Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Síða 10
10 - Þriðjudagur 25. jebrúar 1997
iDagur-(Etmtmt
!
1
i
Úrvalsdeild
Úrslit
Chelsea-Man. Utd. 1:1
(Zola 2) (Beckham 68}
Coventry-Everton 0:0
Leicester-Derby 4:2
(Marshall 7, 24, 27, Claridge 59)
(Sturridge 2, 47)
Liverpool-Blackburn 0:0
Middlesbrough-Newcastle 0:1
(Ferdinand 8)
Nottm. Forest-Aston Villa 0:0
Southampton-ShelT. Wed. 2:3
(Ostenstad 28, Le Tissier víti 33)
(Hirst 49, 55, Booth 78)
Sunderland-Leeds 0:1
(Bowyer 49)
Arsenal-Wimbledon 0:1
(Jones 21)
Staðan
27 15 9 3 53:30 54
27 15 8
2614 6
28 13 9
27 12 7
24 12 6
25 11 9
26 9 12
27 9
26 8
Man. Utd.
Uverpool
Newcastle
Arsenal
Aston Villa
Wimbledon
Chelsea
Sheíí. Wed.
Leeds
Everton
Tottenham
Leicester
Derby
Sunderland
Blackburn
Coventry
Nottm. For.
West Ham
Southampton 24 5
Middlesbr.* 25 5
4 46:20 53
6 51:30 48
6 45:26 48
8 34:26 43
6 37:29 42
5 39:34 42
5 31:31 39
6 12 22:31 33
8 10 34:38 32
25 9 5 11 27:33 32
25 8 6 11 29:37 30
27 6 11 10 27:36 29
26 7 8 11 23:33 29
25 6 10 9 26:25 28
27 6 10 11 24:35 28
26 5 9 12 23:40 24
25 5 7 13 20:33 22
5 14 34:44 20
7 13 30:45 19
*3 stig dregin af Middlesbrough fyrir
að mæta ekki til leiks.
1. deild
Úrslit
Barnsley-Wolves 1:3
Charlton-Norwich 4:4
C. Palace-Tranmere 0:1
Huddersfield-Bolton 1:2
Ipswich-Oxford 2:1
Man. City-Swindon 3:0
Oldham-Bradford 1:2
Reading-Southend 3:2
ShelT. Utd.-Grimsby 3:1
Stoke-QPR 0:0
West Brom-Portsmouth 0:2
KNATTSPYRNA • England
Beckham hélt Manchester
United á toppnum
Manchester United held-
ur toppsæti ensku
deildarinnar eftir leiki
helgarinnar þrátt fyrir að liðið
haíi aðeins náð jafntefli gegn
Chelsea. Liverpool nýtti ekki
færin sín gegn Blackburn og
þeim leik lauk einnig með jafn-
tefli. Á sunnudag tapaði Arsen-
al síðan öðrum heimaleiknum í
röð þegar hörkutólin í Wim-
bledon tók öll þrjú stigin með
sér heim frá Highbury.
Leikmenn Manchester Unit-
ed áttu í vandræðum strax í
upphafi leiksins gegn Chelsea
og ítalski snillingurinn Gian-
franco Zola sólaði sig í gegnum
vörnina strax í byrjun og kom
heimamönnum yfir. Chelsea átti
fyrri hálfleikinn en leikurinn
snérist alveg eftir hlé og United
sótti stíft. Það var síðan miðju-
maðurinn snjalli David Beck-
ham sem jafnaði metin. Hann
skorar ávallt glæsileg mörk og
þá sérstaklega í London. Hann
hefur skorað glæsimörk gegn
Wimbledon, West Ham og Tot-
tenham á þeirra heimavöllum
og markið gegn Chelsea var
ekkert slor - þversláin inn.
Fowler feilaði
Liverpool fékk fjölda færa til að
gera út um leikinn gegn Black-
burn en öll fóru þau forgörðum.
Markahrókurinn Robbie Fowler
var stærsti sökudólgurinn að
þessu sinni og var í senn
óheppinn og fór illa með færin.
Tvisvar fóru skot hans í stang-
irnar en hann brenndi líka af
þremur dauðafærum til viðbót-
ar sem smápollar myndu
skammast sín fyrir að misnota.
Lokastaðan 0:0.
Gamlir jaxlar í kröppum dansi. Brian McClair og
Mark Hughes, sem eitt sinn mynduðu framherja-
par Man. Utd, berjast um boltann í leik Chelsea
og Man. Utd. um helgina.
Newcastle sigraði Middles-
brough í nágrannaslag með
marki frá Les Ferdinand. Leik-
ur Newcastle ber nú greinileg
merki þess að Kenny Dalglish
hefur tekið við stjórnartaumun-
um og liðið lék árangursríkan
bolta fremur en að sýna snilld-
artakta. Asprilla, Beardsley og
Ginola vermdu bekkinn allan
tímann.
Wimbledon heimsótti Arsen-
al í sunnudagsleiknum og sigr-
uðu með marki frá Vinnie Jones
um miðjan fyrri hálfleik. Hinn
alræmda vörn Arsenal var
þunnskipuð í leiknum enda
vantaði David Seaman, Tony
Adams og Martin Keown vegna
meiðsla og Steve
Bould fór útaf
meiddur í leiknum.
Pá er miðjumaður-
inn David Platt enn
ekld tii í slaginn.
Snéru dæm-
inu við
Sheffield Wednes-
day var tveimur
mörkum undir í
hálfleik gegn Sout-
hampton og David
Pleat, stjóri liðsins,
ákvað að gera
breytingar. Hann
setti framherjana
Andy Booth og
Regi Blinker inná
fyrir miðjumenn-
ina Wayne Collins
og Ritchie Hump-
hreys og breytingin
skilaði undraverð-
um árangri. David
Hirst jafnaði með
tveimur mörkum
og varamaðurinn
Booth tryggði sigurinn, 3:2.
Leicester vann frækinn sigur
á Derby þrátt fyrir að lykilmenn
á borð við Matt Elliott, Emile
Heskey, Neil Lennon og Muzzy
Izzett væru allir í leikbanni. Ian
Marshall var hetja Leicester
þegar hann skoraði þrennu á
tuttugu mínútna kafla í fyrri
hálfleik og Leicester sigraði 4:2.
Leeds vann góðan sigur á Le-
eds með marki frá Lee Bowyer
og Tony Yeboah fékk tækifæri
til að bæta tveimur mörkum
við. Hann er nú kominn í liðið á
ný og sömu sögu er að segja um
Ian Rush og Lee Sharp.
KARFA • Úrvaisdeildin
íslandsmeistararnir rotaðir
Eftir 20 umferðir í DHL-
deildinni er orðið nokkuð
ljóst hvaða lið hafa unnið
sér sæti í úrslitakeppninni,
keppni hinna 8 bestu, sem hefst
fyrstu vikuna í mars.
KFÍ getur reyndar náð í 20
stig, eins og KR-ingar, með því
að vinna alla leiki sína, en þeir
verða jafnframt að treysta á að
ÍR og Skallagrímur tapi báðum
leikjum sínum á lokasprettin-
um. Keflvíkingar nánast gull-
tryggðu deildarmeistaratitilinn
Aðalfundur
íþróttafélagsins
Þórs
verður haldinn í Hamri
laugardaginn 1. mars
kl. 13.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
og hafa nú þegar tryggt sér 3 af
fjórum titlum sem keppt er um
á tímabilinu.
UMFN-ÍR 94-89
Njarðvíkingar virðast komnir á
sigurbraut á ný eftir misjafnt
gengi undanfamar vikur. Nú
lögðu þeir spræka ÍR-inga að
velli á heimavelh sínum og
náðu í 24. stigið sitt í deildinni
og 5. sætið. Þeir eiga nú í
harðri rimmu við Haukana um
fjórða sætið í deildinni. ÍR þarf
helst að vinna báða sína leiki til
að gulltryggja sæti í úrslita-
keppninni þar sem ísfirðingar
geta enn náð þeim að stigum.
ÍA-Grindavík 78-64
íslandsmeistararnir sóttu ekki
gull í greipar Skagamanna að
þessu sinni. Þeir máttu sætta
sig við stórt tap, þar sem þeir
fengu hreinlega rothögg á síð-
ustu mínútum leiksins. Grind-
víkingarnir voru einu stigi yfir
þegar 5 mínútur lifðu af leikn-
um. Þá vöknuðu heimamenn
heldur betur til lífsins sýndu
gestum sínum hvar Davíð
keypti ölið, nefnilega á Akra-
nesi. Skagaliðið lék allt vel í
þessum leik meðan Herman
Myers var sá eini í liði ísfands-
meistaranna sem vann fyrir
kaupinu sínu.
Keflavík-Skallagrímur
112-86
Þessi leikur fór eftir bókinni,
Skallarnir sáu ekki til sólar eftir
að skyttur Keflvíkinga náðu að
stilla miðið. Fátt getur nú kom-
ið í veg fyrir að Keflvíkingar
bæti deildarbikarmeistaratitlin-
um á hilluna hjá sér. Skalla-
grímur hefur verið á mikilli
siglingu undanfarið en nú slógu
þeir á feilnótuna. Þeir ættu
samt að vera nokkuð öruggir í
úrslitakeppnina.
KR -UMFT 115-77
Það er skemmst frá því að segja
að KR tók Stólana í kennslu-
stund að þessu sinni. Allt gekk
upp hjá KR-ingum meðan
Tindastólsmenn ráfuðu um völl-
inn í reiðileysi og vissu sjaldn-
ast hvort þeir voru að koma eða
fara. Oft þvældust þeir hrein-
lega hver fyrir öðrum og ekkert
gekk upp hjá þeim. Þeir flutu á
einstaklingsframtaki Arnars,
Ómars og Lárusar. KR liðið Iék
allt frábærlega vel. Roney Eford
átti stórleik sem og Jonathan
Bow og reyndar allir hinir líka.
UBK - Þór 80 - 90
Þórsarar gerðu góða ferð suður
og tóku bæði stigin sem í boði
voru í botnslagnum. Þeir sigla
nú lygnan sjó og geta leyft sér
að leika afslappaðir. Þór hefur
oft sýnt það í vetur að efnivið-
urinn í hði þeirra er góður. Það
sem þá vantar tilfinnanlega til
þess að vera í hópi hinna bestu
er einn til tveir reynslumiklir og
traustir leikmenn. Fred Willi-
ams og Konráð Óskarsson eru
burðarásarnir í liðinu og það
má teljast gott hjá þeim að hafa
náð í þessi tólf stig sín með að-
stoð unglinganna sem liðið
skipa.
Haukar-KFÍ 89-83
Haukarnir unnu mikilvægan
sigur á ísfirðingum á heimavelli
sínum í Strandgötunni. Þeir eru
nú í fjórða sætinu og geta því
sem best tryggt sór heima-
leikjaréttinn í margnefndri úr-
slitakeppni. Vonir ísfirðinga um
sæti í þessari sömu keppni
minnkuðu talsvert við þetta tap.
Þó er ekki öll von úti enn fyrir
nýliðana. Haukarnir stjórnuðu
þessum leik lengst af þó KFÍ
næði að klóra lítilsháttar í
bakkann eftir því sem á leikinn
leið.
HANDBOLTI
Sagteftír
bikarúrslit
Sigurður Gunnarsson
þjálfari Hauka
„Við misstum KA-menn aldrei
of langt frá okkur í fyrri hálf-
leiknum og fyrst okkur tókst að
komast í gegn um þann kafla og
ná forystunni, þá fannst mér
þetta aldrei vera í stórvægilegri
hættu. Við vorum vel stemmdir,
vissum hvað við ætluðum að
gera og höfðum trú á því að
okkur tækist það,“ sagði Sig-
urður Gunnarsson, þjálfari
Hauka.
„Ólíkt því sem við höfum ver-
ið að gera, fannst mér við spila
síðri vörn, en að mestu leyti
góðan sóknarleik. Andinn í lið-
inu hafði mikið að segja, það
voru allir staðráðnir í að gera
sitt besta.“
Björgvin Björgvinsson
leikmaður úr KA
„Þeir voru mjög stressaðir í
byrjun og við hefðum átt að
nýta okkur það miklu betur, við
misnotuðum mörg góð mark-
tækifæri af línunni og úr horn-
inu. Við vorum að spila mjög
vel framan af, í vörninni, en við
vorum samt að fá ódýr mörk á
okkur. í síðari hálfleiknum tókst
okkur aldrei að brjóta múrinn
og jafna leikinn. Ef það hefði
gerst hefði örugglega farið
skjálfti um Haukana. En það
var ömurlegt að tapa leiknum.
Það er jafn leiðinlegt að tapa og
það er frábært að vinna."
Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari karla
„Flestir leikir vinnast á mark-
vörslu og góðum varnarleik og
úrslitin í þessum leik undir-
strika það, því vörnin og mark-
varslan var betri hjá Haukun-
um.“
Rúnar Sigtryggsson
leikmaður Hauka
„Þetta var ennþá ljúfara en ég
bjóst við. Ég ætlaði ekki að upp-
lifa annan úrslitaleik eins og í
fyrra. Ég bjóst ekki við því að
byrja útaf, en þegar ég fékk
tækifærið vissi ég, að það væri
að duga eða drepast.
í fyrri hálfleiknum vorum við
að gera þessa feila sem má ekki
gera gegn KA, að fara inn í
vörnina og láta brjóta á sér og
draga þannig taktinn úr spilinu.
Um leið og við losnuðum við
pressuna að vera undir, fór að
ganga betur og ég var aldrei
hræddur um að þeir myndu
jafna. Við skyldum vinna, ég
var ákveðinn í því og ég var
ánægður með það að við skyld-
um halda áfram að spila takt-
iskt fram til loka.“
Gerður B. Jóhanns-
dóttir fyrirliði Valslið-
ins
„Við höfðum trú á okkur, þó
flestir hafi reiknað með því að
þetta yrði létt fyrir Hauka.
Vörnin hjá okkur var frábær og
markvarslan. Við vorum
ákveðnar í að hafa gaman af
þessu og ég held að það hafi
tekist, þrátt fyrir að við séum
svekktar með úrslitin."