Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Blaðsíða 9
íIB'- Jktgur-®ímimt Þriðjudagur 7. janúar 1997 - 9 ÞJOÐMAL Ekkert bolmagn í boLíiski Eins og kunnugt er hefur atvinnulíf í nokkrum sjávarplássum raskast verulega að undan- förnu. Má þar nefna Þingeyri á Vestfjörðum, Sauðárkrók og Hofsós á Nl. vestra og nú síðast fjöldaatvinnuleysi hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar. Dagur-Tíminn spurði fjóra þingmenn úr jafnmörgum flokkum um vanda þessara byggðarlaga, orsök vandans og leiðir til úrbóta varðandi framtíð bolfiskvinnslunnar. Sitt sýndist hverjum. Sighvatur Björgvinsson Rangar ákvarð- anir stjórnenda vega þungt etta er tví- þætt. Ann- ars vegar er þetta ástand afleiðing kvótakerfisins en hins vegar hafa verið teknar rangar ákvarðanir í rekstri einstakra fyrirtækja. Það er ekki hægt að einfalda málið með því að segja þetta aðeins vandamál tengt stjórnun fiskveiða, einstakar ákvarðanir ákveðinna fyrir- tækja eiga jafnvel stærri þátt í vandanum." Sighvatur segir að tilraunir um lagfæringu á fiskveiðistjórn- unarkerfinu hafi ekki hlotið náð fyrir augum Alþingis. Hins vegar hafi samruni fyrirtækja ieyst hluta vandans, dregið hafi úr stjórnunarkostnaði og samnýting og hagræðing hafi aukist. „Vandi bolfiskvinnslunnar í landi er fyrst og fremst sá að hráefnis- þátturinn í vinnslunni hefur far- ið vaxandi. Menn hafa brugðist við of litlu hráefni með því að kaupa eða leigja kvóta. Kvóta- verð hefur stöðugt farið hækk- andi þannig að kostnaðurinn við að afla hráefnisins vex stöðugt. Þetta þýðir í raun að eftir því sem hagur sjávarútvegsins batn- ar í heildina kemur það meira fram í hækkuðu kvótaverði fremur en bættri afkomu vinnsl- unnar. Þetta er vítahringur." Ánægður með Halldór Sighvatur segir að ef litið sé á sjávarútveginn í heiid sé arður- inn tekinn út með hækkaðri verðlagningu á aílaheimildum. „Hvernig er hægt að draga úr því? Það er ekki líklegt að það takist að lækka verð sem ákveðið er á markaði með einhverjum stjórnvaldsathöfn- um. Hins vegar er það viður- kennt lögmál í markaðsvið- skiptum að ef framboðið eykst ætti verðið að lækka. Þetta tel ég vera á bak við það sem Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráð- herra hefur lagt til. Það eigi að taka þá viðbót sem kann að vera ákveðin á næstu árum í kvótakerfinu og úthluta ekki eins og nú er gert heldur setja inn á þann markað þar sem kvótaviðskipti fara fram til að auka framboð og lækka verðið. Þetta er kjarninn í hugmyndum um veiðileyfagjald. Það er ánægjulegt að formaður Fram- sóknarflokksins hafi tekið undir sjónarmið okkar með þessum hætti, ég sé satt að segja ekki mörg önnur úrræði.“ Þingmenn ekki spurðir ráða Hvað um vanda Þingeyringa? „Þarna hafa orðið gríðarleg- ar breytingar til hins verra. Á fyrstu árum mínum í þing- mennsku var ómanneskjulegt vinnuálag meginvandmál Þing- eyringa vegna miklis landburð- ar af fiski. Bæði Kaupfélagið og útgerðarfyrirtækið stóðu mjög vel en fóru síðan út í ijárfest- ingar á viðbótarskipi sem stóð ekki undir sér. Niðurstaðan er sú að fyrirtækið er illa statt og hefur misst frá sér skipin. Stór hluti vandans þar stafar því af röngum ákvörðunum sem tekn- ar voru af stjórnendum fyrir- tækisins. Við þingmenn vorum ekki spurðir ráða, enda eru þeir ekki inni á gafli í rekstri einkafyrirtækja. Síðan þegar allt er komið í strand er okkur kennt um og sagt að við eigum að leysa þetta.“ En er til lausn? Sighvatur segir hana vandfundna en menn hafi skoðað tvær leiðir með milligöngu Byggðastofnunar. Báðar leiðirnar séu torsóttar og töluverðan tíma taki væntanlega að koma atvinnulífinu á Þingeyri í viðunandi horf. Lokaorð hans eru: „Það er staðreynd að þótt kvótakerfið hafi skapað Vestfirð- ingum mikil vandamál þá eru þarna fyrirtæki eins og Hrað- frystihúsið í Hntfsdal sem hefur komist vel í gegnum þau vanda- mál með skynsamlegri stjórnun. Þótt það megi kenna stjórnvöld- um um margt, þá má ekki kenna þeim um alla hluti. Menn hafa einfaldað þessi mál um of.“ Vilhjálmur Egilsson Skainmtíma- lausnir til lítils Hefðbundin land- vinnsla á bol- fiski hefur ekki þróast þannig á undanförn- um árum að hún haldi sam- Frá Hofsósi, gallinn settur í skápana. keppnishæfni sinni. Afurðaverð hefur lækkað á sama tíma og söltun sækir á auk þess sem fersk flök hafa verið flutt út í meiri mæli en áður. Einnig má benda á að þær vinnslugreinar í sjávarútvegi sem ekki hafa náð launakostnaði niður í 10-15% eru í erfiðleikum, kostnaðurinn í bolfiskvinnslu er of hár, hlutfall launa og hráefnis. Við þessar að- stæður gengur ekki að halda úti fyrirtækjum með hreinum taprekstri. Þá er mikilvægt að aðilar í atvinnurekstri ftnni leiðir til úrbóta en þær liggja ekki á lausu,“ segir Vilhjálmur Egilsson þingmaður. Kvóta til fiskvinnslu- stöðvanna „Það hefði átt að fara að tillög- um Tvíhöfðanefndarinnar sál- ugu, að heimila fiskvinnslu- stöðvum að eignast kvóta. Þá hefði jafnræðið milli vinnslu og veiða aukist. Ég tel fyllilega tímabært að taka upp þessa umræðu þannig að stöðvarnar geti boðið veiðarnar út.“ Hvernig meturðu atvinnu- ástandið í þínu kjördæmi? „Það eru erfiðleikar, sérstakiega á Sauðárkróki og Hofsósi þar sem menn hafa treyst á bolfiskinn. Ég held að þarna muni engar snöggar breytingar eiga sér stað, enda eru skammtíma- lausnir til lítils. Ég sé enda ekki að neinum sé gerður greiði með því að halda taprekstri áfram. Það verður að finna leiðir til að skila hagnaði og ein af þeim er þessi leið sem ég ræddi áðan, að gefa fiskvinnslustöðvum möguleika á að eiga kvóta án þess að eiga skip.“ Stefán Guðmundsson Fullvinnsla er- lendis skýtur skökku við Sjávarútvegsráðherra metur stöðuna þannig að ekki sé þörf á sértæk- um aðgerðum til bjargar landvinnsl- unni. Hitt er ljóst að vandi ýmissa byggð- arlaga er mjög alvarleg- ur og það er ekki bara vanda- mál viðkomandi íbúa heldur umhugsunarefni fyrir stjórn- málamenn, hvernig málum er komið,“ segir Stefán Guð- mundsson alþingismaður. Hann segir vanda land- vinnslunnar vera vandamál sem þurfi að skoða í mjög víðu samhengi og ekki megi gleyma hve miklir ijármunir hafi verið festir í landvinnslunni. En hann gagnrýnir einnig áherslur sölu- samtaka, s.s. SÍF. „Nú virðist orðið óhagkvæmt að vinna þessar afurðir hefðbundið, og ég spyr af hverju sölufyrirtæki hafa lagt áherslu á að fullvinna fiskafurðir erlendis á sama tíma og hér er engin áhersla á að vinna fiskinn aila leið í neyt- endapakkningar," segir Stefán Guðmundsson. Steingrímur J. Sigfússon Áratuga gamlir markaðir í húfi Eg hef var- að við þessu ástandi allt frá síðasta sumri og sagt að þetta gæti ekki endað öðruvísi en illa hjá ein- stökum fyrirtækjum og byggð- arlögum vegna hinnar lélegu afkomu í bolfiskvinnslu og þá sérstaklega í frystingunni," seg- ir Steingrímur J. Sigfússon. „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að vanda bolfiskland- vinnslunnar verði að skoða sér- staklega. Um leiðir til úrbóta má nefna að menn hefðu átt að láta það vera að hækka trygg- ingagjald og í öðru lagi mætti skoða óbeinar aðgerðir eins og t.d. að greiða fyrir aðgangi landvinnslunnar að hráefni." Steingrímur segir einnig mikil- vægt að henda „hinum vitlausu úreldingarreglum" og auka vinnslu á uppsjávarfiski beint til manneldis. „Það er mikill áhugi víða hjá fyrirtækjum að hverfa úr hefðbundinni botn- fiskvinnslu og einbeita sér að uppsjávarfiski eða flatfiski. Þessari þróun ætti að flýta því þá öðlast þau sem eftir verða meira olnbogarými." Fráleit fjarvistarsönn- un ríkisstjórnarinnar Steingrímur varar þó við hug- myndum um að hætta frystingu bolfisks enda séu markaðir í húfi sem tekið hafi áratugi að byggja upp. „Þetta snýst ekki bara um atvinnuhagsmuni í einslökum byggðarlögum held- ur líka þróun og framtíðar- möguleika íslensks sjávarút- vegs. Ef menn hætta í frystingu bolfisks meira og minna þá eru markaðir í húfi sem búið er að byggja upp áratugum saman. Stjórnvöldum ber að skipta sér af málum, það er hiklaust gert í nágrannalöndunum, hákapítal- ískum ríkjum. Þetta á ekkert skylt við kjaftæði um opinber afskipti heldur er þetta skyn- semi til að bjarga enn meiri hagsmunum. Fjarvistarsönnun ríkisstjórnarinnar, að henni komi málið ekki við, finnst mér fráleit. Menn ættu ekki að bjóða sig fram ef þeir líta þannig á að þeim komi ekki við ef atvinnu- lífið er að rústast í heilu byggð- arlögunum." Sérstaklega sagði Steingrím- ur um vanda Hraðfrystihúss Ól- afsijarðar að aukið samstarf og sérhæfing geti þar hjálpað til við að létta á vandanum.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.