Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Page 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Page 11
íDagur-CEmnmt Miðvikudagur 5. febrúar 1997-11 Margt af stóðhestum hjá Páli Bjarka Isíðustu HESTAMÓTUM voru sagðar fróttir af tamningum hjá tveimur þekktum tamn- ingamönnum á Suðurlandi. Áfram verður haldið að skýra frá því sem forvitnilegt er í þessum efnum sem víðast á landinu. Páll Bjarki Pálsson sem var tamningamaður á stóð- hestastöðinni í Gunnarsholti í fyrra hefur nú fært sig um set og er búsettur á Kvistum í Landssveit sem er stutt frá Ár- bæ. Hann er með aðstöðu bæði í Árbæ og einnig á Árbakka en megnið af tamningahrossunum er á Rauðalæk. Þessir staðir eru í það mikilli nálægð hver við annan að hann fer ríðandi á milli. Hann reiknar með að hafa í sinni umsjá um 10 stóðhesta í vetur fyrir utan hóp af hryssum en þau hjón Páll og Anna verða með um 20 hross á járnum. Að- spurður sagðist Páll vera að leita sér að léttum aðstoðar- manni eins og hann orðaði það. Af þeim hestum sem verða í þeirra umsjá skal fyrstan telja eigin stóðhest Kormák frá Flugumýri sem efstur stóð í sín- um aldursflokki á Stóðhesta- stöðinni í fyrra. Hann er undan Kveik frá Miðsitju og Kolskör frá Gunnarsholti. Þá er Heljar frá Hofi í Vatnsdal sem líka er 1. verðlauna hestur undan Eldi 950 frá Stóra-Hofi og Þotu 6983 frðá Hvammi. Þá er foli á 5. vetur Logi frá Flugumýri undan Kveik og Rimmu Freysdóttur frá Flugumýri. Efnilegur hestur. Þá er Gljái Viðarsson frá Hrafn- kelsstöðum sem Páll Bjarki var með í fyrra hjá honum áfram. Móðir Gljá er Rangá frá Kirkju- bæ en hún er undan Öngli frá Kirkjubæ og Brönu sem er syst- ir Rauðhettu að móðurinni. Orrasonurinn Fáni frá Hvals- nesi er einnig hjá Páh. Móðir Fána er Villa-Brúnka frá Hvals- nesi undan Andvara 922 frá Sauðárkróki. Þyrill frá Aðalbóli hjá Páli Stóðhestur Skagfirðinga og Austur-Húnvetninga Þyrill frá Aðalbóli er í þjálfun hjá Páli. Þyrill er undan Gassa frá Vorsabæ og Freistingu frá Bárðartjörn. Þá verður Svipur frá Vindási í Hvolhreppi einnig hjá Páh en hann er undan Ófeigi frá Flugumýri og Fjöður 4344 frá Hnjúki í Vatnsdal. Fleiri stóðhestar kunna að h'ta þarna við í vetur. Þá er nokkur hópur af hryssum sem verða í umsjón þeirra hjóna og var auðheyrt að Páll bar nokkra von í brjósti yfir skag- firskri hryssu sem Sandra heitir og er á 4. vetur undan Bárði frá Bráðartjörn og Ófeigsdóttur frá Flugumýri. Margt forvitnilegt hjá Sauðárkróksfeðgum Hjá þeim feðgum á Sauðárkróki er margt forvitnilegt í uppeldi og tamningu eins og endranær. Það er Guðmundur sem annast tamningarnar á þeim hrossum sem heima eru. Af stóðhestum er fyrst að nefna Fleyg sem HESTAMÓT birtu mynd af ný- lega og var hann þar ættfærður. Kormákur frá Flugumýri, knapi Páll Bjarki Pálsson. Þá er hjá Guðmundi í tamningu Hjalti frá Hólum en hann er undan Kveik frá Miðsitju og Eld- HESTA- MÓT Kári Arnórsson ey frá Hólum. Þetta er foh á 5. vetur, magnaður á tölti og brokki en ekki farið að reyna á vekurðina ennþá. Ögri undan Anga frá Laugarvatni og Ösp frá Sauðárkróki er hjá Guð- mundi í vetur. Ögri hlaut 1. verðlaun í fyrra. Annan fola undan Ösp átti að temja í vetur en hann varð fyrir slysi og verð- ur látinn bíða þetta árið. Sá er undan Otri. Þá á Sveinn víga- legan fola undan Hervöru og Kjarval. Hann er brúnskjóttur og heitir Landi. En hann er að- eins á þriðja vetur og bíður síns tíma. Nokkrar hryssur eru í tamningu, en frekar fáar eru í þessum árgangi. Síðasta af- kvæmi Hrafnhettu gömlu er þó í þessum hópi. Hún er undan Mynd: ej Hvin frá Vatnsleysu sem er undan Otri og Kveðju frá Syðra- Skörðugili. Hryssan heitir Gjörð og er brúnskjótt. Margar hryss- ur eru hins vegar í hópnum sem er á þriðja vetur og verður gaman að fylgjast með þeim þegar þar að kemur. Eins og fram hefur komið áður þá er Eiríkur Guðmundsson með tvo hesta frá þeim feðgum. Haldið verður áfram í næstu HESTAMÓTUM af segja fréttir af hrossum í tamningu hjá þekktum tamningamönnum. Þing Hestaíþróttasambands íslands Þing Hestaíþróttasambands íslands var haldið í Mos- fellsbæ 1. og 2. febrúar. en venja er að þingið sé haldið á þeim stað sem síðasta ís- landsmót í hestaíþróttum er haldið. Margar tillögur voru afgreiddar á þinginu og m.a. samþykkt að taka inn til reynslu flokkaskiptingu knapa í meistaraflokki, 1. flokki og 2. flokki. Atvinnuknapar mega ekki keppa í 2. flokki heldur skulu þeir byrja í 1. ílokki og færast svo upp í meistaraflokk nái þeir 6,5 í tölti og 6 í Ijór- gangi. Samþykkt var að taka nýja grein inn í lög HÍS svohljóðandi: „Auk hefðubndinnar keppni, æfinga og þjálfunar líkamlegrar heilksuræktar, samanber lög ÍSÍ, er það í verkahring HÍS að sinna hagsmunamálum sem tengjast hestaíþróttum svo sem á sviði ræktunarmála, tamn- inga, samgöngu- og ferðamála, landnýtingar- og umhverfis- mála“. Sameinigarmálin fengu tals- verða umræðu og voru stóru orðin þar ekki spöruð af sum- um málheíjendum. Formaður milliþinganefndar um samein- ingu fór mikinn, en ræða hans þótti ekki sérstakt innlegg til sameiningar. Samþykkt var að halda áfram vinnu við samein- ingu HÍS og LH. Gengi samein- ingin í gegn yrði HÍS lagt niður. Stjórn HÍS var falið að skipa þriggja manna nefnd til að vinna að málinu með nefnd frá LH. Fyrsti hestamaðurinn sem fær gullmerki ÍSÍ Hákon Bjarnason sem var með- al stofnfélaga íþróttadeildar Fáks á sínum tíma og hefur alla tíð síðan sinnt þessum málum af miklum áhuga, auk mikils framlags til annarra íþrótta- mála, var sæmur gullmerki ÍSÍ og var það forseti ÍSÍ, Ellert B. Schram, sem það gerði. Þá hlaut Hestamannafélagið Léttir á Akureyri unglingabikar HÍS. Þessi bikar var afhentur í fyrsta sinni og er viðurkenning fyrir gott æskulýðsstarf. Léttir Sigurður Sigmundsson á Eiðfaxa ► afhendir Ragnari E. Ágústssyni úr Sörla, bikar frá hestafréttamönnum sem viðurkenningu fyrir frábaeran árangur á síðasta ári. Mynd: ej stóð á síðasta ári fyrir æsku- lýðsmóti sem nefnt var Frissa fríska mótið. Það fór fram á Ak- ureyri og þótti takast vel. Von- andi verður framhald á því. Þá var Ragnari E. Ágústssyni úr Sörla afhentur bikar frá hestafréttamönnum sem viður- kenning fyrir frábæran árangur á síðasta ári. Þær breytingar urðu í stjórn HIS að Sævar Kristjánsson úr Gusti gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og í hans stað var kjörin Oddný Jónsdóttir í Gusti. Að öðru leyti er stjórnin óbreytt. Formaður er Jón Albert Sigurjónsson en framkvæmdastjóri HÍS er Sig- rún Sigurðardóttir. HÍS er með skrifstofu í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Taka þarf ákvörðun um örmerkingakerfi Nokkur skrif hafa orðið um ranga ættfærslu á hrossum sem seld hafa verið til útlanda. Ekki þarf að orða það hve þetta er bagalegt þegar verið er að byggja upp markað fyrir kyn- bótahross. Dæmið frá Dan- mörku er ekki einsdæmi, því miður. Nokkrar hugmyndir hafa verið reifaðar um það hvernig hægt væri að koma í veg fyrir þetta. Það er alltaf erfitt að eiga við óprúttna menn sem gera sér að leik að falsa upplýsingar ef það hefur einhverja hagnaðar- von í för með sér. í umræðunni hefur verið tal- að um að ekkert hross færi ómerkt úr landi og helst þyrfti að merkja folöldin meðan þau gengju undir mæðrum sínum. Þetta verður trúlega erfitt í framkvæmd þegar tæpur helm- ingur af fæddum folöldum er skráður hvað þá merktur. Sú merking sem líklegust er til að eiga sér framtíð er örmerking- ar. Örmerking er þannig fram- kvæmd að örlitlum tölvukubb er komið fyrir undir húð hests- ins á hálsinum. Þetta er svo lít- ið fyrirferðar að því er þrýst undir húðina með holnál. Til að lesa af þessu merki þarf síðan sérstakt tæki. En merkingin er fyrst og fremst til þess að geta sannað að hrossið sé sá ein- staklingur sem það er sagt vera og til þess að geta sannað eignarétt sinn á hrossinu. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða kerfi á að vera á örmerkingunum og af þeim ástæðum bíða íjölmargir hrossa- eigendur eftir að geta merkt sín hross. Bændasamtökin verða að ákveða hvaða kerfi á að nota eða láta hanna sérstakt kerfi fyrir íslenska hrossakynið. í leiðara síðasta tölublaðs Eiðfaxa er stungið upp á því að fæðing- arnúmerakerfið verði notað til örmerkinga. Þetta er góð hug- mynd ef hún er framkvæmanleg. En hvað sem því líður þá verða Bændasamtökin að taka af skarið og ákveða sem fyrst hvaða kerfi á að nota.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.