Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.02.1997, Síða 8
4=1=
Laugardagur l.febrúar 1997 - VIII
|Dagur-®TOmtn
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
ANDLÁT
Anna Guðjónsdóttir
frá fsafirði andaðist á Öldrunar-
deild Landspítalans, Hátúni lOb,
þriðjudaginn 21. janúar.
Ágúst Böðvarsson,
Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til-
heimilis í Barmahlíð 43, lést að
kvöldi 27. janúar.
Árni Sigurðsson
frá Heiðarseli andaðist á hjúkr-
unarheimilinu Klausturhólum
þriðjudaginn 21. janúar.
Ásta Magnúsdóttir
lést 27. janúar á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Camilla Sveinsdóttir
lést á Hrafnistu í Reykjavík 22.
janúar.
Guðbjörg Einarsdóttir,
Stangarholti 36, Reykjavík, er lát-
in. Jarðarfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðfinna Steinsdóttir,
Ránargötu 3a, lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 5. janúar. Jarðarfór-
in hefur farið fram í kyrrþey.
Guðný Pálsdóttir,
Hvassaleiti 101, Reykjavík, lést á
Vífilsstaðaspítala fóstudaginn 24.
janúar.
Guðríður Einarsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði, áður
Smyrlahrauni 5, Hafnarfirði, lést
að kvöldi 20. janúar.
Guðrún Ragna Valgeirsdóttir,
Miðtúni 48, Reykjavík, andaðist á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnu-
daginn 26. janúar.
Guido Bernhöft,
Garðastræti 44, lést á Landspítal-
anum fimmtudaginn 23. janúar.
Hafdís Ingvarsddóttir,
Austurströnd 2, Seltjarnarnesi,
lést á heimili dóttur sinnar 26.
janúar.
Halldór Árni Gunnarsson
frá Súgandalirði, Lindargötu 61,
Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur limmtudaginn 23.
janúar.
Helga Jarþrúður Jónsdóttir,
Gullbrekku, Iíyjafjarðarsveit, lést
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri þann 17. janúar. Útförin hef-
ur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Hermann Guðlaugsson
húsgagnasmiður, Njálsgötu 27,
Reykjavík, lést í Ijórðungssjúkra-
húsinu á ísafirði aðfaranótt 28.
janúar.
Hjörtur Þórðarson,
Seljahlíð, áður til heimilis að
Garðastræti 34, lést að kvöldi 24.
janúar.
Hugi Pctursson,
Aðallandi 6, lést í Landspítalan-
um mánudaginn 27. janúar.
Jón Jóhanncs Jóscpsson
frá Sámsstöðum, Dalbraut 6,
Búðardal, lést 23. janúar.
Kristín (Gógó) Magnúsdóttir,
Ránargrund 5, Garöaba:, lést á
Landspítalanum að kvöldi mánu-
dagsins 27. janúar.
Kristján Örn Magnússon,
Hvolsvegi 28, Hvolsvelli, lést á
Landspítalanum mánudaginn 27.
janúar.
Magnús Örnólfur Jóhannsson,
Smiðjugötu 6, ísafirði, andaðist
aðfaranótt 27. janúar í Sjúkra-
húsi ísafjarðar.
Pctur Bjarnason
lést á heimili sínu í Röstánga í
Svíþjóð 6. janúar sl. Útfórin hefur
farið fram.
Ragnar Ágúst Björnsson,
fyrrv. hafnarstjóri, Skólavegi 2,
Keílavík, andaðist á Sjúkrahúsi
Suðurnesja aðfaranótt föstudags-
ins 24. janúar.
Ragnhildur Tcitsdóttir
andaðist 23. janúar.
Sigfús Bergmann Valdimarsson,
sjómannatrúboði, Pólgötu 6, ísa-
firði, lést á Fjórðungssjúkrahúsi
ísafjarðar að kvöldi 22. janúar.
Sigurbjörg Þórarinsdóttir (Ebbý)
lést á heimili sínu, Háagerði 31,
þann 27. janúar.
Sigurkarl F. Torfason,
Birkigrund 47, Kópavogi, andað-
ist á Landspítalanum fóstudaginn
24. janúar.
Valgcrður Ólafía Pórarinsdóttir
lést að kvöldi 24. janúar á Elli-
heimilinu Grund.
ÁRNAÐ HEILLA
90 ára
Jakob Tryggvason
organisti
Jakob Tryggvason, fyrrver-
andi organisti við Akureyr-
arkirkju, Byggðavegi 101 a,
Akureyri, verður níræður föstu-
daginn 31. janúar 1997.
Jakob var organisti við Akur-
eyrarkirkju 1941-1986 og
starfaði að tónlistarmálum á
Akureyri um 45 ára skeið.
Jakob fæddist að Ytra-Hvaríi
í Svarfaðardal árið 1907 og ólst
þar upp í föðurhúsum. Um
fermingaraldur hóf hann nám í
orgelleik hjá Tryggva Kristins-
syni, síðar tengdaföður sínum,
sem þá var organisti í Valla-
prestakalli. Jakob fór að heim-
an tvítugur að aldri, haustið
1927, til Reykjavíkur.
Starfsferill
í Reykjavík stundaði Jakob
nám við Samvinnuskólann og
sótti jafnframt tíma hjá Sigurði
Frímannssyni organista. Jakob
lauk prófi frá Samvinnuskólan-
um árið 1927 og fluttist þá
norður og starfaði á skrifstofu
Kaupfélags Eyfirðinga. Árið
1931 fór hann aftur suður til
Reykjavíkur og fór í einkatíma
til Páls ísólfssonar. Jakob var í
Tónlistarskólanum í Reykjavík
til ársins 1938. Jafnframt starf-
aði hann á skattstofu Reykja-
víkur.
Árið 1941 var Jakob ráðinn
organisti við Akureyrarkirkju
og sinnti hann því starfi til árs-
ins 1945 að hann fór til fram-
haldsnáms til London. Þar var
Jakob við nám í The Royal
Academy of Music til ársins
1948. Frá þeim tíma var hann
organisti við Akureyrarkirkju
óslitið til ársins 1986.
Jakob var kennari og skóla-
stjóri við Tónlistarskóla Akur-
eyrar um árabil og stjórnaði
Lúðrasveit Akureyrar um tutt-
ugu ára skeið. Jakob þjálfaði
Smárakvartettinn á Akureyri og
síðar Geysiskvartettinn og lék
undir með þeim báðum. Pá
stjórnaði hann kvennakórnum
Gígjunum á Akureyri.
Eftir Jakob liggur íjöldi út-
setninga á sönglögum og
kirkjutónlist, auk nokkurra
frumsaminna verka.
Fjölskylda
Jakob kvæntist árið 1936
Unni Tryggvadóttur, f.
27.12.1907 d. 24.05.1987. Hún
var dóttir Tryggva Kristinsson-
ar, organista (1882-1948) frá
Ystabæ í Hrísey, og Nönnu Arn-
grímsdóttur (1884-1908), dótt-
ur Arngríms málara. Unnur ólst
upp að Völlum í Svarfaðardal
hjá föðurbróður sínum Séra
Stefáni Kristinssyni (1870-
1951) og konu hans frú Sól-
veigu Pétursdóttur Eggerz
(1876-1966).
Börn Jakobs og Unnar eru:
Nanna, f. 26.20.1937, d.
27.06.1988, fiðluleikari, gift
Gísla Geir Kolbeinssyni, f.
13.10.1941 og eru dætur þeirra
Unnur Ingibjörg, læknaritari, f.
31.05.1970, maki hennar er
Geir Ericsson, kjötiðnaðarmað-
ur, þeirra sonur er Atli Már
Geirsson f. 19.08.1991; og Hild-
ur, læknaritari, f. 5.11.1972.
Soffía, f. 2.12.1939, leikkona,
og eru dætur hennar Margrét
Kristín Pétursdóttir, f.
9.03.1962, leikkona, sonur
hennar er Tryggvi Geir Torfa-
son, f. 6.05.1993 og Sólveig Pét-
ursdóttir, f. 17.08.1970, gift
Axel Inga Eiríkssyni, flugmanni
í Lúxemborg.
Tryggvi, f. 19.04.1950, land-
fræðingur, kvæntur Svanhildi
Jóhannesdóttur, f. 8.03.1950,
framkvæmdastjóra og eru synir
þeirra Jakob, f. 20.06.1972,
hljóðmaður, og Jóhannes, f.
18.06.1976, nemi.
Systkini Jakobs eru Jóhann
Tryggvason (1908-1915), Lilja
Tryggvadóttir, húsmóðir (1910-
1992), gift Antoni Baldvinssyni,
bjuggu í Svarfaðardal og á Dal-
vík, Jóhann Tryggvason yngri,
tónlistarmaður f. 1916, kvænt-
ur Klöru Símonsen, f. 1918,
búa í London, Stefán Tryggva-
son, skrifstofumaður (1917-
1976), kvæntur Þóru Aðal-
steinsdóttur (1916-1996),
bjuggu á Akureyri og Ólafur
TYyggvason, bóndi f. 1920,
kvæntur Friðriku Haraldsdóttur
(1915-1994), bjuggu á Ytra-
Hvarfi og Dalvík.
Ætt
Jakob er sonur Tryggva Jó-
hannssonar, f. 11.04.1882, d.
23.08.1971, bónda á Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal og konu
hans Guðrúnar Soffíu Stefáns-
dóttur, f. 12.07.1885, d.
9.01.1963 frá Sandá í Svarfað-
ardal. Hún var dóttir Stefáns
Jónatanssonar (1856-1898),
bónda á Sandá og Önnu Sigur-
laugar Jóhannesdóttur
(1853-1935). Tryggvi var sonur
Jóhanns Jónssonar
(1836-1901), bónda á Ytra-
Hvarfi og konu hans Solveigar
Jónsdóttur (1840-1928), frá
Þverá í Svarfaðardal.
Jakob var í Reykjavík á af-
mælisdaginn og tók á móti gest-
um í Safnaðarsal Hallgríms-
kirkju. Sunnudaginn 2. febrúar
verður messa í Akureyrarkirkju
þar sem ílutt verður tónlist eftir
Jakob. Kirkjukaffi kvenfélagsins
verður eftir messu í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju. Par
gefst Norðlendingum tækifæri
til að gleðjast með Jakobi.
■
Jón úr
Vör
Afmœliskveðja
Jafnan er hann Jón úr Vör
jákvœður og glaður
Hans afboga eitruð ör
aldrei flaug - til miska gjör.
Hann er líka hófstillingarmaður.
Auðunn Bragi Sveinsson