Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Síða 4
4 - Miðvikudagur 17. september 1997
|Dagur-'2Itmmn
Foreldrar barna í Brekkuskóla!
Aðalfundur foreldrafélaga B.A. og G.A. ásamt stofn-
fundi nýs foreldrafélags og kjöri í foreldraráð Brekku-
skóla verður haldinn fimmtudaginn 25. september kl.
20 í Gagnfræðaskólahúsinu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnir foreldrafélaganna.
BORGARSKIPULAG REYKJ/VÍKUR
Laugavegur 53b
uppbygging lóðar
Til kynrangar m tiMaga að LpfÆiyggingu að
Laugavegi 53b. Um er að ræða verslurtar- og
þ|ónustuhúsnaeðí ósamt ibtiöum. Tillagan verður til
sýnis í kynningarsai Borgarskipulags og byggingar*
fulltrúa að Borgartúni 3,1. hæð, ki. 09:00 - 16:00
virka daga og stanciur ti! 9, okt 199?,
Ábendingum og athugasemdum skal skiia skríffega
til Boígarskípulags, Borgartúni 3,105 Reyk|avík eigi
siðar en 9, okttífeer n.k.
|$| Slippstöðin hf
Verkamenn
Slippstöðina h.f. vantar verkamann nú þegar til
starfa í nokkrar vikur.
Gæti verið um framtíðarstörf að ræða fyrir góða
menn.
Upplýsingar hjá Ólafi Sverrissyni í síma 461 2700
milli kl. 8 og 16 eða á skrifstofunni á sama tíma.
Slippstöðin h.f.
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavík,
__________sími 464 1300__________
Uppboð
Framhaid uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Ásgata 12, Raufarhöfn efri hæð,
þingl. eig. Sigrún Björnsdóttir, gerð-
arbeiðendur Rydens-kaffi og Sýslu-
maðurinn á Húsavík, föstudaginn
26. september 1997 kl. 12.30.
Fossvellir 10, Húsavík, þingl. eig.
Brynjar Þór Halldórsson, gerðar-
beiðandi Sparisjóður Akur-
eyrar/Arnarneshr., fimmtudaginn
25. september 1997 kl. 13.30.
Garðarsbraut 69, Húsavík 4. h. til
vinstri, þingl. eig. Hrafnhildur S.
Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna,
fimmtudaginn 25. september 1997
kl. 13.
Hallgilsstaðir I, Þórshafnarhreppi
(undansk. hús ’33 og ’74 ásamt
lóð), þingl. eig. Jónas Lárusson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
ríkisins, Olíufélagið hf. og Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, föstu-
daginn 26. september 1997 kl. 15.
Lindarholt 6, Raufarhöfn, þingl. eig.
Jón Eiður Jónsson, gerðarbeiðandi
Byggingasjóður verkamanna,
föstudaginn 26. september 1997 kl.
13.00.___________________________
Pálmholt 1, Þórshöfn, þingl. eig.
Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna,
föstudaginn 26. september kl.
16.30.___________________________
Pálmholt 15, Þórshöfn, þingl. eig.
Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna,
föstudaginn 26. september kl. 17.
Sunnuvegur 8, Þórshöfn, þingl. eig.
Björgvin Axel Gunnarsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
föstudaginn 26. september 1997 kl.
16.
Sýslumaðurinn á Húsavík, 16.
september 1997.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr.
BELTIN
%*a
iÍRÁÐ
F R É T T I R
Alþingi
Eldri skróplistar
verða ekki birtir
Forseti Alþingis segist
ekkl kippa sér upp við
það þótt þingmenn
sitji ekki allir alltaf
undir mis gáfulegum
ræðum í þingsal, en
öllu verra sé hversu
illa margir mæti á
nefndarfundi.
að er grundvallarmunur á
því hvort þingmenn mæta
vel eða illa á þingfundi
eða þingnefndarfundi. Ég kippi
mér ekki upp við að menn sitji
ekki undir misjafnlega gáfuleg-
um ræðum í þingsal, en annað
mál gegnir um nefndarfundina.
Ég vil ekki birta mætingarlista
sem nær yfir það sem liðið er,
en hef látið að því liggja að op-
inbera viðveruna í framtíðinni
ef það mætti verða, með öðru,
til að gera mönnum ljósa skyldu
sína,“ segir Ólafur G. Einarsson
þingforseti.
ðlafur sagðist nýverið alvar-
lega íhuga að birta skrá yfir við-
veru þingmanna, en tók skýrt
fram að það ætti við um nefnd-
arfundi en ekki þingfundi í sal.
„Það hefur verið kvartað yfir
mætingum á þingnefndarfundi,
af formönnum nefnda og það er
ekki kurteisi að mæta illa, sér-
staklega ef gestir eru viðstadd-
ir,“ segir Ólafur.
Álagið er misjafnt eftir þing-
nefndum og oft erfitt að sam-
ræma fundarhöld, einkum í erl-
inum rétt fyrir þinghlé fyrir jól
og að vori til. Mestur er erillinn
í íjárlaganefnd, sem hélt 64
fundi á sl. ári og efnahags- og
viðskiptanefnd hélt 57 fundi.
En hefur þingforsetinn
áminnt einstaka þingmenn,
munnlega eða skriflega - tekið
þá á beinið? „Nei, ég hef ekki
verið með neinar slíkar athafnir.
Þetta er fullorðið fólk sem á að
gæta sín.“
Hafrannsóknir
Rannsóknir á Suðurdjúpi
~ ^=============== rannsóknastofnunar næstu
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunnar, kynnti ný-
lega starfsáætlun hennar tii næstu
5 ára.
Fimm ára starfsáætl-
un. Nýtt skip um mitt
ár 1999. Áhersla á
veiðiráðgjöf.
Vísindamenn á Hafrann-
sóknastofnun telja að
með tilkomu nýs og öfl-
ugs rannsóknaskips verði hægt
að ráðast í rannsóknaátak í
Suðurdjúpi. Gert er ráð fyrir að
smíði nýja skipsins verði boðin
út á næstunni og það verði til-
búið um mitt ár 1999.
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi á föstudag, þegar
kynnt var starfsáætlun Haf-
fimm árin, eða til ársins 2001.
í Suðurdjúpi gera menn sér
vonir um að hægt verði m.a. að
rannsaka karfa og veiðiþol
hans, vistfræði hafsvæðisins,
smokkfisk og túnfisk. Þá er ekki
útilokað að í Suðurdjúpi megi
finna aðrar nýtanlegar fiskteg-
undir. Auk þess verður með
nýja skipinu hægt að stunda
rannsóknir á Reykjaneshrygg, í
Austurdjúpi og rannsóknir á
veiðarfærum.
Sem fyrr er lögð áhersla á
það í starfsáætlun Hafró að
sinna rannsóknum sem tengjast
veiðiráðgjöf með beinum og
óbeinum hætti, þ.e. stofnmæl-
ingar, nýliðarannsóknir, veiðitil-
raunir og rannsóknir á um-
hverfisaðstæðum. -grh
Neytendasamtökin
Fákeppni á tryggmgamarkaði?
s
g fagna aukinni sam-
keppni á tryggingamark-
aðnum án þess að ég vilji
leggja mat á hvort svigrúm er
fyrir lækkun á heimilistrygging-
um. Reyndar er ekki langt síð-
an að við sáum könnun á Norð-
urlöndunum þar sem borin
voru saman iðgjöld lffeyris-
trygginga og heimilistrygginga.
Þar kom fsland ágætlega út,“
segir Jóhannes Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna.
Fram kom í Degi-Tímanum
nýverið að FÍB-Trygging hyggst
hasla sér völl í heimilistrygging-
um í gegnum alþjóðlega miðl-
un. Jóhannes sagði að ýmis
teikn bentu til að fákeppni ríkti
á tryggingamarkaði og tilkoma
FÍB-tryggingar hefði sannar-
lega stórlækkað iðgjöld af bíla-
tryggingum. BÞ