Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Side 5
|Oagur-'(IImrám
Miðvikudagur 5. febrúar 1997 - 5
Hafhamálastofiiun gagnrýnd
Ríkisendurskoðun
Frá dýpkun í Húsavíkurhöfn 1992, en Ríkisendurskoðun gagnrýnir sérstaklega útboðslýsingu á þvi verki í skýrslu
sinni.
Útboðsgögnum oft
ábótavant og faríð í
framkvæmdir án þess
að fjárheimild sé fyrir
hendi.
Rfldsendurskoðun sér sitt-
hvað athugavert við
rekstur Hafnamálastofn-
unar rflcisins. í gær var lögð
fram á Alþingi 70 síðna úttekt
stofnunarinnar á 62 hafna-
framkvæmdum í 22 höfnum ár-
in 1992 til 1995. Þar kemur
meðal annars fram að megin-
reglan um að bjóða skuli út op-
inber verk, er stundum brotin.
Rfldsendurskoðun segir fátt
benda til þess að nauðsynlegt
hafi verið að víkja frá þessari
reglu en verkefni þessi lentu að
mestu hjá einum og sama verk-
taka.
Árin 1992 til 1994 voru unn-
in verk á sex stöðum á landinu
fyrir 134 milljónir án útboðs,
fimm þeirra unnin af Hagvirki-
Kletti hf.
Losaraleg
útboðsgögn
Þá er fundið að því að útboðs-
gögn Hafnamálastofnunar hafa
reynst verulega ótraust í mörg-
um tilvikum og rannsóknir
skort. Þetta hafi leitt til þess að
verktakar hafa lent í deilum og
orðaskaki við verkkaupann
vegna atriða sem ættu að jafn-
aði ekki að vera mikilli óvissu
háð á útboðsstigi. Málum hefur
verið skotið til dómstóla þar
sem rfldð hefur tapað málum.
Nefnd eru dæmi um slælegar
útboðslýsingar. Til dæmis vegna
dýpkunar í Húsavíkurhöfn
1992. Þar gekk uppgröftur illa,
og verktaki tilkynnti verkkaupa
að botninn væri ógræfur og
ekki í samræmi við útboðsgögn.
Rannsókn fór fram, eftirá, og
verktakinn var leystur frá
skyldum sínum og heimilað að
hverfa frá verkinu. Annar tók
við og notaði sprengiefni í stað
dýpkunarpramma.
Við dýpkun á Hörgeyrargarði
í Vestmannaeyjahöfn kom svip-
að í ljós, útboðslýsing á botni og
mannvirkjum sem þurfti að
ijarlægja, var fjarri öllum
sanni, stórt klettabelti þar sem
átti að vera sandfláki. Því máli
lauk fyrir dómstólum og Hafna-
málastofnun dæmd til að greiða
verktaka 40,6 milljónir og 2
milljónir í málskostnað.
í einu tilviki voru útboðsgögn
miðuð við 15 ára gamlar dýpt-
armælingar í Þingeyrarhöfn
sem ekki stóðust. í Þorlákshöfn
gleymdist að geta um klöpp í
botni hafnarinnar þar sem reka
átti niður staura.
Hafnalög ekki virt
Rflcisendurskoðun gagnrýnir að
í nokkrum tilvikum fengu
hafnaframkvæmdir sem ekki
voru á hafnaáætlun framlög á
íjárlögum, eftir að framkvæmd
var lokið. Þarna voru hafnalög
ekki virt, en þau segja að fram-
kvæmd sem njóta skal rflds-
styrks eigi að vera undir tækni-
legu og fjárhagslegu eftirliti
Hafnamálastofnunar. Á þessum
árum var ráðist í 19 fram-
kvæmdir sem ekki voru á
hafnaáætlun, en nutu eigi að
síður styrks úr rfldssjóði, 378
milljóna á tímabilinu. Þá voru
brögð að því að ráðist var í
verkefni enda þótt vitað væri
strax á útboðsstigi að kostnað-
aráætlanir myndu ekki standast
og yrðu ekki innan ramma fjár-
heimilda. Eigi að síður láðist að
staldra við og endurmeta for-
sendur verksins.
Pappírsvinna í ólagi
Þá gagnrýnir Rfldsendurskoðim
þá vankanta sem eru á ýmissi
pappírsvinnu Hafnamálastofun-
ar. Meðal annars vantar fram-
kvæmdaskýrslu fyrir hverja
framkvæmd þegar henni er lok-
ið, þannig að finna megi raun-
kostnað framkvæmdar til að
gera samanburð á raunkostn-
aði og áætlunum.
Rfldsendurskoðun segir að í
árslok 1995 hafi verið búið að
skuldbinda rfldssjóð vegna haf-
inna og óhafmna hafnafram-
kvæmda um 689,4 milljónir
króna. Árlegt framlag rfldsins
til málaflokksins er því bundið í
óuppgerðum framkvæmdum.
-JBP
Akureyri
Bygging nýs stórgripa-
sláturhúss möguleg
Ríkissjóður
Minnsti halli í tólf ár
Möguleikar eru á því að
Kaupfélag Eyfirðinga
ráðist í byggingu stór-
gripasláturhúss á Akureyri, en
hugsanlegt er að byggt verði
hús með vinnslulínu bæði fyrir
sauðfé, stórgripi og svín. Óli
Valdimarsson, sláturhússtjóri
KEA, segist helst reikna með því
að farin verði sú leið að byggja
stórgripasláturhús en halda
áfram sauðijárslátrun í núver-
andi sláturhúsi niður á tanga
Oddeyrar. Það sem þrýstir á að-
gerðir er að sláturhúsið fái leyfi
tfl að slátra sauðfé til útflutn-
ings. Undanfarin ár hefur verið
rætt um hagræðingu í
sauðfjárslátrun með
sameiningu sláturhúsa
en nú hafa flest þeirra
á stefnuskrá að breyta
og bæta til að fá út-
flutningsstimpilinn. ÓU
Valdimarsson segir að
í a.m.k. áratug hafi
verið rætt um það að
hagræða á þann veg
að öll mjólkurfram-
leiðsla fari fram á Ak-
ureyri en slátrun hjá
Kaupfélagi Þingeyinga á Húsa-
vflc.
„Það er mikill kostnaðm- því
samfara að flytja allt sláturfé og
stórgripi til Húsavflcur og síðan
aftur tfl baka ef sláturhús KEA
yrði lagt niður. Á Akureyri þyrfti
að vera til staðar mannskapur
til að taka á móti kjöti, slátri
o.fl. svo ég er svolítið efins um
sparnaðinn þessu samfara. Það
er lflca kostnaðarsamt að flytja
mjólk í vinnslu t.d. austan úr
Þistilfirði og allt til Akureyrar.
Ég er hræddur um að bændur í
Arnarneshrepppi eða Eyjafjarð-
arsveit yrðu ekki hrifnir að
greiða niður mjólkurflutninga
svo langa leið. Ég bendi líka á
að ef bændur úr Eyjafirði senda
fé til Húsavflcur eru þeir ekki
endilega að halda áfram við-
skiptum við KEA, heldur þá við
KÞ. KEA lokaði sláturhúsinu á
Dalvflc fyrir nokkrum árum og
ég vildi ekki lenda í bændum
hér frammi í firði ef sláturhúsið
á Akureyri yrði lagt niður,“
sagði Óli Valdimarsson.
Óli segir að upp gæti komið
sú spurning af hverju Akureyr-
ingar ættu að kaupa kjöt sem
framleitt er í sláturhúsi sem
ekki hafi EB-leyfi. KEA hefur
ráðið Helga Jóhannesson sem
forstöðumann slátrunar- og
kjötsviðs KEA og væntanlega
koma þessi mál inn á hans borð
flljótlega eftir að hann tekur við
starfinu 19.febrúar nk. GG
Tæplega tveggja millj-
arða halli var á rflds-
sjóði á síðasta ári,
samkvæmt bráðabirgðatöl-
um sem fjármálaráðuneytið
kynnti í vikunni. Hallinn
hefur ekki verið minni í 12
ár, eða síðan 1984 þegar
ríkissjóður var síðast rekinn
með afgangi. Þegar tekið er
tillit til innlausnar 3 flokka
spariskírteina í fyrra var
hallinn tæpir 12 milljarðar,
en rfldssjóður á eftir að
spara umtalsverðar fjár-
hæðir á innlausninni, þar
eð skírteinin báru mjög háa
vexti. Heildartekjur rfldsins
í fyrra voru tæpir 128 millj-
arðar og útgjöldin tæpir 130
milljarðar.
f fjárlögum 1996 var gert
ráð fyrir 4 milljarða halla,
en meginskýringin á betri
afkomu er sú að tekjurnar
urðu mun meiri og munar
þar u.þ.b. 7 milljörðum
króna. Tekjuskattur ein-
staklinga skilaði 4 milljörð-
um meira í rfldskassann en
áætlað hafði verið. Fram
kom hjá forsætisráðherra á
alþingi á mánudag að sam-
kvæmt því megi ætla að at-
vinnutekjur hafi vaxið um 8
til 9% á síðasta ári.
Útgjöld ríkisins urðu
einnig talsvert meiri á ár-
inu, en ráð var fyrir gert,
eða nærri 5 milljörðum
hærri en áætlað var í fjár-
lögum 1996.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
MARÍA HALLA JÓNSDÓTTIR,
Ingvörum,
Svarfaðardal,
lést 2. febrúar síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin auglýst síðar.
Árni Steingrímsson,
Edda Björk Valgeirsdóttir, Júlíus V. Sigurðsson,
Jón Víkingur Árnason, Ester Anna Eiríksdóttir,
Saga Árnadóttir,
Börkur Árnason,
Birkir Árnason,
Sigrún Árnadóttir
og barnabörn.
Óli Valdimarsson
sláturhússtjóri á Akureyrí
Mikill kostnaður því
samfara að flytja allt
slóturfé og stórgripi til
Húsavíkur og aftur til
baka ef sláturhús KEA
yrði lagt niður og ég er
efins um sparnaðinn.