Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Síða 1
~~JP2H322Í3HI
Fíflar og ruimar að
springa út á jólum
Sum vorblóm og
runnar virðast hafa
ruglast í ríminu í nóv-
emberkuldanum og
haldið að veturinn
væri búinn.
Landsmönnura er örugg-
lega flestum tamara að
líta á túnfífla sem vorboða
heldur en jólablóm. Það vekur
því óneitanlega athygli að sjá
hálfútsprungna fífla hingað og
þangað í görðum Reykvíkinga á
þrettándanum. Páskaliljur,
krókusar og túlípanar virðast
líka eitthvað vera að ruglast í
ríminu og sömuleiðis sumar
tegundir innfluttra runna.
Garðyrkjustjórinn í Reykjavík,
Jóhann Pálsson, var spurður
hvort það sé hugsanlegt að
langvarandi frost í nóvember
með óvenjulegum hlýindakafla
á eftir hafi ruglað sumar plönt-
ur svo í ríminu að þær hafi
haldið að vorið væri komið nú
um jólaleytið. „Það gæti verið,
vegna þess að kuldinn hefur
reynt töluvert á plönturnar. Þær
eru búnar að fá kuldasjokk og
farið að ganga á svefnlyfin
þeirra, þannig að þær geta
raknað úr rotinu þegar kemur
svona óvænt hitabylgja," sagði
garðyrkjustjóri.
„Aftur á móti varð maður
ánægður að það skuli aftur
vera að kólna. Því komi mikil
hitaköst um þetta leyti þá geta
runnar farið að hreyfa sig úr
þessu. Þeir hafa þó ekki brum-
að það mikið að það sé hætta af
því ennþá. En úr þessu vill
maður ógjarnan fá of langa hlý-
indakafla fyrr en að vori,“ sagði
Jóhann Pálsson.
Reykjavík í gær. Fífill í húsagarði og runni að
vakna til lífsins. Mynd: i
Ólafsfjörður
Hröpuðu tíu metra á
véisleða í ískaldan sjó
Lífið í landinu
Fátækir bera
sig frekar
eftir aðstoð?
Fátækt
á ís-
landi
óx gríðar-
lega árin
1990 til
1995 en
hefur
minnkað
aftur milli
ára 1995 og
1996, samkvæmt niðurstöðum
könnunar, sem Stefán Ölafsson
og Karl Sigurðsson hjá Félags-
vísindastofnun hafa gert. Þeir
sem veita fátækum aðstoð telja
hins vegar að fátækt hafi staðið
í stað eða aukist árið 1996.
Cecil Haraldsson fríkirkju-
prestur segir þó skýringuna á
íjölgun milli ára kunna að vera
þá að fátækir séu orðnir með-
vitaðir um að þeir tilheyri
tekjulægstu hópum þjóðfélags-
ins og beri sig frekar eftir að-
stoð en áður. -GHS
Sjá umfföllun um fátœkt
á íslandi á bls.14 og 15.
13 ára gömul stúlka
slasaðist töluvert á
baki þegar vélsleði
sem faðir hennar ók
fór fram af 10 m hárri
syllu í Kleifum við
Ólafsfjörð og hafnaði
í ísköldum sjónum
sl. laugardag.
Feðginunum tókst að kom-
ast upp úr sjónum á eigin
spýtur og fóru um 100 m
leið upp í hlíðina þar sem faðir-
inn skaut upp neyðarblysi sem
hann ber ávallt innan klæða
þegar hann fer á fjöll. Það
reynist nothæft þrátt fyrir að
hafa lent í sjónum og náði at-
hygli Gunnars Steinssonar sem
var á ferð í nágrenninu á bíl
sínum. „Ég var að
keyra þarna út eft-
ir og sá neyðar-
blysið á brúnni við
Ytri-Á. Þegar ég
nálgaðist veifaði
maðurinn mikið
með höndunum og
ég hélt að til stæði
að fara að skjóta
upp einhverjum
kynstrum af rak-
ettum og hann
væri að benda mér á að snúa
við. Ég bakkaði því bflnum en
sá þá að hann veifaði af enn
meiri krafti, þannig að ég ók að
þeim og sá þá stúlkuna sem lá
á brúnni, grátandi og ísköld,
auk þess sem hún kvartaði
undan bakverkjum. Þau voru
bæði rennandi blaut í nístings-
frostinu,“ sagði Gunnar í gær í
samtali við Dag-Tímann.
Gunnar og faðir stúlkunnar
báru hana síðan varlega í bflinn
og óku síðan á Heilsugæslustöð-
ina í Ólafsfirði. Eftir skoðun þar
var hún flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og dag-
inn eftir var flogið með hana til
Reykjavíkur þar sem hún liggur
nú á barnadeild Landspítalans.
Líðan hennar mun eftir atvik-
um.
„Að sögn Gunnars eru litlar
mannaferðir á þessu svæði en
slysstaðurinn er um 3 km frá
bæjarmörkum Ólafsfjarðar.
Hann segir að feðginin hafi
bæði verið vel klædd og það
hafi eflaust bjargað miklu. „Það
var algjör tilviljun að ég fór
þarna út eftir og mér þykir
vænt um að hafa verið réttur
maður á réttum stað. Aðrir
höfðu séð ljósin en gerðu ekkert
með það enda engin nýlunda að
sjá blys á lofti í byrjim janúar,"
sagði bjargvætturinn Gunnar
Steinsson. BÞ
„Stúlkan lá á brúnni,
grátandi og ísköld, auk þess
sem hún kvartaði undan
bakverkjum. Þau voru bœði
rennandi blaut í nístings-
frostinu, “ segir bjargvættur-
inn, Gunnar Steinsson.
Lífift I lanrlinii
Ungt fólk
# pólitík
SÍMANÚMER
Á RITSTJÓRN ER
800 7080