Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Síða 11
jOagur-'ÍEmmm
Miðvikudagur 12. febrúar 1997 -11
H E S T A R
Sigurður tekur við Edda-hestum
Fyrirtækið Eddahestar hef-
ur verið við lýði í nokkur
ár og einkum sinnt sölu á
reiðhrossum og þá mest til út-
landa. Fyrirtækið er þjónustu-
fyrirtæki í eigu hrossabænda og
annast um útflutning og leitar
markaða. Það kaupir ekki hross
en er aðeins umboðsaðili. Nú
hefur samist þannig milli Sig-
urðar Vignis Matthíassonar
tamningamanns að hann tekur
yfir þennan rekstur sem verk-
taki. Fyrri viðskipti Eddahesta
eru honum óviðkomandi og
hann annast nú reksturinn á
eigin ábyrgð, en undir nafninu
Eddahestar.
Sigurður verður með sölu-
miðstöð sína í Faxabóh á Fáks-
svæðinu og er síminn hjá hon-
um 897-1713. Hann mun veita
alla þá þjónustu sem Edda-
hesstar hafa áður í té látið svo
sem skoðun á þeim hestum sem
gefnir eru falir og flutning á
þeim til Reykjavíkur.
Ætlunin er að koma upp um-
boðsmannakerfi um landið. Til
að byrja með verður einn í
hverjum landsfjórðungi nema á
Norðurlandi þar sem verða
tveir. Þeir sem hafa hross til
sölu geta þá snúið sér til þess-
ara manna og fengið þá til að
líta á þau og jafnvel tekið
hrossin upp á myndband.
Einnig gefa þeir upplýsingar
eftir því sem við á. Enn er þetta
kerfi í mótun, en Sigurður ætlar
sér að fara hægt af stað en
reyna að byggja upp vandaða
þjónustu.
Eddahestar hafa flutt út ár-
lega í kringum 200 hross og
vonast Sigurður til að hægt sé
að auka þennan útflutning með
tímanum.
Margt efnilegt
í tamningu
Eins og aðrir tamningamenn er
Sigurður með í tamningu og
þjálfun margt af efnilegum
hrossum og reyndar búið að
biðja hann fyrir fleiri hross en
hann hefur getað tekið að sér.
Nokkrir stóðhestar eru hjá Sig-
urði. Hann er með Nökkva frá
Vindási í Hvolhreppi. Nökkvi er
á 5. vetur undan Hirti frá Tjörn
og Sunnu frá Gullberastöðum,
en hún var undan Hélu
Nökkvadóttur frá Guilberastöð-
HESTA-
MÓT
Kári
Arnórsson
um og Y1 frá Kirkjubæ. Nökkvi
var sýndur í fyrra á Stóðhesta-
stöðinni 4ra vetra. Þá er annar
foli hjá Sigurði sem einnig var á
Stöðinni í fyrra. Það er Stirnir
frá Syðra-Fjalli undan Safír frá
fJllllSltf!!
Sigurður er vel þekktur knapi í Evrópu eftir tvöfaldan heimsmeistaratitil á síðustu heimsleikum. Hér situr hann
gæðinginn Huginn frá Kjartansstöðum.
Viðvík og af Kolkuóskyni í móð-
urætt. Þá er foli á 5. vetur und-
an Lömbu Flosadóttur frá
Lambleiksstöðum og Kveik frá
Miðsitju. Þá er Orrasonur frá
Stóru-Ásgeirsá en Orrasynir
eru nú hjá næstum öllum nafn-
kenndum tamningamönnum.
Nýkominn er á hús Þráður
sonur Trostans frá Kjartans-
stöðum, foli á 4. vetur. Móðir
hans er Frekja frá Vallanesi. Þá
eru nokkrar hryssur sem Sig-
urður bindur vonir við. Má þar
nefna hryssu á 4. vetur undan
Kveik frá Miðsitju og Venusi frá
Skarði, en Venus sló í gegn á
íjórðungsmótinu á Suðurlandi
1991 og hlaut þá 8,73 fyrir
hæfileika. Venus er undan Atla
frá Syðra-Skörðugili og móðirin
er af Kolkuósætt.
Tvær hryssur er Sigurður
með undan Gusti frá Grund og
fleira efnilegt er í hesthúsinu
hjá honum.
Mikið af leirljósu
hjá Einari og Svanhvíti
Hjá Einari Öder og Svan-
hvíti Kristjánsdóttur á
Selfossi eru mörg hross
í tamningu og þjálfun eins og
endranær. Þar hefur alltaf
verið margt stóðhesta og svo
er einnig í vetur. Frá Kjarn-
holtum eru þrír folar. Meitill
undan Kolflnni frá Kjarnholt-
um og Hrefnu frá Holtsmúla
var sýndur í fyrra 4ra vetra
gamall og er stefnt með hann
í sýningu nú í vor. Dagfari er á
4. vetur undan Blíðu frá Gerð-
um og Kolskeggi frá Kjarn-
holtum, en Kolskeggur fórst af
slysförum í haust eins og
greint hefur verið frá. Þá er
Þyrill á 5. vetur undan Oddi
frá Selfossi og Kolbrá frá
Kjarnholtum. Hann var frum-
taminn í fyrra og fer mjög vel
af stað. Þá er sonur Leiru frá
Þingdal, sem er móðir Odds
og Stíganda frá Hvolsvelh. Sá
er leirljós og heitir Atgeir.
Þá er annar leirljós blesótt-
ur frá Grjóteyri og er hann
Oddson og undan Hörpu frá
Grjóteyri sem er undan Hætti
frá Steðja. Sá Heitir Fannar.
Undan Náttfara frá Ytra-
Dalsgerði og Drottningu frá
Skálá er Sölvi á 5. vetur, fríð-
ur foli og vígalegur.
Margar efnilegar
hryssur
Þá eru allmargar hryssur í
tamningu og sú sem vekur
hvað mesta athygli er Vakning
undan Oddi og Flugu frá Arn-
arhóli Ljóradóttur sem varð
næst efst á landsmótinu á
Vindheimamelum 1990. Vakn-
ing vekur athygli fyrir mikinn
fótaburð, en hann virðist er-
fast vel frá Oddi svo og viljinn.
Tvær hryssur eru undan Funa
frá Skálá og er önnur undan
Leiru og er hún leirljós gló-
fext. Hin er undan Hörpu frá
Grjóteyri. Báðar lofa þessar
hryssur góðu. Frá Grjóteyri er
ein Orradóttir og er móðir
hennar Kolbrún frá Grjóteyri
sem er út af Nökkva frá
Hólmi, en Kristján á Grjóteyri
faðir Svanhvítar hélt mikið
upp á það kyn.
Það er greinilegt að
leirljósi liturinn sem
kominn er frá Leiru
frá Þingdal skilar sér
vel í gegnum Odd son
hennar. Leira er und-
an Fylki 707 frá Flögu
sem var leirljós undan
Regin frá Flögu, sem
var leirljós, og Blesu
frá Flögu sem líka var
móðir Regins. í móð-
urætt var Fylkir kom-
inn út af Sleipni 249
frá Uxahrygg sem var
leirljós og var afi Lýs-
ing 409 frá Voðmúla-
stöðum. Leirljósi litur-
inn er því sterkur á
bak við Odd.
Oddur gefur mikið af leirljósu. Hér situr Svanhvít Oddssoninn Skinfaxa frá Þóreyj-
arnúpi.
Móta- og viðburða-
skráin komin út
Móta- og viðburðaskrá
Landsambands hesta-
mannafélaga hefur nú
litið dagsins ljós. Sú breyting er
nú á orðin að getið er um
helstu viðburði sem eru á veg-
um hestamannafélaganna og
íþróttadeildanna þó ekki sé um
eiginleg mót að ræða. Það sem
máli skiptir þó í þessari skrá
eru þau mót sem stærst eru og
ná til flestra bæði hvað varðar
þátttöku í keppni svo og áhorf.
Hér á eftir verða rakin helstu
mót og sýningar sem verða á
þessu ári en síðar er ætlunin að
geta nánar um hvað verður á
seyði í hverjum mánuði.
Fjórðungsmótið á Vestur-
landi verður stærsta mótið á
vegum hestamannafélganna á
þessu ári. Það fer fram á Kald-
ármelum dagana 26,- 29. júní.
íslandsmótið í hestaíþróttum
verður á Vindheimamelum í
Skagafirði 18.- 20 júh'. Heims-
leikar á íslenskum hestum fara
fram í Seljord í Noregi 4.-10.
ágúst. Hvítasunnumót Fáks
verður 22.-25. maí og Félags-
mót og héraðssýning Geysis
verður á Gaddstaðaflötum 7.-8.
júm'. Murneyramótið verður
26.-27. júlí. Stórmót Skagfirð-
ing verður á Vindheimamelum
1.-3. ágúst og stórmót Sunn-
lendinga á Gaddstaðaflötum 8.-
10 ágúst. Ilestamót Húnvetn-
inga verður í Húnaveri 21.-22.
júlí.
Framhaldsskólamót í hesta-
íþróttum verður í Reiðhöllinni í
Víðidal 4.-6. apríl. Reykjavíkur-
meistaramót í hestaíþróttum
verður í Víðidal 9.-ll.maí og
Akureyrarmeistaramótið á
Hlíðarholtsvelli 17.-19. júlí. Þá
verða Friska fríska leikarnir á
Akureyri 6.-8. júm'.
Sýningar
Sýningar hefjast með sýningu
Félags tamningamanna í Reið-
höllinni í Víðidal 21.-23. mars.
Þá verður Fákur með Reiðhall-
arsýningu 11.-13. apríl. Hesta-
dagar Sunnlendinga og Norð-
lendinga verða í Reiðhöllinni í
Víðidal 3.-5. maí. Stóðhesta-
stöðin í Gunnarsholti verður
með sína árlegu sýningu 4. maí.
Mót- og viðburðaskráiii fyrir febrúar er þannig:
15. Geysir Vetrarmót Gaddstaðaflötum
15. Gustur Velrarleikar Glaðheimum
15. Andvari Vetrarleikar KjóavöUum
22. Fákur Vetraruppákoma Víðidal
22. Hörður Árshátíðarmót Varmárbökkum
22.-23. Léttir Vetrarleikar Akureyri
23. Félögin á Rvíkursv.
Æskulýðsdagur Reiðhöll Gusts
Kópavogi