Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Blaðsíða 2
2 - Föstudagur 12. september 1997
|Dagur-'2Kmtmt
Leikskólakennarar
Leikskólakennarar héldu almennan baráttufund í gær til að þjappa sér saman fyrir væntanleg átök við sveitarfé-
lögin. Þá kemur fulltrúaráð leikskólakennara saman í dag til að ræða framhaldið í viðræðum við launanefnd
sveitarfélaga. Mynd: eh
Verkfall yfirvofandi
enn voru að gantast
með það í pottinum að
norðurferðir sunnanmanna á
sjúkrahúsið á Akureyri (sjá
forsíðu) myndu enn auka
möguleika flugfélaganna:
„Sjúk í bæ!“ pakkaferðirnar
yrðu frábærar!
Og þungavigtarmennirnir
sem hafa það fyrir sið
að hittast í heita pottinum í
Árbæjarsundlauginni urðu að
færa sig um set þegar
hreinsun stóð yfir. Þeir
hrökkluðust yfir í smálaugina
á Seltjarnarnesi sem fráleitt
getur kallast vatnagarður
þrátt fyrir þægilegt andrúms-
loft. Þar sat fyrir Jóhannes í
Bónus í sínum potti og
spurði hæverkslega hvernig
þessi mikilmenni kynnu nú
við laugina á Nesinu: „Nú
þetta er bara eins og að
koma inn í Bónus!" varð ein-
um aó orði og fátt um frekari
samræður!
Og nú hafa framboðsmál
flokkanna í Reykjavík
skýrst að hálfu: Sjálfstæðis-
flokkurinn heldur prófkjör og
Reykjavíkurlistinn er að
leggja upp áætlun um sína
aðferð þessa dagana. Að-
eins byrjað að örla á að
menn vilji míga utan í sína
staura, en eins og einn
stjórnmálafréttaskýrandi orð-
aði það í gær: eins og stað-
an er nú getur ekkert eyði-
lagt R-listann nema R-listinn
sjálfur.
n D-lista megin spyr hver
annan: Ef Árni vill fyrsta
sætið, og Inga Jóna, hvað
ætlar Villi Þ. sér? Af hverju
segir hann það ekki strax?
Plott í gangi?
Árangurslaust í Karp-
húsi. Mikið ber í milli.
Gæsla 15 þúsund
barna í uppnámi.
eir eru bara alltaf með
sömu skálina og hræra
svoh'tið í henni. En það
kemur ekkert nýtt fram,“ segir
Björg Bjarnadóttir, formaður
Félags íslenskra leikskólakenn-
ara, um samningaviðræður við
launanefnd sveitarfélaga. Boð-
að verkfall leikskólakennara
kemur til framkvæmda 22.
september nk. hafi ekki samist
fyrir þann tíma.
Enginn árangur varð af
samningafundi þeirra hjá ríkis-
sáttasemjara í fyrrakvöld og
hefur annar fundur verið boð-
aður nk. sunnudag. Leikskóla-
kennarar kreíjast þess að byrj-
unarlaun hækki úr tæpum 82
þúsund krónum á mánuði í 110
þúsund krónur. Þá vilja þeir
fleiri launaflokka og ijölga
starfsheitum. Sveitarfélögin
telja sig hafa boðið leikskóla-
kennurum 20% launahækkun
en meta kröfur þeirra uppá 35-
70% á samningstíma fram á
seinnihluta ársins 2000. For-
maður leikskólakennara kann-
ast við 35% en vísar 70% til
föðurhúsanna.
Komi til verkfalls mun það
lama starfsemi 200 leikskóla
víðs vegar um landið. í þeim
dvelja daglega hátt í 15 þúsund
börn. Þá mun verkfall einnig
hafa áhrif á aðrar stofnanir
sem eru með leikskólakennara.
Þar á meðal eru nokkrir heil-
dagsskólar, barnadeildir
sjúkrahúsa og einstaka sambýli
fatlaðra.
Verkfall leikskólakennara
mun einnig hafa víðtæk áhrif á
fjölmargar barna-
ljölskyldur. Þá er
viðbúið að það
muni einnig hafa
truflandi áhrif víða
í atvinnulífinu þeg-
ar starfsfólk á í
erfiðleikum með að
fá pössun fyrir
börnin sín.
Björg Bjarna-
dóttir segir leik-
skólakennara ein-
arða í afstöðunni til
sinna krafna sem lagðar voru
fram í nóvember í fyrra. Þá sé
þetta jafnframt eldskírn félags-
ins sem stefnir í sitt fyrsta verk-
fall frá það varð stéttarfélag með
samningsrétt árið 1988. -grh
Björg Bjarnadóttir
form. Félags ísl. leikskólakennara
„Sveitarfélögin
hrœra alltaf í sömu
skálinní “
Sjóöryggi
Kyrrsetn-
ing á
TF-LÍF
hefur eng-
in áhrif
Allar þyrlur í Noregi
og Bretlandi af
Super Puma gerð
hafa verið kyrrsettar.
Eins er með Líf.
Helgi Hallvarðsson, yfir-
maður gæslufram-
kvæmda hjá Landhelgis-
gæslunni, segir að þótt LÍF,
þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, hafi verið kyrrsett tíma-
bundið hafi það ekki áhrif
á öryggi landsmanna og
sæfara við íslands strend-
ur. Þyrlan, sem er af gerð-
inni Super Puma AS 332,
tveggja hreyfla, var kyrr-
sett að beiðni Loftferðaeft-
irlitsins á meðan á rann-
sókn norskra aðila stendur
vegna þyrluslyss í byrjun
vikunnar, þar sem 12
manns fórust í Super Puma
þyrlu. Búið er að kyrrsetja
allar þyrlur þessarar teg-
undar í Noregi og Bret-
landi eftir slysið.
LÍF getur flogið mun
lengra en hin þyrla Gæsl-
unnar, Sif, og eins tekur Sif
ekki jafn marga menn.
Helgi segir að í neyð sé
alltaf hægt að fá bandar-
ísku björgunarsveitina á
Keflavíkurílugvelli til að-
stoðar og eins ríki gagn-
kvæmt samkomulag við
dönsku flotastjórnina um
aðstoð við leit og björgun.
„Þetta ætti ekki að hafa
nein áhrif á öryggi íslend-
inga,“ segir Helgi, en vill
ekki spá fyrir um hve lang-
an tíma Líf verður úr leik.
BÞ
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Bandaríski skipastólinn ófullkominn
Finnbogi Jónsson
framkvœmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar hf. á Neskaupstað
Síldarvinnslan hefur ásamt
Samherja og SR mjöli
stofnað Jyrirtœki til
fjárfestingar erlendis með
áherslu á uppsjávarfisk.
Þrír „risar“ í íslenskum sjávarút-
vegi, Síldarvinnslan hf., SR-mjöl hf. og
Samherji hf., hafa stofnað félag sem
heitir Úthafssjávarfang ehf. og er
markmiðið íjárfestingar og rekstur er-
lendis á sviði útgerðar, landvinnslu og
sölu sjávarafurða með aðaláherslu á
uppsjávarfísk. Hlutafé verður 30 millj-
ónir króna.
En hver er hagkvœmni þess aö reka
svona fyrirtœki?
„Fyrirtækin hafa gert með sér sam-
komulag um samstarf í markaðs- og
tæknimálum en fjárhagslegur styrkur
þeirra ætti að gera félaginu kleift að
nýta sér til fulls áunna sérþekkingu.
Reynslan mun skera úr um það hver
árangurinn og þar með hagkvæmnin
verður, en við sjáum umtalsverða
möguleika erlendis á þessu sviði. Fiski-
stofnar á þessum slóðum eru mjög
vannýttir og til að byrja með verður
Úthafssjávarfang með rekstur á tveim-
ur togurum á austurströnd Bandaríkj-
anna sem eru með vinnslubúnað fyrir
sfld og makrfl. Það verkefni var gang-
sett af Samherja fyrr á þessu ári.
Makrfl- og sfldarstofnarnir í Banda-
ríkjunum hafa verið í mjög mikilli lægð
undanfarna tvo áratugi en eru komnir
í gott ástand núna og svo er hægt að
efla verulega veiðar. Þekking á veiðum
þar er skiljanlega mjög takmörkuð
vegna þess að veiðar hafa verið litlar
og eins er skipastólinn til þessara
veiða ekki mjög góður eða fullkominn
og vinnsla takmörkuð.
Það er mjög skynsamlegt þegar fyr-
irtæki hérlendis fara út á erlendan
markað að þau starfi saman, þannig er
hægt að ráðast í stærri verkefni en ella
ef hver væri í sínu horni. Markmið fé-
lagsins er einnig að horfa samhliða til
víðtækari möguleika á þátttöku í sjáv-
arútvegi erlendis á sviði uppsjávar-
fiska.“
Nú eiga þessi fyrirtœki töluvert
stóran fiskiskipaflota og mjög fullkom-
inn. Kemur til greina að senda einhver
þeirra skipa til veiða við Bandaríkja-
strendur?
„Nei, það er útilokað því að skip
sem veiða í landhelgi Bandaríkjanna
verða að vera smíðuð þarlendis. Við
erum hins vegar í samstarfi við aðila í
Bandaríkjunum um skipakost."
Hver verður framkvœmdastjóri
Úthafssjávarfangs?
Starfsemin fer fyrst og fremst fram
erlendis og það verður einhver þar-
lendur stjórnandi. Við erum í samstarfl
við þarlenda aðila um útgerð á þessum
tveimur togurum og stjórnandi þess
fyrirtækis er bandarískur."
Kemur til greina að samstarf þess-
ara þriggja fyrirtœkja verði einnig hér-
lendis, t.d. þegar loðnu- og síldarver-
tíð er ífullum gangi?
„Það hefur ekkert verið hugsað í þá
áttina, en við erum nú þegar í ákveðnu
samstarfi. Þannig hefur Samherji verið
í viðskiptum við bæði Sfldarvinnsluna
og SR- mjöl í löndun á uppsjávarfíski."
GG