Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.01.1997, Qupperneq 16
jn^igur-CCtnttmt
Þriðjudagur 14.janúar 1997
GIlÆi 'ÍT t T'OiVIEIG
800 70 80
^Dagur-tEItmtmt
-besti tími dagsins!
Reykjavík
Úr dagbók lögregiunnar 10.-13. jan.
Akureyri
Úr dagbók lögreglunnar 6. -12. jan.
rátt fyrir 353 bókanir í dagbók var
helgin fremur tíðindalítil. Á tímabil-
inu var þó tilkynnt um 24 innbrot og
10 þjófnaði á starfssvæði lögreglunnar í
Reykjavík. Þá var tilkynnt um 5 líkams-
meiðingar, 17 eignarspjöll, 21 umferðaró-
happ og 6 slys. Afskipti voru höfð af 30
manns vegna ölvunar á almannafæri og
37 þurfti að vista í fangageymslunum á
tímabilinu.
Þvottavél brann yfir
Á föstudag datt kona í strætisvagni og
meiddist Ktilsháttar. Ilún var þó flutt með
sjúkrabifreið á slysadeild. Þá fóll ungur
drengur í Árbæ. Talið var að hann hefði
handleggsbrotnað. Hann var fluttur á
slysadeild. Síðdegis varð ungur
piltur fyrir bifreið á Fylkisvegi
við Rofabæ. Faðir hans flutti
hann á slysadeild. Tilkynnt var
um eld í húsi við Hörðaland. í
ljós kom að þvottavél hafði
brunnið yilr.
Aðfaranótt laugardags veitt-
ust fjórir menn að einum á Ing-
ólfstorgi. Þeir voru handteknir
og færðir í fangageymslu, en síðan leyft að
fara að loknum viðræðum. Sá sem veist
var að, taldi ekki ástæðu til sérstakra ráð-
stafana af hálfu lögreglu vegna þessa.
Óboðinn í eldhúsi
Um hálffimmleytið á laugardagsmorgun
mætti kona ókunnum manni í eldhúsinu
heima hjá sér. Maðurinn varð hræddur og
lagði á flótta. Hann mun hafa komist inn
um kjallaraglugga íbúðarinnar. Eldur kom
upp í ruslagámi við þjónustuhús skauta-
svellsins í Laugardal snemma á laugar-
dagsmorgun. Þar skammt frá voru gaskút-
ar. Eldurinn komst í geymsluherbergi og í
þak, en í herberginu voru einnig gaskútar.
Eitthvað af þeim sprakk vegna hitans.
Slökkviliðinu gekk greiðlega að slökkva
eldinn. Ekki urðu meiðsl á fólki. Skömmu
síðar var tilkynnt um eld í gömlum jóla-
trjám við hús á Blómvallagötu. Nágrannar
slökktu eldinn þannig að ekkert tjón
hlaust af.
Falsaðir seðlar
Á laugardag meiddist maður á baki eftir
að hafa skíðað á staur í Bláfjöllum. Hann
var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.
Afskipti voru höfð af tveimur 6 ára strák-
um einum á ferð með leikfangabyssur í
Mjódd. Þeir hugðust ræna þar verslanir.
Strákarnir voru færðir í Breiðholtsstöð
þangað sem þeir voru sóttir af foreldrum
sínum. Kona kom á lögreglustöðina og
kvaðst hafa verið rænd veski sínu við Ing-
ólfstorg um nóttina. Kveikt var í jólatré við
undirgang skóla í Vesturbænum. Bruna-
kerfi skólans fór í gang. Slökkvihðið
slökkti eldinn. Engar skemmdir urðu útfrá
þessu tiltæki.
Á laugardagskvöld tilkynnti starfsfólk
veitingastaðar að afgreiðslufólk staðarins
hefði tekið við tveimur mjög vel fölsuðum
5000 kr. seðlum. Rannsóknarlögreglu rík-
isins var tilkynnt um málið. Ölvuð stúlka
sparkaði í þrjár bifreiðir utan við veitinga-
stað í miðborginni. Hún var vist-
uð í fangageymslu. Kveikt var í
jólatrjám við verslun á Snorra-
braut. Eldurinn var slökktur áð-
ur en skemmdir hlutust af. Að-
faranótt sunnudags voru þrír
drengir handteknir eftir að hafa
reynt að brjótast inn í söluturn
við Langholtsveg. Eldri maður
datt á milli hæða í húsi í Sund-
unum. Hann var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild. Annar var flutt-
ur á slysadeild eftir slagsmál í Austur-
stræti.
Barinn með keðju
Snemma á sunnudagsmorgun var tilkynnt
um að þrír menn hefðu slegið til eldri
manns með keðju á Laugavegi. Haft var
upp á mönnunum og hald lagt á keðjuna.
Þá var maður handtekinn eftir að hafa
brotist inn í verslun við Lækjargötu og
stolið þar úr peningakassa.
Á sunnudag var ökumaðin- fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið eftir árekstur
tveggja bifreiða á gatnamótum Flókagötu
og Lönguhlíðar. Síðdegis sóttu félagar í
Björgunarsveitinni Kjölur lítillega slasað-
an mann upp í Esju og flutt hann á slysa-
deild. Aðfaranótt mánudags voru þrír
menn handteknir eftir að hafa brotið
nokkrar rúður í húsi við Laugaveg.
Lögreglumenn hafa undanfarna daga
tekið skráningarnúmer af bifreiðum vegna
vanrækslu á aðalskoðun, aukaskoðun,
vangreiddra bifreiðagjalda og lögboðinna
vátryggingagjalda. Það er von lögreglunn-
ar að sem flestir gangi nú þegar frá sínum
málum svo ekki þurfi að koma til þessara
óþægilegu aðgerða. Ó.
Ohætt er að segja að úr hðinni viku
séu það umferðarmálin sem standi
upp úr í dagbók lögreglunnar en aft-
ur á móti var rólegt yfir skemmtanalífmu.
Bókfærðar voru 91 skýrsla þar af 33
vegna töku númera af bifreiðum sem ekki
höfðu verið færðar til skoðunar en nú eiga
allir að vera búnir að láta skoða bifreiðar
sínar fyrir síðasta ár. Þess má geta að
áfram verður klippt af þeim bifreiðum sem
ekki hafa verið færðar til skoðunar á síð-
asta ári.
Bílatjón og slys
Umferðarslys varð þriðjudaginn 7. janúar
þar sem 8 ára drengur varð fyrir bifreið og
hlaut höfuðáverka. Var hann fluttur á
slysadeild og síðan með sjúkraflugi til
Reykjavíkur. Úr tveimur öðrum umferðar-
slysum voru þrír fluttir á slysadeild en þar
var um minniháttar meiðsli að ræða. Til
viðbótar urðu fjórir árekstrar þar sem ekki
urðu slys á fólki. í tvö skipti rákust speglar
tveggja bifreiða sem voru að mætast sam-
an svo að tjón hlaust af. í bæði skiptin hélt
annar ökumaðurinn áfram eins og að ekk-
ert hefði í skorist.
Ástæða er til að biðja ökumenn að at-
huga ljósabúnað bif-
reiða sinna en nokkuð
hefur borið á bilum í
umferðinni þar sem
annað framljósið vant-
ar.
Þrjár skýrslur voru
gerðar vegna aksturs
vélsleða. I tvö skipti
höfðu ökumenn ekki
réttindi til aksturs vél-
sleða, þeim var ekið
um á gangstétt, og
tveir voru ekki með
númeraspjöld. Um síð-
ustu áramót varð sú
breyting á umferðar-
lögunum að nú þurfa ökumenn vélsleða að
hafa bifhjólapróf eða bílpróf til þess að
mega aka þeim. Þá eru vélsleðar skráning-
arskyld ökutæki sem eiga að bera skrán-
ingarnúmer sem festa þarf á sýnilegum
stað á ökutækinu en ekki geyma í geymslu-
hólfi sætisins. í vikunni var farið inn í tvo
bfla og úr öðrum þeirra stolið GSM far-
síma. Sú bifreið var læst en hin bifreiðin
var ólæst.
Umferðarlagabrot
Þá voru gerðar fimm skýrslur um of hrað-
ann akstur, fjórar skýrslur þar sem ekki
var notast við öryggisbelti, þrjár skýrslur
þar sem ökumenn gátu ekki framvísað
ökuskírteini, tvær skýrslur fyrir að virða
ekki stöðvunarskyldu, ein skýrsla fyrir
akstur á móti einstefnu og þrjár skýrslur
fyrir óleyfilegan akstur um göngugötuna.
10. janúar var slökkvilið Akureyrar
kallað út vegna tilkynningar um eldsvoða
sem síðan reyndist ekki eins alvarlegur og
talið var. Kveikt hafði verið bál á bflastæði
við eitt íbúðarhús á brekkunni en þar
höfðu nokkrir húseigendur brugðið á það
ráð að losna þannig við jólatrén. Ef til vill
hafa þeir misst af þrettándabrennu Þórs
en sú brenna og tilheyrandi álfagleði var
með fullu leyfi yfirvalda og fór vel fram.
Umferð í göngugötunni
Fimm innbrot voru tilkynnt þar af þrjú þar
sem brotist var inn í húsnæði gæsluvalla
Akureyrarbæjar. Þrjú rúðubrot urðu um
helgina þrátt fyrir að mjög fátl fólk væri í
miðbænum. Þá eru bókaðar fimm skýrslur
þar sem menn þurftu að gista fangahús
lögreglunnar vegna ölvunarástands. Af-
skipti voru höfð af fimm
unglingum sem ekki
höfðu aldur til þess að
vera úti eftir miðnætti
aðfaranótt laugardags.
Þá er rétt að geta
þess að næstkomandi
miðvikudag verður
leyfð umferð bifreiða
norður göngugötuna í
Haftiarstræti. Gatan
breytist úr göngugötu í
vistgötu sem þýðir að
hraði ökutækja má
aldrei vera meiri en 15
km/klst. en séu
gangandi vegfarendur
nærri má eigi aka hraðar en á göngu-
hraða. Ökumönnum ber að sýna gangandi
vegfarendum sérstaka tilhtssemi og víkja
fyrir þeim. Þá er og lagning bifreiða
óheimil nema á sérstaklega merktum bif-
reiðastæðum. Hægt verður að loka götunni
fyrir bílaumferð ef þannig stendur á og
mun verða komið fyrir skilti sem segir til
um hvort gatan er opin eða lokuð. Vonandi
.tekst vel til með góðri samvinnu við veg-
farendur. G.V.
Verð miðað við staðgreiðslu
er 1300* krónur
fyrsta birting
| og hver endurtekning
400 krónur
-besti tími dagsins!
Strandgötu 31 • Akureyri
Garðarsbraut 7 • Húsavík
Brautarholti 1 • Reykjavík
Sími 800 70 80