Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Blaðsíða 6
6 - Miðvikudagur 16. júlí 1997
|Dagur-‘3Rinmn
FRÉTTASKÝRING
Sævar Marinó
Ciesielski: Það er
sárt að sjá þegar
réttlætið nær
ekki fram að
ganga. Myn&. gva
fp* Marshall
Hæstiréttur
íslands hefur
hafnað beiðni
Sævars
Marinós
Ciesielski um
endurupptöku
hæstaréttar-
máls nr.
214/1978,
svokallaðs
Guðmundar-
og Geirfinns-
máls. Sá
úrskurður er
byggður á
skoðun
Hæstaréttar á
nýjum gögn-
um sem lögð
hafa verið
fram af
Ragnari
Aðalsteins-
syni, réttar-
gæslumanni
Sævars.
Hæstiréttur telur nýjar
upplýsingar ekki full-
nægja þeim skilyrðum
sem nauðsynlegar eru til end-
urupptöku málsins. Byggist sú
skoðun Hæstaréttar á því að
flest þeirra atriða sem lögð
hafa verið fram hafi legið fyrir
Hæstarétti við uppkvaðningu
döms í málinu 22. febrúar 1980
og að þá hafl verið tekin af-
staða til þeirra. Kemst Hæsti-
réttur einnig að þeirri niður-
stöðu að Sævar hafi sætt ólög-
mætu harðræði í gæsluvarð-
haldsvist í Síðumúlafangelsi,
einkum í aprfl og maí 1976.
Harðræði eða
agaviðurlög?
í úrskurði Hæstaréttar frá því í
gær segir orðrétt: „Samkvæmt
dómi Hæstaréttar 22. febrúar
1980 var það að nokkru kunn-
ugt en frekari gögn hafa komið
fram um þetta. Hins vegar
þykja þetta vera einu atriðin
sem færð hafa verið fram og til
álita geta komið sem grundvöll-
ur að endurupptöku málsins
samkvæmt 184. gr. laga nr.
19/1991. Þau varða tímabil í
gæsluvarðhaldsvist dómfellda,
sem var annars vegar nokkrum
mánuðum eftir að hann gaf
skýrslur, þar sem hann játaði
að eiga þátt í hvarfi Guðmund-
ar Einarssonar og bar einnig
sakir á fjóra nafngreinda menn
um aðild þeirra að hvarfi Geir-
fínns Einarssonar, og hins veg-
ar mörgum mánuðum áður en
hann gekkst við aðilda sinni að
hvarfi hins síðarnefnda. Fyrir
liggur að hluti þess harðræðis
sem dómfelldi varð fyrir var
ætlaður sem agaviðurlög við
brotum hans á reglum sem um
gæsluvarðhaldsvistina giltu.
Þótt atriði þar, sem nú hafa ver-
ið leidd í Ijós, styrki nokkuð
fyrri ásakanir dómfellda um
harðræði í gæsluvarðhaldsvist-
inni, er það mat réttarins, að
ekki hafi komið fram nýjar upp-
lýsingar sem líklegar væru til
þess að hafa breytt niðurstöðu
Hæstaréttar 22. febrúar 1980.“
í úrskurði Hæstaréttar kem-
ur ekki fram hvaða lög heimila
fangavörðum að refsa föngum
með agaviðurlögum.
Svartur dagur
- Þetta er svartur dagur Sævar?
„Já, mér finnst rökstuðning-
urinn vera afskaplega hæpinn í
þessum úrskurði. Það er eigin-
lega enginn rökstuðningur.
Fyrsta heftið er bara útlistun
sakadóms eins og kemur fram í
Hæstaréttardómnum. Síðan
taka þeir fyrir atriði sem Ragn-
ar Hall benti á. Að lokum kem-
ur örstuttur rökstuðningur. Það
skín í gegnum þetta embættis-
hroki og þar má nefna það sem
þeir segja um harðræðið. Að
það hafi nú bara verið í refsing-
arskyni vegna þess að ég hafi
verið svo slæmur fangi. Það
þýðir lítið að koma núna fram
og fara að útlista hvernig svona
rannsókn var framkvæmd fyrir
tuttugu árum. Við erum að tala
um eitthvað fyrir þjóðina í dag,
ný viðhorf, nýjar lagatúlkanir.
Við erum núna aðilar að mann-
réttindasáttmálanum og svo
talar Hæstiréttur íslands um að
harðræðið hafi bara verið í
refsingarskyni. Þetta er alger
svívirða.“
- En er málinu lokið hvað þig
varðar?
„Nei, þetta er bara úrskurð-
ur, ekki dómur. Málið er ekki
búið. Það er hægt að koma
fram með ný gögn, biðja um
frekari rökstuðning. En það er
sárt að sjá þegar réttlætið nær
ekki fram að ganga. Ef að lögin
koma í veg fyrir að menn nái
rétti sínum þá eru það ólög.“
Aför að lögum
Sigursteinn Másson er aðalhöf-
undur heimildarþáttanna um
Guðmundar- og Geirfinnsmálin,
Aðför að Lögum.
Hvað segir hann
um úrskurð
Hæstaréttar?
„Þessi afstaða
lýsir því að Hæsti-
réttur virðist taka
þann pól í hæðina
að ekki sé hægt að
taka upp mál sem
Hæstiréttur hefur
dæmt í. Sama
hversu vitlaust það
er og sama hversu
skýr rök eru sett fram um
málatilbúnaðinn á sínum tíma.
Það er það sem mér finnst
merkilegast í þessu. Afstaða
Ragnars Hall, ríkissaksóknara,
er gerð að afstöðu réttarins. Nú
þegar hef ég fundið íjölmörg at-
riði þar sem stillt er upp gagn-
rýni Ragnars Aðalsteinssonar
gegn svari Ragnars Hall og svar
þess síðarnefnda stenst ekki.
Meginpunkturinn í öllu málinu
er að það er byggt á játningum
sem koma fram í löngu varð-
haldi og það er rangt sem fram
hefur verið haldið að játningar
um hvarf Geirfinns hafi komið
fram mjög snemma í málinu.
Fyrstu játningarnar koma fram
eftir tíu mánuði í fangelsi. En
rétturinn tekur enga afstöðu til
þess að endanleg niðurstaða
málsins er byggð á framburði
sem kemur fram eftir mjög
langt gæsluvarðhald."
Réttarkerfið hefur
ekkert breyst
Sigursteinn segir niðurstöðu
Hæstaréttar um að hluti harð-
ræðisins hafi verið agarefsing
ekki rökstudda. „í eitt skipti af
mörgum þegar verið var að fara
með Sævar í leiðangra til að
leita að líkum þá tekur hann til
fótanna þar sem verið er að
koma að Síðumúlafangelsi og
Örn Höskuldsson hleypur hann
uppi. Eftir það var hann settur í
fótajárn í 11 daga sem var
bannað á þessum tíma. Það sem
upp úr stendur er að það eru
engin skynsamleg rök færð fyrir
því að hafna þessari endurupp-
töku. Hæstiréttur kýs að fara í
þær stellingar að rétturinn á
sínum tíma hafl komist að til-
tekinni niðurstöðu. Þær upplýs-
ingar sem nú liggi fyrir séu til
að skerpa þá gagnrýni sem
fram kom á sínum tíma en þeir
taka ekki afstöðu til heildar-
myndarinnar. Það fundust
aldrei nein lík í þessu máli og
það skiptir Hæstarétt greinilega
engu máli að öll vitni í málinu
eru búin að draga vitnisburð
sinn til baka. Ef þetta mál hefði
verið flutt fyrir Hæstarétti þá
hefði verið hægt að reka ofan í
saksóknara ýmsar þær rang-
færslur sem hann fer með. Þessi
málsmeðferð er hrapallega slök
og hún stendur ekki undir þeim
fullyrðingum sem menn hafa
haldið fram um að svonalagað
gæti ekki gerst í dag og að ís-
lenskt réttarkerfi hafi tekið
stökkbreytingum til hins betra.“
Um endurupptökubeiðni
Sævars ijölluðu hæstaréttar-
dómararnir Pétur Kr. Hafstein,
Arnljótur Björnsson, Garðar
Gíslason, Hjörtur Torfason,
Hrafn Bragason og Markús Sig-
urbjörnsson, ásamt Allan V.
Magnússyni héraðsdómara.
Sigursteinn Másson
ritstjóri
„Málsmeðferðin er slök
og stendur ekki undir því
sem menn segja um
breytt réttarkerfL “