Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Side 3
Jlagur-®TOTOm
Þriðjudagur 25. febrúar 1997 - 3
Dagurinn í dag, þriðjudagurinn 25. febrúar, er úrslitadagur hvað varðar
framvindu kjaraviðræðna að mati framkvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins.
Engin sjáanlegur ár-
angur af viðræðum
um helgina. Félög
fara að undirbúa
verkföll.
að getur vel verið að hjá
því verði ekki komist að
verkalýðsfélögin telji að
það sé svo langt síðan að þau
hafa staðið í verkföllum að það
sé nauðsynlegt félagslega að
láta á það reyna.
Ég ætla hinsvegar
eldn að dæma um
það, en ég hef
heyrt þessi sjónar-
mið,“ segir Pórar-
inn V. Þórarinsson,
fr amkvæmdastj óri
VSÍ. Sjálfur segist
hann ekki vera á
leið í verkfall.
Hann segir að
dagurinn í dag,
þriðjudagurinn 25. febrúar,
muni verða töluverður úrslita-
dagur um framvindu kjaravið-
ræðna. En eins og kunnugt er
þá er þetta dagurinn þar sem
landssambönd innan ASÍ ætla
að meta árangurinn af þeim
viðræðum sem átt hafa sér stað
frá því þau lögðu fram heild-
stæða kjarastefnu föstudaginn
14. feb. sl. Kjaraviðræður hóf-
ust hinsvegar sl. haust á grund-
velli viðræðuáætlana þar sem
mörg félög og landssambönd
voru tilbúin með kröfugerðir
sínar.
Framkvæmdastjóri VSÍ segir
að það muni ekki hafa áhrif á
viðræður um gerð kjarasamn-
inga, þótt einstök félög og
landssambönd muni fara að
undirbúa sig undir verkfallsað-
gerðir. Hann óttast hinsvegar
að ef kemur til verkfalla, þá
geti þau orðið löng. Það sé
reynsla sögunnar.
En bæði Rafiðnaðarsam-
bandið og Dagsbrún-Framsókn
munu vera farin að huga að
undirbúningi hugsanlegra að-
gerða af sinni hálfu og jafnvel
fleiri. Þá mun samninganefnd
VMSÍ funda með formönnum
þeirra aðildarfélaga sem það
hefur samningsumboð fyrir á
morgun, miðvikudag.
Enginn árangur varð í kjara-
viðræðunum um helgina þar
sem m.a. var tekist á um út-
færslur á því hversu stór hluti
af bónusgreiðslum í fiskvinnu
ætti að koma inn í launataxt-
ana. Þá hefur það valdið at-
vinnurekendum vonbrigðum að
landssambönd ASÍ koma ekki
sameiginlega að samningaborð-
inu í framhaldi af sameiginlegri
kjarastefnu. -grh
Forsætisráðuneytið
Vigdís
ekki dýr
Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti fslands, hef-
ur aðeins notið íjárstuðnings
sem nemur nokkrum tugum
þúsunda frá forsætisráðuneyt-
inu' eftir að forsetatíð hennar
lauk. Ríkisstjórnin ákvað í fyrra
að veita heimild til að greiða
allt að milljón kr. árlegan
kostnað Vigdísar af störfum
sem tengudst stöðu hennar sem
fyrrverandi forseta íslands.
„Það stóð aldrei til að
forsetinn fyrrver-
andi fengi milljón í
hendurnar.“
„Eini kostnaðurinn sem for-
sætisráðuneytið hefur lagt út
fyrir frú Vigdísi Finnbogadóttur
er vegna aðstoðar ritara við
hana og sá kostnaður er óveru-
legur, hleypur á tugum þús-
unda,“ segir Guðmundur Árna-
son, skrifstofustjóri í forsætis-
ráðuneytinu.
Það sem ekki nýtist af heim-
ild fyrrverandi forseta veltur yf-
ir á nýtt ár en rétt er að taka
fram að ekki er um opna heim-
ild fyrrverandi forseta að ræða,
heldur aðeins heimild forsætis-
ráðuneytisins til að ráðstafa
ijármunum í tilteknu skyni.
„Það stóð aldrei til að forsetinn
fyrrverandi fengi milljón í
hendurnar," segir Guðmundur
Árnason. BÞ
Þórarinri V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri VSÍ 8 „Töluverður úrslita- dagur í dag um framvindu Igaraviðrœðna. “
Alþingi
Fylgst með umræðu um Æsumálið á þingpöllum í gær. Kolbrún
Sverrisdóttir er lengst til vinstri með rós í höndunum, en hún
missti bæði eiginmann og föður í hinu hörmulega sjóslysi.
Ekki peningar til að
hífa Æsuna upp
Fátt bendir til að rflcið
greiði kostnað við að
lyfta kúfiskbátnum
Æsu upp af botni Arnar-
fjarðar eftir að skipið fórst í
blíðskaparveðri í fyrrasum-
ar. Tveir menn fórust, eigin-
maður og faðir Kolbrúnar
Sverrisdóttur, sem er mjög
ósátt við rannsókn slyssins.
Málið var rætt utan dag-
skrár á Alþingi í gær sem og
rannsóknir á sjóslysum al-
mennt. Kristinn H. Gunnar-
son, Alþýðubandalagi, hóf
umræðuna og sagði að það
hlyti að vera öllum kapps-
mál að komast að því hvað
olli hinu hörmulega slysi.
Það kom fram hjá Kristni að
Rannsóknarnefnd sjóslysa
hefur áætlað að kostnaður-
inn við að lyfta flakinu upp á
yfirborðið verði 20 millj. kr.
Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra sagði eitt til-
boð hafa borist í verkið sem
hljóðaði upp á 32 millj. kr.
Stjórnvöld hefðu til þessa
lagt meiri áherslu á að
bjarga sjómönnum en eyða
tugum milljónum króna í að
lyfta skipsflökum.
Það kom fram hjá Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkis-
ráðherra að óskað hefði
verið eftir liðsinni köfunar-
sveitar Varnarliðsins. Hún
hefði ekki treyst sér til að
vinna verkið vegna þess hve
djúpt báturinn liggur. Æsan
liggur á 250 feta dýpi.
Bændasamtökin
Bændur verða líka
að líta sér nær
Áhyggjur manna yfir
bágri afkomu og
hvernig hana megi
bæta voru það sem
Búnaðarþings-
fulltrúum lá á hjarta
í umræðum á þinginu
í gær.
ví miður hefur ekki komið
fram mikið af einföldum
Iausnum, enda ekki við
því að búast, því þær eru ekki
til,“ sagði Ari Teitsson, formað-
ur Bændasamtaka íslands, að-
spurður hvað honum hefði þótt
einna markverðast af umræð-
um á Búnaðarþingi í gær. Menn
hafi áhyggjur af því að mjög
erfitt verði að bæta kjörin veru-
lega. Verðþol þessara vara sé
takmarkað, þannig að það sé
ekki vænlegt að hækka verð bú-
vara að ráði. Ekki sé heldur að
vænta mjög aukins stuðnings
frá ríkinu.
„Menn horfa að vísu til þess
að hugsanlega megi spara eitt-
hvað í betri innkaupum á að-
föngum og e.t.v. ná betri nýt-
ingu á vinnslustöðvunum. En
þar á móti hafa menn áhyggjur
af því að það komi þá niður á
atvinnustigi á viðkomandi
svæði. Mörgum fulltrúunum
hrýs því hugur við þeirri leið,
þótt þeir viðurkenni að hún
skili hugsanlega bændum
einhverjum tekjuauka," sagði
Ari.
Við setningu þingsins sagði
hann m.a.: „Bændur verða líka
að líta sér nær. Þátttaka þeirra
og ábyrgð á rekstri afurða-
stöðva er of lítil og kostnaður
við úrvinnslu afurðanna víða of
mikill. Þar ráða m.a. þröng
byggðasjónarmið. Leiði þau til
að bændur fái minna en skyldi í
sinn hlut til búrekstrar geta
byggðasjónarmiðin snúist upp í
andhverfu sína og eytt byggð.
Þessu breyta ekki aðrir en
bændur hver í sínu héraði."
M.v. umræðuna í gær segir
Ari þessi orð sín ekki hafa haft
algerlega tilætluð áhrif, þótt
skoðanir manna hafi að vísu
verið nokkuð skiptar. En margir
horfi til þess að lokun slátur-
húss eða mjólkurstöðvar yrði
neikvæð fyrir hin ýmsu byggð-
arlög.
Ari benti einnig á að hugsan-
lega gætu íslenskir
bændur farið at-
hyglisverða
„norska" leið til
lækkunar vaxta af
rekstrarlánum,
sem séu einn af
erfiðustu kostnað-
arliðum búrekstr-
ar. Gegnum fram-
leiðslusamvinnufé-
lög sín hafi „frænd-
ur okkar Norð-
menn“ gert samninga um sam-
eiginlega ábyrgð á rekstrarlán-
um bænda og þannig náð veru-
legri lækkun vaxta. Ef til vill
getum við farið svipaða leið.
Þessa viku segir Ari verða
notaða til þess að vinna úr
þeim málum sem liggja fyrir
Búnaðarþingi og umræðum í
gær. „Þegar líður á vikuna för-
um við væntanlega að komast
að einhverri niðurstöðu um það
hvað helst sé til ráða,“ sagði
formaður Bændasamtakanna.
- HEI
Ari Teitsson
formaður Bærtdasamtakanna
„Ekki vænlegt
að hœkka
verð búvara. “