Dagur - Tíminn Akureyri - 04.09.1997, Page 3
JktgraÆmnrar
Fimmtudagur 4. september 1997 -15
LIFIfi> I LANDINU
Fossrétt á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu. Þar draga bændur á Síðu fé sitt í dilka, þegar það kemur rígvænt af af-
réttinum eftir sumarbeit. Mynd. - þök.
Jarm, hundgá
Helstu flárréttir
Helstu stóðréttir
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skagafirði.
laugard. 13. sept. um hádegi
Reynistaðarrétt í Staðarhr., Skagafirði.
laugard. 13. sept. um kl. 16:00
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skagafirði.
sunnud. 14. sept. um kl. 15:00
Hlíðarrétt í Bólst.hl.hr., A.-Hún.
sunnud. 21. sept. upp úr hádegi
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún.
sunnud. 21. sept. kl. 10:00
Borgarrétt í Eyjafjarðarsveit
laugard. 20. sept. kl. 13:00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún.
laugard. 27. sept. upp úr hádegi
Víðidalstungurélt í Víðidal, V.-IIún.
laugard. 4. okt. kl. 10:00
Lauiskálarétt í Hjaitadal, Skag.
laugard. 4. okt. kl. 13:00
Hver er undan
hverjum?
Hér að framan höfum við að-
eins nefnt Ijárréttir. Þá eru
ónefndar stóðréttir norðan-
lands, sem heíjast um aðra
helgi. Ólýsanleg er stemmning-
in þegar stóðið, sem telur
hundruð hrossa, er rekið til
réttar. Þar he'ijast síðan aftur
miklar spekúlasjónir og spá-
kaupmennska, þar sem menn
velta því einna helst fyrir sér
hver sé undan hverjum. -sbs.
Eftirvæntingin bærist í brjóstum smalamanna þegar þeir leggja af stað til
fjalla. Hér sjást borgfirskir smalamenn leggja af stað, með Svein Finnsson
bónda í Eskiholti í Borgarbyggð, í fylkingarbrjósi sínu. -Mynd: -GS.
Rétt: Dagsetningar
Auðkúlurétt í Svínavatnshr., A.-Hún. laugard. 13. sept.
Áfangagilsrótt í Landmannaafrétti, Rang. fimmtud. 18. sept.
Baldursheimsrétt í Mývatnssveit, S.-Þing. sunnud. 7. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal í Mýrasýslu. sunnud. 14. sept.
Dalsrétt í Mosfeilsdal, Kjós. laugard. 20. sept.
Fljótshliðarrét í Fljótshlíð, Rang. þriðjud. 16. sept. og
sunnud. 21. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýrasýslu. sunnud. 14. sept.
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft. föstudagui' 12. sept.
Fossvallarétt við Lækjarbotna við Reykjavík. sunnud. 21. sept.
Grímsstaðarétt í Álftaneshr., Mýras. þriðjud. 16. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. laugard. 13. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit. laugard. 20. sept.
Hítardalsrétt í Hraunhr., Mýrasýslu mánud. 15. sept.
Hlíðarrétt í Bólstaðarld.hr., A.-Hún. sunnud. 14. sept.
Hlíðarrétt f Mývatnssveit, S.-Þing. sunnud. 7. sopt.
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing. sunnud. 7. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn. föstud. 12. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Ilún. laugard. 6. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. laugard. 20. sept.
Kjósarrétt í Kjósarhr., Kjósarsýslu. mánud. 22. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dalasýslu. sunnud. 14. sept.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árnessýsiu. miðvikud. 17. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði. laugard. 13. sept.
Miðijarðarrétt í Miðíirði, V.-Húnavatnssýsiu. laugard. 6. sept.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árnessýslu. laugard. 20. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikud. 17. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit í Borgarfirði. föstud. 19. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum f Árnessýslu laugard. 13. sept.
Reynistaðarrétt í Staðarhr., Skagafirði. sunnud. 7. sept.
Selfialarrctt í Grafningi, Árnessýslu. mánud. 22. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árnessýslu. mánud. 22. sept.
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skagafirði. mánud. 15. sept.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstud. 12. sept.
Skaftárrétt í Skaftárhr., V.-Skaftafellsýslu. laugard. 13. sept.
Skaftártungurétt f Skaftártungu, V.-Skaft. laugard. 20. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skagafirði. laugard. 6. sept.
Skarðsrétt í Borgarhr., Mýrasýslu. mánud. 15. sept.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún. sunnud. 14. sept.
Stafnsrétt í Svarlárdal, A.-llún. laugard. 13. sept.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árnessýslu. laugard. 13. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. föstud. 12. og laug. 13. sept.
Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún. föstud. 12. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 13. sept.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugard. 20. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugard. 13. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýrasýslu. mánud. 15. sept.
Ölfusrétt í Ölfusi, Árnessýslu. þriðjud. 23. sept.
Hver er undan hverjum? Það er ævinlega mikil stemmning í Lauf-
skálarétt í Hjaltadal í Skagafirði. Mynd:
og hófadynur
Hver árstíð helgast af
ákveðnum takti í mann-
lífinu. Allt fram streymir
endalaust og komið er haust.
Skólar eru að byrja og smala-
menn að fara til Ijalla. Fjall-
ferðir og réttir eru einn af þess-
um sígildu þáttum í þjóðlífinu
sem heldur velli, þó þjóðfélagið
hafi gjörbreyst. Gamla bænda-
samfélagið er liðið undir lok, en
réttastemmning haustdaganna
heldur alltaf velli.
Taka
lagið og lyfta pela
Fyrstu fjárréttir haustsins eru
um helgina. Þá munu bændur í
Mývatnssveit, Skagafirði, Aðal-
dal og í Ilrútafirði, og sjálfsagt
víðar, reka fé sitt af afréttinum
og draga það í dilka í réttum.
Réttastemmningin dregur fjöl-
marga til sín. I sumar réttirnar
eru meira að segja skipulagðar
hópferðir og gamlir sveitungar
mæta til leiks, sumir til þess
eins að taka lagið og lyfta kon-
íakspela undir réttarvegg.
Einna frægastar að þessu leyti
eru Tungnaréttir í Biskupstung-
um. Þangað mæta mörg hundr-
uð manna á hverju hausti, enda
þó fé í réttum í haust verði ekki
nema um 2.500, frá 10 til 12
bæjum. Öðruvísi mér áður brá,
því í kringum 1970 voru um 10
þúsund fjár í réttunum á hausti
hverju, og fé í sveitinni nokkru
fleira.
Inn að Hofsjökli
„Ég er núna að fara í fimmta
sinn í fjallferð. Og af hverju fer
ég á fjall? Ef ég bara vissi það.
Það er kannski stemmning úti í
náttúrunni, að vera einn með
sjálfum sér og heyra tímunum
saman ekkert annað en hund-
gá, jarm og hófadyn. Það er
stórbrotið," segir Karl Áki Sig-
urðsson á Seffossi, sem fer á
fjall með Gnúpverjum. Þeir
Gnúpverjar sem lengst fara
lögðu af stað í níu daga fjalla-
ferð í gær og fara allt inn að
Hofsjökli. Karl Áki og fleiri fara
hinsvegar ekki svo fangt inn úr.
- Réttir Gnúpverja, Skaftholts-
réttir, eru á laugardag um aðra
helgi.
Göngurnar
taka einn dag
„Það er alltaf nokkur fjöfdi sem
kemur í réttirnar hérna.
Göngurnar eru daginn áður.
Þær taka einn dag, sem er sjálf-
sagt' með því stysta sem þekk-
ist,“ segir Bjarni Kristmunds-
son, bóndi á Giljalandi í Hauka-
dal í Dölum. „Nei, það er ekki
mikið um það að menn séu að
punta sig í réttunum, það er þá
frekar að kvöfdi gangnadagsins
sem menn gleðjast á góðri
stundu,“ segir Bjarni.
Réttað verður í Kirkjufells-
rétt í Haukadal sunnudaginn
14. september. Bjarni er með
um 700 íjár á fjalli í sumar, þar
af á fjórða hundrað vetrarfóðr-
aðar kindur.
Útivera
og félagsskapur
„Ég er búinn að vera gangna-
foringi á Austari-Miðfjöllum á
Austurafrétti okkar Mývetninga
í nokkuð mörg ár, og þó er ég
enn ekki orðinn fertugur,“ segir
Gunnar Rúnar Pétursson, bóndi
í Vogum í Mývatnssveit. „Mér
finnst gaman að félagsskapnum
sem þessu fylgir; útiverunni og
félagsskapnum og því að gista í
kofa eina nótt,“ bætir hann við.
- Smalamennska á Austura-
frétti tekur tvo daga. Lagt verð-
ur upp á morgun, föstudag, og
komið er til baka á faugardegi.
Féð er svo dregið sundur í Hlíð-
arrétt í Mývatnssveit á sunnu-
dag.