni ekki skipta máli. Mikil-
vægast er að við deilum með okkur sög-
unni og látum hana tala fyrir sig.“
- Er enn kennt í bandarískum skól-
um að Kólumbus hafi fundið Ameríku?
„Börnum mínum, sem gengu í skóla í
Virginíu-fylki, var kennt að Leifur Ei-
ríksson hafi fundið Ameríku. Þetta hef-
ur breyst á undanförnum árum,
kannski ekki í hverjum skóla. Vissulega
er Kólumbusi eignaður, réttilega, ein-
hver heiður. En mínum börnum var
kennt að víkingar hafi komið hingað
fyrst. Ég held að áhugi Bandaríkja-
manna á fslandi og Norðurlöndunum sé
að aukast. Hann hefur verið sprottinn af
sögulegum ástæðum og þá sérstaklega á
íslandi. Þessi atburður árið 2000 mun
auka þann áhuga og við getum notað
hann til að upplýsa fólk. Svo eru nokkur
samnorræn verkefni í gangi sem viður-
kenna framlag norðurlanda. Ég tel þau
líka viðeigandi, ísland hefur svæðislega
tengingu við þessi lönd. Þannig að við
erum ekki að útiloka hluti íyrir ná-
kvæmnis sakir. rm