Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Blaðsíða 4
4 - Miðvikudagur 16. júlí 1997 F R E T T I R Guðmundur ráðinn bæjarstjóri á Siglufirði Bæjarstjórn Siglufjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að ráða Guðmund Guðlaugsson, í stöðu bæjarstjóra frá og með 1. október næstkomandi. Guðmundur tekur við starfinu af Birni Valdimarssyni, sem hafði gegnt því frá 1990. Björn hverfur nú til starfa hjá Þormóði ramma - Sæbergi hf. á Siglufirði. Guðmundur Guðlaugsson er 38 ára og hefur starfað sem skrifstofustjóri hjá Sigluljarðarbæ frá síðustu áramótum. Áður var hann um átta ára skeið framkvæmdastjóri Brúnáss hf á Egilsstöðum. Eiginkona Guðmundar er Soffía Björg Sigurjóns- dóttir, og eiga þau þrjú börn. -sbs. Leik frestað vegna verkfalls Leik Leifturs og ÍA sem vera átti í kvöld er frestað vegna tafa í ferð Leiftursmanna til Tyrklands. Verkfall starfsmanna British Airways varð til þess að liðið millilenti í Þýskalandi. Þar var leikmönnum liðsins sem upprunnir eru frá fyrrum Júgóslavíu meinaður aðgangur að landinu þar sem þýsk yfirvöld viður- kenna ekki vegabréf þeirra. Þeim var síðan haldið á flugstöð- inni og fengu ekki að fara með fyrstu vél áfram þegar hluti liðsins hélt för sinn áfram. Að lokum tókst þó að greiða úr málinu og eru allir leikmenn liðsins komnir til landsins. Mýflugsmenn sáttir Mýflug í Mývatnssveit hefur hafið áætlunarferðir til Horna- fjarðar. Flogið verður daglega milli staðanna og kostar ferðin fram og til baka tíu þúsund krónur. Mýflugsmenn telja að markaður sé fyrir ferðir af þessu tagi yfir ferðamannatímann. Flugleiðin er ákaflega falleg og báðir staðir vinsælir ferða- mannastaðir. Leifur Hallgrímsson hjá Mýflugi segir að viðtökur hafi verið góðar, en veðrið hafi verið óhagstætt. Aðspurður um truflun á útsýnisflugi vegna æfingar Norðurvíkings, sem fram hefur komið í fréttum, segir Leifur að búið sé að semja við aðstand- endur æfingarinnar og flugmálayfirvöld. Leifur segist ánægður með niðurstöðuna og lítil röskun verði á útsýnisflugi Mýflugs. 38 punda lax úr Leirutjörn Hann Gunnar Páll Gunnarsson veiddi á dögimum 38 punda lax í Leirutjörn á Ak- ureyri. Þessi fiskur er sá stærsti sem þar hefur veiðst í sumar og sennilega þó víðar væri leitað. Það er fyrirtækið Jaxlinn sem hefur keypt eldisfisk, regn- bogasilung og lax, og sleppt í Leirutjörn í sumar og fyrrasum- ar. Þeir selja síðan veiðileyfi sem kosta 1800 kr. fyrir fimm tíma og er hámarks- veiði 4 fiskar. „Ég hugsa að hægt sé að telja á fingri annarar handar þá sem ekki hafa fengið fisk,“ segir Jóhannes Gísli Gunnar Páll Gunnarsson með laxinn góða. Pálmason, . einn þeirra sem sér um leiguna. Jóhannes segir aðsókn hafa verið þokkalega það sem af er sumars. Margir Akureyringar, sem ekki sóu vanir að veiða, komi til að prófa og einnig sé nokkuð um að vonsviknir veiðimenn, sem ekki hafi fengið neitt úr án- um, reyni að létta skapið með því að draga nokkra fiska úr Leirutjörn. Kannski ekki alveg jafnspennandi og hin veiðin - en samt.... AI Stutt & laggott Akureyri Sigurður Hafþórsson, tjaldvörður. 5 : ' ■■ Tjaldgestir flýðu margir á gistihús eða tif vina vegna bleytu í fyrrinótt. Votir en kátir ferðamenn Mikii rígning og bleyta á mánudag og að- faranótt þríðjudags varð til þess að margir tjald- gestir á tjaldstæðinu á Akur- eyri flýðu á gistiheimili eða á náðir kunningja og vina. Mikill fjöldi var á tjaldstæð- inu um helgina. Á laugardag voru næturgestir t.d. 511 sem er mesti fjöldi sem af er sumars. „Það var helvíti margt,“ segir Sigurður Hafþórs- son, tjaldvörður. Töluvert fækk- aði á mánudag þegar veðrið versnaði en þá var Qöldinn 180 manns. Margir voru mjög blautir og segir Sigurður frá út- lendingum sem ferðuðust á mótórhjólum og voru rennandi þegar þeir mættu á staðinn. „Þeir fengu að komast inn þar sem við eruin með sturtuað- stöðu og setja skó og blaut föt á ofn. Ég man ekki eftir að það hafi komið fyrir áður,“ segir hann. Annars segir Sigurður helstan mun á útlendingum og íslendingum þann að þeir fyrr- nefndu hafa ákveðið fyrirfram hvað margar nætur þeir ætla að gista, á meðan landinn vill bíða og sjá hvernig verðrið verður. Annað sem greinir á milli þess- ara hópa er að útlendingarnir fara til tjaldvarða að fyrra bragði og borga áður en þeir tjalda en flesta íslendinga þarf að rukka. Sunnlensk bjúgu „Við komum í gær [mánudag] í rigningunni og byrjuðum á að fara í sund. Reyndar fundum við ekki muninn hvort við vær- um ofan í lauginni eða ekki,“ segir Ragnheiður K. Sigurðar- dóttir og skellihlær. Ragnheiður er á ferðalagi með vinahópi og kom hópurinn til Akureyrar frá hálendinu. Hugmyndin er að halda næst í Fjörður. Alls eru 16 manns í hópnum, 18 ef kan- ínan og hundurinn eru talin með. Yngsti meðlimur hópsins er aðeins 7 mánaða. Vinahópurinn er úr Reykja- vík og samanstendur af fimm fjölskyldum. „Við höfum gert töluvert af því að ferðast sam- an,“ segir Ragnheiður. „Það er ákveðin samkeppni í gangi hjá okkur. Bílarnir stækka, tjöldin verða flottari og börnunum ljölgar," bætir hún við og vin- Ragnheiður K. Sigurðardóttir. Myndir: JHF irnir taka undir. Greinilegt er að Iétt er yfir þessum hópi enda var rigningin ekkert vandamál. „Við höfðum það mjög huggu- legt þegar við vorum búin að koma okkur fyrir. Hlógum mik- ið og borðuðum sunnlensk bjúgu, ekki sperðla," segir Ragnheiður. AI Fjarskipti Nýtt farsímakerfi í haust Stjórn Pósts og síma hefur ákveðið að heíja tilrauna- rekstur á DCS 1800, nýs farsímakerfis, í haust með með það fyrir augum að almennur rekstur slíkrar fjarskiptaþjón- ustu geti hafist um næstu ára- mót. Frá 1. janúar 1998 fellur einkaréttur Pósts og síma á Ijarskiptaþjónustu niður. Sam- kvæmt tilskipun EES verður nýjum aðilum þá heimilt að hefja rekstur farsímaþjónustu nema tæknilcgar hindranir standi í vegi fyrir því, að upp- fylltum þeim skilyrðum sem Póst- og Ijarskiptastofnun kann að setja. Þess ber þó að gæta að 1. júlí sl. féll einkaréttur Pósts og síma á GSM-farsímaþjónustu niður. Það er samgönguráð- herra sem gefur Póst- og síma- málastofnun heimild til að fara af stað með hið nýja farsíma- kerfi. í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu kemur fram að ekki hafi borist erindi um DCS 1800 frá öðrum en Póst- og símamálastofnun. AI

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.