Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Blaðsíða 8
Kvenréttindafélag íslands fagnaði 90 ára afmœli sínu á
mánudaginn í Ráðhúsi Reykvíkinga. Þar var heilmikið um
dýrðir og konur að sjálfsögðu í öllum aðalhlutverkum Flutt
voru ávörp og Ijóð og leikið á hörpu og flautu. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjóri, bauð gestum að gœða sér á létt-
víni og snittum í borgarstjórnarsalnum, en afmœlisdagskrá-
in fór að öðru leyti fram í TjarnarsaL Ingibjörg Sólrún sagði
það vel við hœfi, að minnast afmœlis Kvenréttindafélagsins í
Reykjavík, því þar hefði það verið stofnað og nú hefðu konur
tekið völdin í Ráðhúsinu. Þijár konur voru gerðar að heið-
ursfélögum Kvenréttindafélagsins, Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, Sigríður Erlendsdóttir, sagnfrœðingur og
Björg Einarsdóttir, sagnfrœðingur, en þœr tvœr síðastnefndu
unnu saman að ritun sögu Kvenréttindafélagsins.
Sjálfstæðisráðherramir Þorsteinn Pálsson og Björn Bjarnason í fríðum hópi kvenna, f.v. Ingibjörg Pálmadóttir,
Þorsteinn, Vigdís Finnbogadóttir, Sigríður Erlendsdóttir og Björn. Tvær síðastnefndu konurnar voru gerðar að
heiðursfélögum Kvenréttindafélagsins. Myndir pjetur.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Þjóðavaka, og flokksystir hennar
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
hljóta að hafa þakkað Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóra,
fyrir höfðinglegar afmælisveitingar.
Sif Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, ræðir við nýorðinn heið-
ursfélaga Kvenréttindafélagsins, Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi for-
seta.
Hansína B.Einarsdóttur stýrði afmælisfagnaðinum í ráðhúsinu
og er hér að ráðgast við Guðrúnu Katrínu og Bryndísi Hlöðvers-
dóttur, formann Kvenréttindafélagsins.
Það var þéttsetinn bekkurinn í Ráð-
húsinu í gær, þegar konur fögnuðu 90
ára afmæli Kvenréttindafélagsins. Einn
og einn karlmaður lét sjá sig, þótt þeir
sjáist ekki á þessari mynd.