Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.01.1997, Side 4
16- Þriðjudagur 14. janúar 1997
©agm-mramm
lÁtnBúðcííauót
Borgaralegt lýðræði II.
Hafi ráðamenn gert
mistök í starfi, að
mati þjóðar sem býr
við borgarlegt lýð-
rœði þá gjalda
þeir fyrir það.
Hvað er til ráða gegn ein-
ræði stjórnmálaflokk-
anna á íslandi? Hvernig
getur þjóðin náð völdunuin til
sín og haldið þeim? Því miður
finnum við enga fyrirmynd í
öðrum löndum einfaldlega
vegna þess að íslenskar aðstæð-
ur er sérstakar, bæði efnahags-
lega og sögulega. Borgaralegt
lýðræði er liklega eina formið
sem gæti átt við okkar litla
samfélag, þjónað þörfum þjóð-
arinnar betur og með skilvirk-
ari og réttlátari hætti en ein-
ræði stjórnmálaflokka. Einsog
þjóðin hefur sannreynt æ ofaní
æ standa stjórnmálaflokkar í
raun á milli þjóðarinnar og
raunverulegs lýðræðis. Þeir
eru flöskuháls í lýðræðisþróun-
inni og munu, ef ekkert breyt-
ist, kæfa á endanum það lýð-
ræði sem ennþá dregur and-
ann. Stjórnmálaflokkar vinna
ekki að framgangi lýðræðis.
Peirra eina markmið er að ná
völdum og halda þeim, kosti
það hvað það vill. I stað þess
þurfum við „Menn með mál-
efni“, fólk sem hefur hugsjónir,
vilja og áhuga á að starfa fyrir
þjóðina sem þingmenn eða ráð-
herrar. Fyrsta skrefið til þess
að breyta einræði flokkanna í
lýðræði fólksins í landinu er að
leysa upp alla stjórnmálaflokka
og skipulögð póhtísk samtök.
Annað skrefið er að breyta
kosningalögunum og
skipuleggja nýjar kosningar.
Kosningar til Alþingis, í borg-
arlegu lýðræði, yrðu tvískiptar.
Annars vegar gæfu einstakling-
ar kost á sér til þingmennsku,
hinsvegar gæfu einstaklingar
kost á sér til ráðherraembætta.
Þingmönnum yrði fækkað í 30.
Þeir 30 sem fá flest atkvæði eru
réttkosnir alþingismenn næsta
kjörtímabil. Færri munu að öll-
um líkindum bjóða sig fram til
hinna ýmsu ráðherraembætta,
þar sem kröfur um sérþekkingu
og mannkosti eru mun strang-
ari, en sæki til dæmis fjórir um
dómsmálaráðherraembættið er
sá réttkjörinn sem flest at-
kvæði fær. Störf þingsins myndu
breytast á þann hátt að þing-
menn munu ekki starfa í nefnd-
um. Þess í stað geta allir al-
mennir borgarar í landinu látið
skrá sig á lista, sem þingmenn
síðan velja af þegar ákveðið er
að setja saman nefnd um eitt-
hvert málefni. Fólk úr heil-
brigðisstétt myndi til dæmis
verða flokkað á listann undir
heilbrigðismálum osvfr. þannig
að þegar kæmi að því að velja
saman í nefnd um eitthvert at-
riði í heilbrigiðsmálum yrði fólk
af þeim lista valið saman. Með
þessum hætti mun reynsla og
starfsþekking hvers og eins
borgara í landinu nýtast allri
þjóðinni, fleiri sjónarhorn koma
inní umræðu hvers máls og
margþættari bakgrunnur
nefndarmanna tryggja að nið-
urstaðan gefi réttari mynd af
viðkomandi málaflokki og end-
urspegli beint þær úrlausnir
sem bestar eru hverju sinni.
Þar sem borgaralegt lýðræð-
isþing hefur enga stjórnarand-
stöðu, og enginn tími fer þaraf-
leiðandi til spihis vegna inn-
byrðis ágreinings og kífs og
þrefs um pólitískan tittlinga-
skít, verður umræðan á þinginu
mun málefnalegri, skilvirkari
og ítarlegri um þau atriði sem
raunverulega skipta máli. Fari
svo að þingmaður, eða ráðherra
skili ekki sínu að mati þjóðar-
innar getur hún einfaldlega
skipt honum út við næstu kosn-
ingar, en haldið þeim sem hún
metur að eigi að starfa áfram.
Þegar engir stjórnmálaflokkar
eru Iengur til að bítast um bit-
ana og berjast á bakvið tjöldin,
þegar enginn þingmaður eða
ráðherra getur lengur falið sig í
náðarfaðmi einhvers flokks eft-
ir að hafa misst niður um sig í
starfi, þá dæmir þjóðin menn
einfaldlega eftir verkunum og
þau munu hafa síðasta orðið
um það hvort viðkomandi
þingmaður eða ráðherra nær
endurkjöri. Hafi ráðamenn gert
mistök í starfi að mati þjóðar
sem býr við borgarlegt lýðræði
þá gjalda þeir fyrir það. í því
stjórnskipulagi sem hér hefur
verið lýst er fyrst hægt að segja
að þjóðin fái þá ríkisstjórn sem
hún hefur valið sér og á skilið.
Einsog er ræður þjóðin engu,
en flokkarnir öllu. Framhald
næsta þriðjudag.
Dallas á íslandi
j ónvarpsstöðvarnar
hafa undanfarin miss-
eri einhvern veginn
ekki náð að halda þeirri at-
hygli landsmanna eins og
var þegar þessi miðill var
nýrri og þjóðin fylgdist
spennt með nánast öllu sem
sent var út. Það eru raunar
alls ekki svo mörg misseri
síðan það var venjulegum
áhorfendum hreinasta kvöl
að þurfa að velja milli þess
hvora stöðina þeir ætluðu
að horfa á. Framboð á sjón-
varpsefni og rásum hefur
síðan aukist verulega og nú
er svo komið þessum áhorf-
anda sem var að vændræð-
ast með val á milli tveggja
stöðva stendur nú til boða
að velja milli
þrisvar til íjór-
um sinnum
fleiri stöðva og
gervihnatta-
rása. Og í
réttu hlutfalli
við aukinn
íjölda rása
verður valið
auðveldara,
menn einfald-
lega sleppa því
að vera að
horfa. Dallas
er ekki lengur
umræðuefni sem sameinar
ólíklegasta fólk í einu
áhugamáli. Hemmi Gunn er
meira að segja búinn að
missa aðdráttaraflið, þó
hann hafi raunar höfðað til
allt annars hluta heilabús
áhorfenda en töffararnir JR,
Bobbý og Cliff Barnes.
Stöð 2 vs. Stöð 3
En þrátt fyrir Dallas leysið
hafa sjónvarpsstöðvarnar
þó á engan hátt brugðist
áhorfendum. í stað þess að
sýna kaldriijaðar leikfléttur
úr viðskiptaheimi olíubar-
ónanna í Texas í framhalds-
myndaþáttum í sjónvarpinu,
stilla stöðvarnar nú upp
slíkri sápuóperu í raunveru-
leikanum. Fyrir helgina var
fluttur einn dramtískur
þáttur úr þeirri sápu þegar
fimm yfirmenn af Stöð 2
gegnu til liðs við Stöð 3.
Heyrst hafði að hin sein-
heppna Stöð 3 hafi haft
áform um að kaupa sér nýja
myndlykla, en það kom sem
sé í ljós að nýju myndlykl-
arnir voru lífrænir og komu
frá Stöð 2!
JR hefði verið
stoltur
Yfirganga fimmmenning-
anna er einstök í íslensku
viðskiptalífi og bæði JR og
Cliff Barnes hefðu verið
stoltir af þessari fléttu.
Hvorugur
þeirra hefði
hins vegar
sætt sig við að
vera svikinn í
tryggðum af
heilli kippu
trúnaðar-
manna sinna
og ótrúlegt er
að eigendur
og forráða-
menn Stöðvar
2 muni láta
slag standa.
Stöð 3 virðist
hafa yfir óendanlegu Ijár-
magni að ráða og er eina
fyrirtækið sem getur skekið
fjölmiðlamarkaðinn í krafti
gríðarlegs rekstrarijár-
magns en án þess að hafa
neinar tekjur. Þar munar
um stuðning kolkrabbans.
Málaferli og lögfræðiflækjur
verða því varla vandamál á
þeim bæ. Almennir sjón-
varpsáhorfendur hafa því
fengið sitt Dallas að fylgjast
með. Það hefur að vísu
færst úr útsendingarsölum
sjónvarpanna og yfir á for-
stjóraskrifstofurnar. Hið ís-
Ienska Dallas er ekki sýnt
eftir fréttirnar það er frétt-
irnar. Garri.