Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Blaðsíða 11
Jlagur-®TOtcmt
Miðvikudagur 16. júlí 1997 -11
H E S T A R
I Þ R 0 T T / R
LiðiðáHM
fullsklpað
á hefur einvaldurinn í vali
keppnishesta á heims-
meistarmótið í Noregi
gert heyrinkunnugt hvernig ís-
lenska keppnissveitin verður
skipuð. Hans niðurstaða varð
sú að meiri ástæða væri til að
styrkja fjórgangsþáttinn og tölt-
ið fremur en fimmganginn. Þeir
hestar sem koma til viðbótar
við liðið, sem skýrt hefur verið
ursta. Því er þess að vænta að
þetta mót geti orðið mjög eftir-
sóknarvert. Það er vitað að
þýska keppnissveitin er mjög
sterk og verði ekki unnin átaka-
laust. Fyrir framleiðendur ís-
lenskra hrossa eru mót af því
tagi sem um ræðir í Seljord afar
mikilvæg. Mótin sækir fjöldi
fólks frá flestum Evrópulöndum
og því fer þarna fram mjög
bakið á þessari keppni.
Verulegar tekjur
fslenski hesturinn og það sem
honum er tengt skapar veruleg-
ar gjaldeyristekjur fyrir landið.
Áætlað er að á þessu ári verði
þær tekjur í kringum tvo millj-
arða þegar allt er talið saman,
þ.e. sala á hestum, sala á
Þyrill frá Vatnsleysu er kominn í keppnisliðið. Knapi Vignir Siggeirsson
frá hér fyrr í HESTAMÓTUM,
eru Boði frá Gerðum sem er 8
vetra og knapi á honum er
Styrmir Árnason og Þyrill frá
Vatnsleysu 10 vetra, knapi
Vignir Siggeirsson. Báðir þessir
hestar eru í Þýskalandi.
Þá hafa varahestar verið
valdir en fyrsti varahestur er
Funi frá Hvítárholti, knapi
Trausti Þór Guðmundsson. Funi
fer því aðeins utan að einhver
hestur forfallist fyrir brottför.
Aðrir varahestar eru Glaður frá
Ifólabaki, Breki frá Eyrarbakka
og Kolfinna frá Egilsstöðum.
Þessi þrjú hross eru öll þátttak-
endur í kynbótahrossakeppn-
inni og verða því á staðnum.
Þetta mun vera fyrsta sinn
sem knapar sem starfa erlendis
eru í keppnisliðinu. Það gefur
vísbendingu um að hestar sem
seldir eru erlendis geti áfram
keppt fyrir íslands hönd á
Heimsmeistaramótum sem
verður að teljast af hinu góða
því margir þeirra eru í góðri
þjálfun þeirra íslendinga sem
vinna ytra og metnaðarmál eig-
endanna að þeir komi fram á
stórmótum.
Aðstaðan mjög góð
Aðstaðan í Seljord er talin mjög
góð enda umhverfið allt hið feg-
mikilvæg kynning á okkar vöru.
Þess vegna er það mikilvægt að
í íslenska liðið veljist góð hross
sem líkleg eru til að vinna sigur.
íslendingar eru þegar í mikilli
samkeppni við Þjóðverja og
mega ekki liggja á liði sínu við
að kynna hestinn eins og hann
kemur frá heimalandinu.
íslenski hesturinn
og það sem honum
er tengt skapar
verulegar gjaldeyr-
istekjur fyrir landið.
Áætlað er að á
þessu ári verði þær
tekjur í kringum tvo
milljarða.
En þátttaka í svona móti er
kostnaðarsöm og hefur Hesta-
fþróttasambandið leitað stuðn-
ings hjá ýmsum fyrirtækjum.
Stærstu styktaraðilarnir eru
Flugleiðir og svo verslunin
Hestamaðurinn, en báðir þessir
aðilar hafa alltaf staðið vel við
hestaferðum og gjaldeyristekjur
af ferðamönnum sem koma
hingað fyrst og fremst hestsins
vegna. Það er því þjóðhagslega
hagstætt að leggja fyrirtæki
eins og þátttöku í heimsmeist-
aramóti gott lið. Þess má geta
að auk þess beina styrks sem
Hestamaðurinn veitir þá heitir
verslunin á hvern þann knapa
sem hlýtur gull og fær hann
hnakk með öllu tilheyrandi sem
er að verðmæti upp á 102 þús-
und krónur. Það væri æskilegt
að fleiri gerðu slíkt hið sama að
veðja á þá íslensku knapa sem
sigra, því enn vantar nokkuð á
að náðst hafi upp í áætlaðan
kostnað.
Hestaíþróttasambandið lætur
útbúa fyrir þetta mót platta
eins og jafnan áður og er það
listakonan Sigrún Eldjárn sem
hefur hannað hann að þessu
sinni. Þessi platti verður seldur
eða veittur fyrir verulegt fram-
lag til keppninnar.
Þá hefur Félag tamninga-
manna ákveðið að styrkja sína
félagsmenn sem eru keppendur
á þessu móti.
Hestarnir fara utan 27. júlí
og keppendur 30. júlí.
KNATTSPYRNA
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari, kynnir val sitt á landsliðsmönnum á
blaðamannfundi hjá KSÍ í Laugardalnum. Mynd:ÞöK
Engin bylting
Guðjón Þórðarson tilkynnti
sinn fyrsta landsliðshóp,
sem leikur við Norðmenn
á sunnudagskvöldið kl. 20:00, á
blaðamannafundi í hinni nýju
og glæsilegu aðstöðu KSI í
Laugardalnum. Engin bylting
var gerð á hópnum en athygli
vekur að hvorki Arnar Grétars-
son eða Arnar Gunnlaugsson
voru valdir að þessu sinni. Eng-
inn nýliði er í hópnurn en Einar
Þór Daníelsson úr KR og Sverr-
ir Sverrisson frá ÍBV hafa feng-
ið landsliðssæti að nýju og kem-
ur það varla nokkrum á óvart.
Landsliðið er skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Kristján Finnbogason KR
Ólafur Gottskálksson
Keflavík
Guðni Bergsson Bolton
Arnór Guðjohnsen Örebro
Rúnar Kristinsson Örgryte
Sigurður Jónsson Örebro
Eyjólfur Sverrisson Herta
Bjarki Gunnlaugsson Molde
Sigursteinn Gíslason ÍA
Helgi Sigurðsson Stabæk
Þórður Guðjónsson Genk
Lárus Orri Sigurðsson Stoke
Einar Þór Daníelsson KR
Hermann Hreiðarsson ÍBV
Sverrir Sverrisson ÍBV
Brynjar B. Gunnarsson KR
Guðjón sagði á blaðamanna-
fundinum að hann ætlaðist til
þess að allir leggðu sig fram í
leiknum við Norðmenn. Hann
varaði við of mikilli bjartsýni
fyrir leikinn en sagði að ef allir
leggðust á eitt og gerðu sitt
besta væri yfir engu að kvarta.
„Þeir sem ekki leggja sig fram
eru einfaldlega að segja að þeir
hafi ekki áhuga á að vera í
landsliðinu." Guðjón sagði að
enginn gæti orðið áskrifandi að
landsliðssæti.
Þá var einnig tilkynntur U-21
landsliðshópurinn sem keppir
við Norðmenn í Keflavík á
sunnudaginn kl. 14:00. Atli Eð-
valdsson, þjálfari liðsins, hefur
valið einn nýliða í hópinn, mið-
vörðinn Bjarna Þorsteinsson úr
KR. Bjarni hefur leikið mjög vel
í sumar og lengst af verið í
byrjunarliði KR. Annars er hóp-
urinn skipaður eftirtöldum leik-
mönnum:
Árni Gautur Arason
Stjarnan
Gunnar Sigurðsson ÍBV
Sigurvin Ólafsson ÍBV
Ólafur Stígsson Fylkir
Guðni R. Helgason ÍBV
Bjarnólfur Lárusson ÍBV
Bjarki Stefánsson Valur
Arnar Þór Viðarsson FH
Valur Fannar Gíslas .Arsenal
Þorbjörn A. Sveinss. Fram
Stefán Þ. Þórðarson Öster
Gunnar Einarsson MW
ívar Ingimarsson Valur
Jóhann Guðmundsson
Keflavík
Andri Sigþórsson KR
Bjarni Þorsteinsson KR
^Oagur-ÍEímttm
- besti tími dagsins! jy
TILB0Ð A
SMÁAUGLÝSINGUM
FYRSTA BIRTING
800 KB.
ENDURBIRTING
400 KB.
Ofangreind verð miðasl við staögreiöslu eöa VISA / EURO
Sími auglýsingadeildar er 460 6100
Fax auglýsingadeildar er 460 6161 m