Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Blaðsíða 10
10 - Föstudagur 27. júní 1997
®agur-^mtmri
KNATTSPYRNA
Molar
• Evrópumeistarar Borussia
Dortmund hafa fengið nýjan
þjálfara, Nevio Scala, fyrir
næsta tímabil. Scala þjálfaði áð-
ur ítalska liðið Perugia.
• Fabizio Ravanelli segir að ef
hann gangi til liðs við Liverpool,
sem hann gjarnan vill, muni
hann ganga í að fá liðið til að
leika vináttuleik við sitt gamla
félag, Juventus, til minningar
um þá sem létu lífið á Haysel
Ieikvanginum í Brussel er Li-
verpool og Juve léku þar til úr-
slita um Evrópubikarinn.
• Fyrirliðinn og varnarjaxlinn
hjá AC Milan, Franco Baresi,
hefur nú endanlega ákveðið að
leggja skóna á hilluna.
• Alþjóða knattspyrnusam-
bandið hefur varað brasilísku
stjörnuna Ronaldo við því að
kaupa upp samning sinn við
Barcelona. Petta er ólöglegt,
segir FIFA og sambandið hefur
einnig varað Inter á Ítalíu við
frekari afskiptum af málinu.
• Þýski landsliðsmaðurinn,
Lothar Matthaus hjá Bayern
Munchen, hefur í hyggju að
hætta eftir að Thomas Helmer,
sem tók við fyrirliðastöðunni
hjá Bayern af Matthaus, hefur
gagnrýnt hann opinberlega.
• Landsliðsmennirnir frá Uru-
guay, Daniel Fonseca, Enso
Francescoli og Jose Herrera,
sem og forseti ítalska liðsins
Cagliari sem þeir félagar léku
með á sínum tíma, hafa verið
sýknaðir af ákæru um skattsvik
á Ítalíu.
• Þýsku meistararnir í Bayern
Munchen hafa fengið til liðs við
sig franska vinstri bakvörðinn
Bixente Lizarazu frá Atheltic
Bilbao. gþö
HANDBOLTASTJÖRNUR
Þvo bilana
ókeypis
KA-strákarnir ætla að bregða
fyrir sig þvottakústum á af-
mælishátíð sem Olís heldur á Ak-
ureyri á laugardaginn. Þá ætla
þeir að gera bíla bæjarbúa eins
og nýja eða allt að því - og það
án endurgjalds.
Olís er 70 ára í ár eins og al-
kunna er. Afmælishátíðin við
þjónustustöð félagsins á Akureyri
er einn liður afmælishaldsins.
Auk þess að bjóða upp á OL-
ís, kaffísopa og kók, verður boðið
upp á ýmsa skemmtan. Þar kem-
ur fram djasshópur frá Tónlistar-
skóla Akureyrar milli 13 og 14
auk þess sem íjölbreytt leiktæki
eru á staðnum fyrir börnin. -JBP
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
T T I R
I
KNATTSPYRNA
Vestmannaeyingar fagna fyrsta marki sínu á Akureyrarvelli í gærkvöld.
Mynd: GS
Urslit í Coca Cola bikarnum
Ljóst er orðið að eftirfar-
andi lið komast áfram í 8-
liða úrslit í Coca Cola-bik-
arkeppninni í knattspyrnu:
Breiðablik, Leiftur, Þróttur, Val-
ur, KR, ÍBV og Keflavík. Fram-
lengja þurfti í leik FH og
Skallagríms og voru úrslit ekki
ljós þegar blaðið fór í prentun.
Dregið verður um hvaða lið
mætast í 8-liða úrslitum í dag.
Úrslit Ieikjanna í gær voru eft-
irfarandi:
KA-ÍBV 1:6
FH-Skallagrímur 1:1 (framl.)
Keflavík-Fram 1:0
Stjarnan-KR 1:5
KNATTSPYRNA
Toshack til
Týridands
John Toshcack, fyrrum þjálf-
ari Deportivo Coruna, er ekki
á leiðinni til Englands eins og
margir vonuðust eftir. Þessi
fyrrum Liverpool og welski
landsliðsmaður er nú að taka
við tyrkneska liðinu Bsektas,
sem Eyjólfur Sverrisson lék
með fyrir nokkrum árum.
Margir reiknuðu með því að
John Toshack kæmi nú heim
eftir langa útivist í Portúgal og
á Spáni og tæki við Liverpool,
sem ekki gekk sem best á síð-
ustu leiktíð. Reyndar losnar
ekki sá feiti biti í enska boltan-
um að Toshack sé ekki orðaður
um leið.
Everton, sem lá hryggbrotið
hjá garði eftir að Andy Gray
sagði nei takk er hann var beð-
inn að taka liðið að sér, hefur
nú ráðið Iloward Kendall enn á
ný, nú í þriðja sinn. Kendall
þjálfaði Everton á velmektar ár-
um þess og gerði liðið í tvígang
að enskum meisturum, bikar-
meisturum og Evrópumeistur-
um bikarhafa. Stjórnendur
Sheflield Wednesday eru ekkert
yfir sig ánægðir með Kendall
nú, því 15 klukkustundum áður
en hann skrifaði undir samning-
inn við Everton, hafði hann full-
vissað þá um að hann væri alls
ekki á leiðini til Liverpoolborgar
aftur. gþö
BOX
Bardagi allra tímaU
Guðmundur Arason, fyrrum íslandsmeistari í þungavigt.
Mike Tyson segir að bar-
dagi hans við Evander
Holyfield, sé sennilega
stærsti hnefaleikaviðburður
sögunnar. Viðureignir Jack
Johnson og Jim Jeffries, Gene
Tunney og Jack Dempsey, Joe
Louis og Max Schmeling og síð-
ast en ekki síst bardagar Mu-
hamed Ali við Joe Frazier
standast ekki samjöfnuð við Ty-
son - Ilolyfield bardagann annað
kvöld að mati Mike Tyson. Hvað
sem Tyson segir er ekki nokkur
vafi á því að þetta er mest
spennandi og umtalaða viður-
eign seinni ára. Tyson, sem ný-
lega hafði endurheimt heims-
meistaratitil sinn eftir betrun-
arhússvistina, var talinn örugg-
ur sigurvegari á móti hjarta-
sjúklingnum, Evander Holyfield.
Það fór á allt annan veg 9.
nóvember sl. Holyfield stjórnaði
þeim leik frá upphafi og rotaði
örmagna heimsmeistarann í 11.
lotu.
Tyson með betri feril
Ferlar Holyfield og Tyson eru
svipaðir að lengd í árum en
ekki fjölda bardaga. Holyfield
fór fyrst sem atvinnumaður í
hringinn 15. nóvember 1984.
Því má segja að hann hafi feng-
ið sigurinn á Tyson í 16 ára
starfsafmælisgjöf. Síðan 1984
hefur Holyfield slegist í 36
skipti. Hann hefur unnið 33 við-
ureignir, þar af 24 á rothöggi.
Hann hefur þrisvar tapað, síð-
ast fyrir Michael Moorer 1994.
Mike Tyson síeig fyrst í
hringinn sem atvinnumaður 6.
mars 1985 og rotaði þá Hector
Mercedes í 1. lotu. Síðan hefur
ferillinn verið glæsilegur, 45
sigrar og aðeins tveir ósigrar,
gegn James „Buster" Douglas
11. febrúar 1990 og gegn Holy-
field sl. haust. Ferill Tysons er
enn merkilegri vegna þess að
hann barðist ekkert frá 1992 -
1995 vegna fangavistarinnar.
Lýst vel á kappana
Guðmundur Arason, fyrrum ís-
landsmeistari í þungavigt, er
einn þeirra manna sem bíður
spenntur eftir laugardagskvöld-
inu.
„Mér líst vel á þessa menn,
sérstaklega Holyfield,“ sagði
Guðmundur. „Tyson er náttúru-
lega heilmikill kraftakarl, þræl-
þjálfaður, sterkur og grimmur.
En það sem ég er hræddur við
eru peningarnir. Don King, sem
sér um þetta allt, er orðinn
margfaldur milljarðamæringur
og á heilu skýjakljúfana um
allt. Þegar svo er komið getur
verið freistandi að láta Holy-
field tapa til þess að fá einn
kappleik enn á milli þeirra. Það
sem ég sé þó í þessu er að þeir
eru engir vinir og það er mín
eina von um það að þeir keppi
eins og menn. Metnaðurinn er
vonandi yfirsterkari peninga-
hyggjunni."
Stuttir handleggir
Ilvað um sjálfan kappleikinn?
„Síðast byrjaði Tyson á sinn
venjulega máta, með offorsi og
höggum. Hann slær aðalega tvö
högg, það eru húkkin, sem
koma fyrst. Hann hallar sér á
sitt hvora hlið og síðan koma
höggin. Síðan koma upphögg.
Þetta er það sem hann kemur
með. Þegar hann keppti á móti
Bruno, sem ég taldi vonlausan
um leið og ég sá framan í hann,
þá hékk Bruno í hálsinum á Ty-
son en beygði sig samt frá hon-
um. Þá kom Tyson þungum
höggum á hann og gekk frá
honum. llolyfield fór þétt upp
að Tyson, gaf honum ekki færi á
þessum höggum. Síðan spyrnti
hann honum frá sér og ýtti hon-
um alla leið að köðlunum. Ég
veit ekki hvað hann sagði við
hann, þú getur ekkert, ég vinn
þig eða eitthvað slíkt. Allavega
stjórnaði Holyfield leknum allan
tímann og Tyson missti tökin á
leiknum. Svo þegar þeir voru í
útstöðu voru handleggir Tysons
of stuttir. Ilann náði aldrei al-
mennilega til Holyfield sem hélt
honum bara frá sér með beinni
vinstri og hægri. Holyfield er
skynsamari og yfirvegaðri
hnefaleikamaður og hann vinn-
ur ef hann berst jafn skynsam-
lega og síðast,“ sagði Guð-
inundur.
Fleiri bardagar
Það eru fleiri athyglisverðir
bardagar annað kvöld. Má þar
benda á leik Julio Cesar Chaves
gegn Larry Daniel La Coursiere
í junior veltivigt. Chaves á lang-
an feril og glæsilegan að baki.
102 Ieikir, 99 sigrar og 83 rot-
högg. Annars fáum við að sjá 4
bardaga að þessu sinni á SÝN
undir leiðsögn Bubba og
Ómars. gþö