Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Page 3
|Dagur-®tmtrm
Miðvikudagur 17. september 1997 - 3
F R E T T I R
Forsjármál
Stjómvöld kærð til Strassborgar
Málið þæft, tafið og
svæft
André Miku Mpeti. Með fulltingi stjórnvalda í Kongó hefur forsjármál hans og meðferð þess hér á landi verið
kært til Evrópudómstólsins í Strassborg.
Forsjár- og umgengn-
isdeila manns frá
Kongó og íslenskrar
konu kemur 1. októ-
ber til kasta Evrópu-
dómstólsins.
André Miku Mpeti, við-
skiptafræðingur frá
Kongó, sem dvalið hefur
hér á landi um árabil, hefur
með fulltingi stjórnvalda í
heimalandi sínu kært til Evr-
ópudómstólsins í Strassbourg
meðferð á forsjármáli sínu hér
á landi og þátt íslensks stjórn-
og dómsvalds í því.
Verður málið tekið til fyrra
stigs meðferðar í Strassbourg 1.
október næstkomandi, en þá
verður ákveðið hvort málið fer
alla leið til úrskurðar.
André Miku hefur um nær
fimm ára skeið barist fyrir því
að fá forsjá, en til vara virkan
umgengnisrétt, yfir tveimur
börnum sínum með íslenskri
konu. Fyrir hggur úrskurður
um forsjá móðminnar, sem
hann véfengir. Sjálfkrafa réttur
hans til umgengni, sem byggir á
58. grein barnalaga, hefur ekki
verið virtur að hans sögn, þrátt
fyrir ítrekaðar óskir til yfirvalda
um liðsinni.
Synir hans og konunnar eru sex
ára og tæplega fimm ára, en þá
hefur André ekki fengið að sjá
eða hitta frá því um jólin 1992,
þegar yngri sonurinn var ný-
fæddur. Segir hann að sonum
sínum hafi kerfisbundið verið
haldið frá sér.
André segir að stjórnsýslu-
og dómskerfið hér hafi með
fulltingi lögfræðinga gert sitt
ítrasta til að þæfa málið, teíja
og svæfa. Hafi þar ýmsum
brögðum verið beitt og honum
jafnvel hótað að hann yrði
gerður brottrækur frá landinu.
André hefur leitað allra ráða
til að ná rétti sínum fram, með
eða án aðstoðar íslenskra lög-
fræðinga, en segir að alls stað-
ar hafi honum verið settur stóll-
inn fyrir dyrnar. Um leið hefur
óyggjandi rétti hans til um-
gengni við drengina aldrei verið
framfylgt af yfirvöldum, þótt sá
réttur sé skýr og óumdeildur.
Segir André að rétt eins og Ha-
lim A1 í Tyrklandi sé falið fyrir
honum hvar drengirnir séu og
haldi hann nú helst að þá sé að
finna á Norðurlandi.
Dómsmálaráðuneytið
tjáir sig ekki um málið
„Ég fer með mál mitt til Strass-
bourg vegna þess að ísiensk
stjórnvöld hafa ekki getað virt
íslensk lög, sérstaklega barna-
lög frá 1992, né heldur alþjóð-
leg lög og sáttmála Evrópuráðs-
ins og Sameinuðu þjóðanna -
öll þessi fimm ár minnar bar-
áttu. Mannréttindi hafa ítrekað
verið brotin á mér kerfisbundið
allan tímann. Ég leitaði aðstoð-
ar stjórnvalda heimalands
míns, sem hafa hringt og skrif-
að til íslenska dómsmálaráðu-
neytisins. Eina svar þess var
skammarlegt bréf, þar sem
vanvirðingin er alger. Bréf þetta
verður eitt sterkasta gagnið í
máli mínu í Strassbourg," segir
André Miku Mpeti.
í dómsmálaráðuneytinu var
blaðamanni Dags-Tímans vísað
á Drífu Pálsdóttur skrifstofu-
stjóra. Hún vildi ekki tjá sig um
þetta tiltekna mál og benti á að
stjórnvöldum væri óheimilt að
tjá sig um einstök mál við fjöl-
miðla. fþg
Höfði
I gær voru kynnt úrslit í samkeppni um hönnun húsgagna í Höfða,
móttökuhús Reykjavíkuborgar. Hlutskörpust í samkeppninni varð
Pórdís Zoéga húsgagna- og innanhúsarkitekt sem hér sýnir borg-
arstjóra og Hildi Kjartansdóttur formanni dómnefndar tiilögur
SÍnar. Mynd: E.ÓI.
Vinnumiðlanir
Um 240 störf
álausu
Atvinnuleysi hið
minnsta í þrjú ár og bú-
ist við frekari fækkun í
september.
Nær 240 laus störf voru
skráð hjá vinnumiðlun-
um í ágústlok, Ijórfalt
fleiri en næstu mánuði á undan.
Atvinnulausum fækkaði líka
langt umfram venju milli júlí og
ágúst, í 3,2% af mannafla sem
er lægsta hlutfall í þrjú ár.
„Meðal skýringa eru vaxandi
eftirspurn seinni hluta ágúst
eftir starfsfólki m.a. í fisk-
vinnslu, skólastarf, bæjarvinnu,
framkvæmdir, kjötvinnslu,
verslun og þjónustu ekki síst
vegna fækkunar skólafólks á
vinumarkaði samfara aukinni
eftirspurn," segir í yfirliti
Vinnumálastofnunar, sem býst
við að atvinnulausum muni enn
fækka núna í september.
Atvinnuleysi meðal kvenna
mældist rúm 5% eða næstum
þrisvar sinnum meira en hjá
körlunum. - HEI
Lífeyrissjóðir
Standa ekki aUir
við skuldbindingar
Almennt er afkoma og
ávöxtun eigna lífeyris-
sjóða góð. Nokkrir sjóð-
ir eiga þó ekki fyrir
skuldbindingum sínum.
Staða lífeyrissjóða er misjöfn
eins og fram kemur í árs-
reikningum þeirra og upp-
lýsingum um íjárhagsstöðu sem
bankaeftirlit Seðlabanka íslands
hefur gefið út. Þar kemur fram
að nokkrir sjóðir verða að grípa
til róttækra aðgerða til að
standa félagsmönnum sínum
skil á lífeyrisgreiðslum. Nokkrir
þeirra eru í þeirri stöðu að þeir
fá ekki iðgjöld lengur þannig að
sá tekjustofn er ekki lengur fyrir
hendi.
Að sögn Ragnars Hafliðason-
ar, aðstoðarforstöðumanns
bankaeftirlitsins, voru lífeyris-
sjóðirnir settir undir eftirlitið ár-
ið 1991 meðal annars til þess að
eftirlitið gæti gert athugasemdir
og komið í veg fyrir að sjóðir
tæmdust og hluti sjóðfélaga
fengi ekki greitt úr þeim. Ragn-
ar sagði að ýmsar skýringar
væru á bágri stöðu sumra sjóða.
Sumir væru of litlir og áhættu-
dreifing útgreiðslna lítil, auk
þess sem sumir þeirra hefðu
rýrnað verulega í óðaverðbólgu
fyrri ára. Almennt séð hefði
ávöxtun sjóðanna verið góð frá
1991 þegar bankaeftirlitið hóf
eftirlit með þeim. IIH
Samhjálp
Sækja í frían
Aðsóknin á kaffistofuna
hefur aukist vegna
þess að fleiri vita af
okkur, segir Óli Ágústs-
son, forstöðumaður
Samhjálpar
Hvítasunnumanna.
s
g veit ekki hvort skjólstæð-
ingum okkar er að íjölga en
aðsóknin til okkar hefur
aukist vegna þess að fleiri vita af
okkur. Á síðasta ári voru skráðar
18.000-19.000 komur á kaffistof-
una okkar,“ segir Óli Ágústsson,
Óli Ágústsson, forstöðumaður
Samhjálpar Hvítasunnumanna.
Mynd: E.ól.
mat
forstöðumaður Samhjálpar Hvíta-
sunnumanna.
Á fundi félagsmálaráðs í lok sl.
mánaðar var lagt fram bréf frá
forstöðumanni Samhjálpar þar
sem farið var fram á fjárstuðning
vegna breytinga á kaffistofu safn-
aðarins. Samþykkt var að vísa
máhnu til umsagnar félagsmála-
stjóra og til gerðar Ijárhagsáætl-
unar fyrir komandi ár.
„Þetta hefur verið svona síg-
andi ólukka þessi þróun hjá okk-
ur, en engin bomba,“ segir Óli.
Hann segir þá sem þiggja ókeypis
mat hjá Samhjálp séu meSt neð-
anmálsfólk sem gistir einnig í
gistiskýli Samhjálpar að Þing-
holtsstræti. -grli