Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Blaðsíða 2
2 - Miðvikudagur 5. febrúar 1997 IDagur-tiJmmm Heiti Potturinn Þetta er eins og spánski rannsóknarrétturinn," sagði Gaflari í heita pottinum í gær. Hann sagðist hafa í grandaleysi hringt í Skattstofu Reykjaness [ Hafnarfirði til að fá eyðublað sent til að geta talið rétt fram til skatts. Símakonan brást hin versta við þegar enginn svaraði í viðkomandi deild og vinur vor vildi koma skilaboðum þangað. Hann spurði hvað væri til ráða, konan sagði með þjósti að ein leiðin væri að leggja símann á. Sem hún og gerði með miklum skelli... Sjálfstæðismenn í Reykjavík bollaleggja fyrir borgar- stjórnarkosningar sem nú eru í 15 mánaða fjarlægð. Prófkjör er talið að verði í flokknum í nóv- ember. Það er því stuttur tími til stefnu að stilla upp gegn R-list- anum. Heyrst hafa óánægju- raddir með núverandi oddvita, Árna Sigfússon. Hann er ekki talinn maðurinn sem getur velt R- listanum í Tjörnina. Fæstir telja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson koma þar til greina, en enn sem komið er hefur hann verið talinn sá eini sem komi sterklega til greina. Nú er leitað er að þriðja manninum.. W Iheita pottinum á Akureyri var verið að segja frá því að það væri búið að loka í Kjallaranum sem staðinn var að því að þynna út áfengið. Einhver velti því upp hvort það gæti stafað af vatnsskorti.. Nú heyrist að Stöð 3 sé búin að skipta um auglýsinga- stofu og sé hætt viðskiptum við Gott fólk en skipti við AUK. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema hvað enn sann- ast að sjaldan lofar kálfurinn of- eldið, Gott fólk eins og aðrir samþykktu nauðasamningana við Stöð 3 og munu hafa tapað talsverðum peningum... Kennarar skoða verkfallsleiðina Fulltrúaráð kennara tekur afstöðu til framhaldsins í Ijósi árangurslausrar við- ræðuáætlunar Valkostirnir eru kannski þrír. Það er að halda áfram viðræðum við sveitarfélögin, vísa málinu til ríkissáttasemjara eða skoða verkfallsleiðina," segir Eiríkur Jónsson formaður Kennara- sambands íslands. Á fundi fulltrúaráðs Kenn- arasambands íslands í vikulok- in verður væntanlega tekin af- staða til einhvers af þessum þremur möguleikum sem kenn- arar standa frammi fyrir. En viðræður um gerð nýs kjara- samnings á grundvelli viðræðu- áætlunar hafa ekki skilað þeim einu eða neinu. Síðast en ekki sx'st hefur launanefnd sveitarfé- Iaga ekki lagt fram neitt gagn- tilboð á borðið um hugsanlegar launahækkanir til handa kenn- urum þrátt fyrir marga fundi. Aftur á móti hafa fulltrúar í launanefnd sveitarfélaga lýst yfir áhuga á því að skoða betur vinnutíma kennara. Þá þykir þeim kjarasamningur kennara vera flókinn og hafa lýst yfir áhuga á því að einfalda hann að einhverju leyti og gera hann skiljanlegri. Formaður KÍ vildi hinsvegar ekki tjá sig um það hvort mikil umræða sé meðal kennara að verkfallsvopnið sé það eina sem gæti fært þeim einhverjar kjarabætur. En heyrst hefur að kennarar séu orðnir æði lang- þreyttir á þeim seinagangi sem verið hefur í kjaraviðræðum þeirra og því vilja sumir brýna verkfallsvopnið til að auka þrýsting á launanefnd sveitarfé- laganna. -grh Múlakaffi Hræðumst ekki hamborgara Þorramaturinn sívin- sæll. Ótti um línurnar hræðir unga fólkið frá feitum lundaböggum og bringukollum. Við hræðumst ekki ham- borgara og eitthvað pizzaslor. Við segjum bara svona skyndibitastöðum stríð á hendur. Það er deginum ljósara," segir Jóhannes Stef- ánsson, veitingamaður í Múla- kaffí. Svo virðist sem ekkert lát sé á vinsældum þorramatarins og þaðan af síður verða menn var- ir við eitthvert kynslóðabil í þeim efnum. Ef eitthvað er, þá virðist unga kynslóðin narta einna minnst í feita lundabagga og súrsaða bringukolla af ótta við línurnar. Hinsvegar stendur þorranýmetið alltaf fyrir sínu og gott betur, eins og t.d. há- karl, hangikjöt, harðfiskur, svið o.fl. Jóhannes í Múlakaffi segir að ágangurinn í þorramatinn hjá sér sé það mikill að hann hefur neyðst til að taka frá mat til að geta staðið við umsamdar pantanir í lok þorra. „Það eru ekki margir kokk- ar sem geta lagað góða punga í dag,“ segir Jóhannes, en fyrir- tæki hans býr við 35 ára reynslu við gerð þorramatar. Hann segir að kunnátta við gerð þorramatar sé ekki á allra færi, auk þess sem það sé ekki kennt í Hótel- og veitingaskól- anum. Hann segist ekki treysta sér til að meta hvað landsmenn innbyrða mikið af þorramat. Það sé hinsvegar mjög mikið og hleypur á mörgum tonnum í það heila tekið, nú sem endra- nær. -grh Sællegir kokkar á Múlakaffi með girnilega þorrabakka. Mynd:BGS Góður hagnaður s Islandsbanki hf. og dótturfélög voru rekin með 642 millj. kr hagnaði á síðasta ári. Á árinu 1995 var hagnaðurinn 331 millj. kr. “Góða afkomu má fyrst og fremst rekja til þess að mikil aukning hefur orðið í allri starf- semi bankans, án þess að rekstrarkostnaður hafi aukist," segja stjórnendur íslands- banka. Rekstrarkostnaður bankans lækkaði í heild um 6 millj. kr. og hefur farið stöðugt lækkandi undanfarin ár og er nú 4,7% af heildarfjármagni, en var 5,3% í hitteðfyrra. Framlög á af- skriftareikning útlána var 922 millj. kr., borðið saman við 830 millj. kr. árið áður. Öll dótturfélög íslandsbanka skiluðu hagnaði á síðasta ári, jafnframt því sem viðskipti juk- ust. Hagnaður GUtrns var 87 millj. kr., VÍB hagnaðist um 37 millj. kr. og Verslunarlánasjóð- ur um 57 millj. kr. -sbs. Viðskipti Marel færir út kvíamar Ekkert lát virðist vera á vel- gengni Marel hf. sem nýver- ið stofnaði dótturfyrirtækið Marel Trading ehf. Tilgangur og markmið hins nýja fyrirtækis er að styrkja og efla samskipti og viðskipti við fyrirtæki í vestur- hluta Rússlands. Á undanförnum árum hafa viðskipti rússneskra fyrirtækja við Marel orðið sífellt umfangs- meiri. Athygli vekur að þau ein- skorðast ekki eingöngu við framleiðsluvörur Marel heldur ná orðið yfir allt frá beiðnum um endurbætur á rússneskum skipum til afurðasölusamninga. Framkvæmdastjóri hins nýja dótturfyrirtækis er Sverrir Guð- mundsson sem er fisktæknir að mennt. -grh FRETTAVIÐTALIÐ Of mikið treyst á óljósar úrlausnir Guðjón Bjarnason starfsmaður Barnaverndarstofu Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga ekki sem skyldi. Frœðsla og áróður gegn afleiðingum kynferðis- legrar misnotkunar á börnum. Hvað er til ráða gegn kynferðislegri misnotkun á börnum? „í þeim efnum er kannski mikilvæg- ast að reyna að gera þjóðfélaginu grein fyrir þeim skelfilegum afleiðingum sem þetta hátterni hefur. Þetta hefur óaft- urkallanleg áhrif á fólk, veldur kreppu sem maður sér kannski fyrir endann á. Þetta brýtur fólk niður og eiginlega ekki bara á meðan á því varir heldur til langs tíma og kannski til allrar framtíðar. Hitt er svo að vera mjög vakandi fyrir því að þetta er til í okkar menningu, vera meðvituð, horfast í augu við það og vernda börrnn okkar gagnvart þessu án þess þó að það séu einhverjar galdraofsóknir á ferðinni." Hvað um áœllanir og ráðagerðir af hálfu hins opinbera? „Það helst í hendur við eflingu barnaverndarkerfisins og stofnun Barnaverndarstofu sem hefur eftirlit með barnaverndarnefndum og leið- beinir þeim í þeirra daglegu störfum. Við erum t.d. búin að fara um allt land á síðasta ári og halda námskeið fyrir hátt í 300 manns. Þannig að við erum að gera eitt og annað. Við erum Iíka að ræða nýjungar sem við getum innleitt að þessu leyti og m.a. um meðferðar- þáttinn. í því sambandi erum við að ræða hvort ekki sé hægt að veita börn- um einhverja öðruvísi meðferð og þá hvernig, því þetta er mjög sérhæfð vinna. í þeim efnum höfum við átt fundi með Stígamótum og með barna- geðdeildum. Það stendur t.d. upp á okkur að innleiða nýjungar og ástunda þróunarstörf á þessu sviði.“ Hvernig miðar í þeirri vinnu? „Við erum komin nokkuð áleiðis en þetta er afskaplega vandasöm vinna og þá líka stórnsýslulega. Barnaverndar- vinnan og framkvæmd hennar er á ábyrgð sveitarfélaga. Þótt rekstur sér- hæfðra meðferðarheimila fyrir börn og unglinga sé á hendi ríkisins, þá fæst maður ekki við svona mál inná með- ferðarheimilum. Þess í stað á fólk að fá aðstoð og langtímameðferð í sínu um- hverfi. Síðan er spurning hvort þetta sé ekki hreinlega geðheilbrigðismál þar sem börnum og ijölskyldum þeirra er veitt kannski margra ára viðtals- og fj ölskyldumeðfer ð. “ Njóta þessi mál skilnings í kerfinu? „Ég held að það vanti dálítið uppá það og t.d. er geðheilbrigðisþjónusta íyrir börn og unglinga kannski ekki í rúst en hún er mjög illa á sig komin. Þá finnst mér persónulega að sveitar- stjórnarmenn átti sig t.d. ekki alveg á þeirri staðreynd að sveitarfélögin eiga að sjá til þess að börnin séu vernduð. Ég er ekki viss um þaðað þeir skilji al- veg hvað felst í þessu og hvað það get- ur verið krefjandi þegar svona mál koma upp. Ég held að menn treysti alltof mikið á einhverjar óljósar úr- lausnir og að það verði send einhver víkingasveit úr Reykjavík sem muni koma til bjargar, Qarlæga vandamálið og allt verði slétt og fellt á eftir.“ -grh

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.