Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 7
iDagur-®tmttm Þriðjudagur 25. febrúar 1997 -19 MENNING O G LISTIR Kraftmikið kórastarf Rúmlega 200 manns munu flytja hið vinsœla verk Carls Orff, Carmina Burana, þann 26. mars nœstkomandl Sex kórar afEyjafjarð- arsvœðinu taka þátt í flutningum auk Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Það eru kirkjukórar Dal- víkur, Grenivíkur, Sval- barðsstrandar og tveir kirkjukórar úr Svarfaðardal auk kórs Tónlistarskólans á Akureyri sem um ræðir. í þess- um nýja samkór eru um 150 manns og í Sinfóníuhljómsveit- inni eru um 50 manns. Tveir einsöngvarar syngja með, þau Arndís Halla Ásgeirsdóttir sópran og Michael Jón Clarke, sem bregður sér bæði í hlut- verk baritóns og tenórs. Guð- mundur Óli Gunnarsson stjórn- andi Sinfómuhljómsveitar Norðurlands stjórnar flutn- ingnum. „Það hafa oft verið hug- myndir uppi um að sameina kórana en þetta hefur verið erfitt upp á æfingar að gera og annað slíkt. Ætli þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þetta virðist ætla að takast með góðu móti. Kórarnir hafa æft hver um sig síðan um áramót en síðasta sunnudag komum við síðan öll saman í fyrsta skipti," segir Michael Jón Clarke. Flókið og einfalt Þetta er í fyrsta skipti sem Carmina Burana verður flutt með hljómsveit á Akureyri en Passíukórinn hefur tvisvar sungið þetta mikla og skemmtilega verk með tveimur píanóum og slagverki, eins og reyndar íslenska óperan gerði síðast. Ástin fer fremst í flokki í verkinu, þarna er vori fagn- að, fólk dansar úti í garði og vaknar til lífsins. „Þetta er verk sem þarf mikla krafta og því er gaman að hafa þennan fjölda í kórnum en auð- vitað hefur það verið sungið með miklu færri rödd- um. Þessi sam- eining er liður í að sem flestir fái tækifæri til að syngja með hljómsveitinni og úr þessu verður heljarmikill kraftur og engum getur leiðst. Verkið er í senn flókið og mjög einfalt, það er mjög taktmikið Guðmundur Óli Gunnarsson sér um að stjórna flutningnum og hér er hann að hvetja kórmeðiimi og biðja um tilfinningaríkari söng. Myndir: JHF og í raun og veru syngja allar raddir samtímis og því hefur verkið í sér dægurlagaívaf sem er liður í því að það er svona vinsælt. Carmina Burana er ekki tónfræðilega rökrétt verk heldur frumstætt tónverk sem gerir það auðvelt, - en síðan er raddsviðið aftur á móti rosa- legt,“ segir Michael. Hljómleikahöll eða vélageymsla Aðeins er fyrirhugaður einn flutningur á verkinu eða dag- inn fyrir skírdag, þann 26. mars í íþróttaskjmmunni á Akureyri. Að sögn Michaels er skemman eina húsnæðið sem getur rúmað svona stóran kór og þá áheyrendur sem búist er við. „Þetta getur jafnvel verið síðasta skiptið sem við eigum kost á svona húsnæði þvi' það hefur verið rætt um að taka íþróttaskemmuna undir véla- geymslu. Glerárkirkja er alltof hljómmikil og ekld er nokkur leið að koma þessum fjölda fyrir í Akureyrarkirkju. Ef íþróttaskemman verður tekin eru okkur allar bjargir bann- aðar í framtíðinni." -mar Aðeins einir tónleikar eru fyrirhugaðir á Carmina Burana að svo komnu og verða þeir haldnir í fþróttaskemmunni á Akureyri. Helga Bryndís Magnúsdóttir, annar píanóleikarínn sem þátt tók í fyrstu samæfingunni á sunnudaginn, þar sem um 150 kórmeðlimir sungu Carmina Burana.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.