Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 12. september 1997 Jlagur-'ðSimmt Fundarboð Aðalfundur Fiskiðjunnar Skagfirðings vegna reikning- sársins 1996 verður haldinn fimmtudaginn 18. septem- ber 1997 kl. 20. Fundarstaður: Kaffi Krókur. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. 2. Önnur mál. Ársreikningur Fiskiðjunnar Skagfirðings 1996 liggur frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis. Stjórn Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. Pentium MMX 200 MHz Staóalbúnaður: Pentium MMX 200 MHz 32 MB EDO vinnsluminni (stækkanleg í 128MB) 512 KB Pipelined Burst Cach skyndiminni 3,2 GB Quantum Fireball harður diskur 15" hógæða SVGA litaskjár (14", 17" og 21" fáanlegir) 2MB ATI 3D booster skjákort 3,5" disklingadrif, mús og lyklaborð Windows 95 Nýtt - Tveir geisladiskar uppfullir af fræðslu og fróðleik fylgja frítt með. 20 hraða geisladrif 16 bita Soundblaster Kl/. — 25 W hátalarar NU QÖeinS T| lvutæki 149.900,- Furuvöllum 5, sími 461 5000 Haustvörur í hæsta gæðaflokki frá París og Finnlandi. QHA Opiö virka daga 11-18 Laugardaga 11-14 Vestmannaeyjar Tölfræði í stað huglægs mats í Vestmannaeyjum hefur hingað til eingöngu verið fyrir hendi hugiægt mat hvað varðar eldvirkni. Nýjum aðferðum beitt í áhættumati í Vest- mannaeyjum og á Hengilssvæðinu. Náttúrustofa Suðurlands vinnur nú að drögum að áhættumati fyrir Vest- mannaeyjar og Hengilssvæðið. Fyrir skömmu var spænski jarðfræðineminn Nieves Alcant- ara í Eyjum á vegum Náttúru- stofu að vinna við þetta rann- sóknarverkefni ásamt Ármanni Höskuldssyni, forstöðumanni Náttúrustofu Suðurlands. Vinna hennar fól m.a. í sér þá nýjung að reynt er að nálgast hættu- matið á tölfræðilegan máta. Tölfræðileg vinnsla slíkra gagna auðveldár til muna frekara skipulag framkvæmda og alla útreikninga á raunverulegri hættu er byggðum búlum stafar af gefnum náttúruvám. Verk- efnið er fjármagnað af alþjóð- legum tryggingarfélögum í samvinnu við háskólann í Madrid og Náttúrustofu Suður- lands. Jarðfræðineminn Nieves Alc- antara segir rannsóknirnar hér á landi vera mjög áhugaverðar, sérstaklega í Eyjum, þar sem eldsumbrot voru fyrir 24 árum í byggðu bóli. Hún er þessa dag- ana að safna tölfræðilegum upplýsingum um Vestmanna- eyjar með ýmis konar mæling- um til að leggja drög að áhættumati sem byggir á töl- fræðilegri vinnslu gagua. Ármann segir að áhættumat sé oft huglæt. f þessu tUviki sé verið að vinna tölfræðilega út- tekt sem býður upp á enn ítar- legra mat á áhættuþáttum. Verið er að mæla hér allt sem hægt er að mæla og út frá því metið hver líkindadreifingin í áhættumatinu er. í Vestmannaeyjum hefur hingað til eingöngu verið fyrir hendi huglægt mat hvað varðar eldvirkni, að sögn Ármanns. Fari svo í framtíðinni að eldgos geri vart við sig, ætti að vera hægt að sjá hvar mestu áhættu- punktarnir eru og þannig hægt að vera einu skrefi á undan. Áhættumatið sem nú sé verið að vinna að í Vestmannaeyjum sé því löngu tímabært. Nauð- synlegt sé að átta sig á þeirri náttúruvá sem er fyrir hendi. „Aðrir aðilar fjármagna verkefnið en það er unnið á staðnum. Það er mikill kostur fyrir okkur í svona lftilli stofu að vera í samstarfi við stærri aðila til að komast yfir fleiri rannsöknarverkefni. Fleiri jarð- fræðisamstarfsverkefni eru í bf- gerð sem við bindum miklar vonir við,“ sagði Ármann. ÞoGuÆyjum Ólafsfjörður Atvmnuleysið horfið veir togarar útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Þormóðs ramma - Sæ- bergs á Siglufirði og Ólafsfirði, ísfisktogararnir Sólberg og Múlaberg, hafa verið á rækju- veiðum á heimaslðð og landa aílanum til vinnslu í rækjuverk- smiðju útgerðarinnar á Siglu- firði. Þeir höfðu heimahöfn í Ól- afsfirði fyrir sameiningu fyrir- tækjanna Þormóðs ramma og Sæbergs. Hvannaberg er á rækjuveiðum á Flæmingja- grunni en Engey er í Smugunni, var á Reykjaneshrygg en aflaði lítið. Sigurbjörg, togari Magnús- ar Gamah'elssonar, var að koma úr Smugunni með 30 milljóna krúna aflaverðmæti, en síðan fer skipið í slipp í Póllandi en fyrirhuguð er mikil klössun á skipinu. Frystiskipið Mánaberg, eign Þormóðs ramma - Sæ- bergs, fer í klössun eftir áramót og er kostnaður áætlaður vel á þriðja hundrað milljónir. Fyrir- hugað er að lengja skipið og framkvæma vélaskipti. Næg atvinna er í Ólafsfirði, og nú eftir að skúlar byrjuðu og skólafólk hvarf af vinnumark- aðnum vantar starfskrafta t.d. í fiskvinnsluna, t.d. til fyrirtækj- anna Brimness og Sæunnar Axéls. Það er mikil breyting frá því á sl. vetri er starfsfólki Hraðfrystihúss Ólafsíjarðar var sagt upp störfum og gífurlegt atvinnleysi blasti við bæjarbú- um. Nægjanlegt hráefni er til staðar þrátt fyrir að áðurnefnd- ir togarar landi ekki í Ólafsfirði, a.m.k. um stundarsakir. GG Lokahóf unglinga hjá knattspyrnu- deild Þórs verbur haldiö sunnudag- inn 14. sept. kl. 14 í Hamri. Útboð Raufarhafnarhreppur óskar eítir tilboðum í 2700 rúm- metra jarðvegsskipti vegna lagningu bundins slitlags á götur á Raufarhöfn. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raufarhafnar- hrepps frá og með fimmtudeginum 11. september. Skila þarf tilboðum á skrifstofu Raufarhafnarhrepps íyrir kl. 14 mánudaginn 22. september nk. Tilboðin verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska að vera nærstaddir. Raufarhafnarhreppur, Aðalbraut 2, 675 Raufarhöfn, sími 465 1151, fax 465 1121

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.