Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Blaðsíða 10
10- Föstudagur 11. september 1997
^Dagur-'SItmmn
SUJ heldur sambandsstjórnarfund
föstudagskvöldiö 12. september í
húsi flokksins við Hverfisgötu í
Reykjavík.
Fundur hefst kl. 19.
Mætum öll.
Framkvæmdastjórn SUJ.
Vélstjórafélag Islands
Vélstjórar
Félagsfundur verður haldinn föstudaginn 12. september að
Borgartúni 18, Reykjavík, 3. hæð. Fundurinn hefst kl. 17.
Fundarefni: Uppstilling til stjórnarkjörs.
Vélstjórafélags íslands.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Framboðsfrestur
✓ t
Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur um fulltrúa á 21. þing Landssambands ís-
lenskra verzlunarmanna. Kjörnir verða 55 full-
trúar og jafnmargir til vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Húsi versl-
unarinnar, fyrir kl. 12 á hádegi mánudaginn 15.
september nk.
Kjörstjórn.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. september 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 15. útdráttur
4. flokki 1994 - 8. útdráttur
2. flokki 1995 - 6. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 12. júní.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cR] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
|j HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
BELTIN
UMFERÐAR
Iráð
Meistaraslagur
/ KA-heimilinu
Það verður sannkallaður meistaraslagur í KA-heimilinu í kvöld þegar lið
íslandsmeistara KA og bikarmeistara Hauka mætast.
Hin árlega viðureign ís-
landsmeistaranna og bik-
armeistaranna fer fram í
kvöld klukkan 20 í KA-heimilinu.
Dagur-Tíminn ræddi við þjálfara
liðanna, Atla Hilmarsson hjá KA
og Sigurð Gunnarsson hjá Hauk-
um, um komandi átök og vetur-
inn framundan.
KA-liðið teflir fram gjör-
breyttu liði í vetur. Átta leikmenn
ákváðu að hætta eða leita annað
eftir síðasta keppnistímabil, en
síðan hefur einn þeirra, Her-
mann Karlsson markvörður,
ákveðið að leika áfram með lið-
inu. „Veturinn leggst vel í mig, en
okkur vantar enn nokkra leikæf-
ingu og þá sérstaklega að koma
Karel Yala betur inn í spilið, því
hann kom mjög seint til okkar.
Ég á von á því að þetta verði allt
öðruvísi KA-lið heldur en í fyrra,
ekki síst með tilkomu Yala. I>á á
ég von á þvf að varnarleikurinn
breytist mikið. Erlingur er farinn
og sama máli gegnir um Alfreð,
þannig að ég á von á því að það
geti reynst erfitt að stilla upp 6-0
vörn. Líldega munum við oftar
grípa til þess að leika 3-2-1 í
varnarleiknum," sagði Atli.
Sigtryggur Albertsson, einn
besti markvörður deildarinnar í
fyrra, er nú kominn í KA- markið
og þá hefur liðið fengið Hilmar
Bjarnason frá Eintracht Hildes-
heim og örvhentu skyttuna Karel
Yala. Síðan verður fróðlegt að
fylgjast með yngri leikmönnum
sem efiaust eiga eftir að banka á
dyrnar, en norðanliðið varð ís-
landsmeistari, bæði í 2. og 3.
flokki sl. vor og því ætti efniviður
að vera fyrir hendi.
Aðspurður um það hvort Atli
fyndi ekki fyrir pressu að þjálfa
lið íslandsmeistaranna, sagði
hann svo ekki vera. „Auðvitað
veit ég af því að fólk vill ekki
minnka við sig. Metnaðurinn er
til staðar, en ég verð ekki var við
pressu, þó auðvitað vilji allir
leggja íslandsmeistarana að
velli.“
„Veturinn leggst þokkalega í
mig,“ sagði Sigurður Haukaþjálf-
ari. „Við erum, eins og önnur lið,
að glíma við meiðsli og höfum
verið með lykilmenn meidda.
Halldór Ingólfsson hefur til að
mynda ekkert getað leikið með
okkur og svo hafa minni háttar
meiðsli verið að plaga leikmenn."
Litlar breytingar hafa orðið á
Haukaliðinu í sumar. Óskar Sig-
urðsson hornamaður hefur lagt
skóna á hilluna, en í staðinn hafa
bikarmeistararnir fengið tvo
hornamenn, þá Daða Pálsson frá
ÍBV og Einar Jónsson frá Gróttu,
en sá síðarnefndi er reyndar
Haukamaður að upplagi. Þá mun
línumaðurinn Ilinrik Bjarnason
styrkja leikmannahópinn, en
hann lék með Víkingi í fyrra.
Ekki marktæk útkoma
Gengi liðanna var nokkuð mis-
jafnt á Opna Reykjavíkurmótinu
um síðustu helgi. Haukar féllu út
í átta liða úrslitum, en KA-menn
höfnuðu í þriðja sæti keppninnar.
Sigurður segist ekki taka út-
komuna í Opna Reykjavíkurmót-
inu allt of hátíðlega, enda hafi
liðið verið nýkomið úr erfiðri æf-
inga- og keppnisferð. „Á tímabili
íhuguðum við að draga lið okkar
út úr keppninni, en ákváðum að
vera með og fengum ágætis æf-
ingu fyrir þá leikmenn sem
minna hafa fengið að spila,“
sagði Sigurður.
Slæmar og góðar hlið-
ar
Atli sagðist hafa séð bæði slæma
og góða punkta hjá sínu liði á
mótinu um síðustu helgi. „Segja
má að við höfum fengið tvo
slæma skelli á mótinu, því við
töpuðum stórt fyrir FH og áttum
mjög slakan dag gegn ÍBV, þar
sem við náðum þó að knýja fram
sigur eftir framlengingu. Ég var
hins vegar mjög ánægður með að
einn besti leikurinn okkar skyldi
vera gegn ÍR, en það var okkar
sjötti leikur á tveimur döguin. í
þeim leik virtust mínir menn
vera í fínu formi og hafa gaman
af leiknum og það veit á gott,“
sagði KA-þjálfarinn.
Valsmenn sterkastir
íslandsmótið í handknattleik
hefst á næsta miðvikudag og
þegar þeir voru spurðir um lík-
lega íslandsmeistarakandidata,
þá komu sömu tvö liðin upp í
huga þeirra. „Valsmenn eru að
mínu mati með besta mannskap-
inn í deildinni og Afturelding er
Birgir Leifur Hafþórsson
vann sér í gær rétt til að
leika á úrtökumóti evr-
ópsku mótaraðarinnar í golfi,
þegar hann náði einu af tólf
efstu sætunum í forkeppni sem
haldin var á Fire Lakes vellin-
um í Englandi í gær. Birgir Leif-
ur lék tvo fyrstu hringina á 68
höggum, en kom inn á 73 högg-
um í gær, einu yfir pari og lék
því á sjö höggum undir pari í
heildina. Þeir keppendur sem
léku á sex undir pari, þurftu að
með betri mannskap heldur en í
fyrra,“ sagði Sigurður og bætti
því við að samt sem áður væri
ekkert lið afgerandi. „Ég á von á
því að deildin verði bæði sterkari
og jafnari heldur en í fyrra.“
Atli var sömu skoðunar. „Það
eru mörg lið sem koma til með
að kljást í toppbaráttunni. Maður
sá það í Reykjavíkurmótinu að
það voru öll liðin að tapa leikj-
um. Valsmenn verða sterkir og
Afturelding er með góðan mann-
skap og þegar Framarar verða
komnir með sína menn úr
meiðslum, verða þeir öflugir. Þá
eru Haukar með lítið breytt lið
og þeir mæta örugglega sterkir
til leiks.“
HANDBOLTi
Gladun leikur
ekkimeðKA
KA-menn hafa ákveðið að
ganga ekki til samninga við
Alexander Gladun, sem leikið
hefur með liðinu að undan-
förnu. Ljóst er því að KA-menn
munu aðeins tefla fram einum
erlendum leikmanni í vetur.
leika bráðabana um sæti á
meðal þeirra tólf efstu og rétt-
inn til að keppa á úrtökumót-
inu, sem haldið verður á La
Manga vellinum á Spáni.
Birgir byrjaði illa í gær og
Iék fyrri níu holurnar á fjórum
höggum yfir pari. Hann náði
hins vegar fjórum fuglum í röð
á næstu holum og var því á pari
vallarins. Hann lék síðan loka-
holuna á einu yfir og lauk því
leik á 73 höggum, - einu höggi
yfir pari vallarins.
GOLF • Úrtökumót
Birgir Leifur
komst áfram