Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Qupperneq 1
Jtagur-Wixmnn Fóstbrœöurnir Árni og Ingó hafa bardúsað ýmislegt saman, gefið út blöð og gert þœtti báðir reknir áfram af hugsjóninni umfjölmiðlun óháða pólitískum línum, Helst hefur slest upp á vinskapinn þegar rœtt er um hljómsveitirnar Bítlana og Herman’s Hermits. Ingó er þekktur Bítlamaður og ver Bítlana með kjafti og klóm en Árni heldur upp á Herman’s Hermits. Vinátta Árna og Ingós birtist nú landsmönnum íþœttinum Á elleftu stundu í sjónvarpinu. Miðvikudagur 26. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 39. tölublaö MYnd: ANNAR.I LTONINU - HINN ERNAUT LÍFIÐ í LANDINU Fóstbrœðurnir Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson, þáttagerðarmenn hjá Ríkisútvarpinu, eru hippar af ’68 kynslóðinni sem bundust vináttu- og tryggðarböndum eftir kokkteilboð undir vegg á Hótel Holt haustnótt eina árið 1978. Það samband, gagnkvœm aðdáun og virðing, hefur staðið óslitið síðan og birtist nú landsmönnum í sjónvarpinu. * g var í útgáfuboði hjá bókaútgáfunni Iðunni og Ingó sagði: „Ert þú þessi Árni Þórarinsson?" og hóf síðan mikla lofrullu um mig sem stað- ið hefur óslitið síðan. Þá þurfti ég náttúrlega að fara að hrósa honum. Ég man sérstaklega eft- ir því að hann teiknaði dálítið mikið í Þjóðviljann á þessum árum. Það var besta framlagið hans. Svo töluðum við saman lengi vel.“ Þannig segir Árni Þórarinsson frá því þegar þeir Ingólfur Margeirsson kynntust haustnótt eina árið 1978 og bundu sín fyrstu vináttubönd. „Svo var kokkteilboðið búið og þá sá ég að þessi kurteisi og prúði maður, sem hafði verið að játa mér ást sína, aðdáun og virðingu, stóð upp við húsvegg á Hótel Holti og þjarmaði þar bæði með orðum og æði að ákveðnum málsmetandi for- ystumanni í íslenskri fjölmiðlun núna,“ segir Árni og neitar að tilgreina hvern um er rætt en Ingó útskýrir málið. „Okkur varð þarna sundur- orða um menningarmál. Síðan hefur Árni Þórarinsson alltaf borið virðingu fyrir mér,“ segir Ingó um rökræðurnar við hinn málsmetandi forystumann og Árni bætir við: „Það er ekkert gott að lenda í þessum manni þegar hann er ekki sammála manni." Þar á hann við Ingólf. Geggjaðir eða góðglaðir Það er margs að minnast og flestallt skemmtilegt. Ingólfur var um nokkurt skeið við nám og vinnu í norskri blaða- mennsku þar sem vaninn var að blaðamenn skemmtu sér saman. Þegar hann kom aftur til íslands kom það honum spánskt fyrir sjónir hve blaða- menn hér voru bundnir í flokka þannig að blaðamenn á Mogg- anum töluðu ekki við blaða- menn á Þjóðviljanum. „Við Arni vorum báðir af þeirri kynslóð og þeirrar hug- sjónar að búa til blað sem væri óháð pólitíkinni. Okkur datt í hug að búa til klúbb fyrir blaða- menn sem myndu hittast og fá sér í glas saman og væru yfir þetta hafnir. Okkur datt í hug að kalla klúbbinn KGB,“ útskýr- ir Ingólfur og þeir fara að riíja upp hvað KGB stóð fyrir: „Var það Klúbbur kófdrukkinna blaðamanna eða Klúbbur geggjaðra blaðamanna?" „Nei, sennilega „Klúbbur góðglaðra blaðamanna“,“ segja þeir og komast þar með að niðurstöðu. Löng ganga og skrykkjótt Haustið 1978 var Árni Þórar- insson umsjónarmaður helgar- blaðs Vísis og Ingólfur var ný- tekinn við á Þjóðviljanum sem umsjónarmaður helgarblaðs. Báðir höfðu þeir þó byrjað á Morgunblaðinu, Ingólfur sem fréttaritari þess í Svíþjóð 1969 en Árni á ritstjórninni í Reykja- vík 1971. Leiðir þeirra lágu þó ekki saman fyrr en í kokkteiln- um 1978 og það jafnvel þótt að- eins séu tvö ár milli þeirra og báðir séu þeir aldir upp í Vest- urbænum fyrstu æviárin, Árni á Hávallagötunni og Ingó á Brá- vallagötunni. Ingó er fæddur í nautsmerkinu 1948 og Árni í ljóninu árið 1950. „Árni var afskaplega hlé- drægur, skilst mér á móður hans, mjög inni í sér og fór mjög eigin götur. Ég var akkúrat andstaðan," segir Ing- ólfur. „En nú er þetta að breyt- ast, ég er að verða hógvær og auðmjúkur,“ segir hann. „Þetta er búið að vera löng og skrykkj- ótt ganga.“ Árni mótmælir þessu ekki en kveðst vera mjög „prinsippfastur maður, fastur á hefðir," enda frægur fyrir það að fara aldrei á fætur fyrr en um hádegi. Ber vírðfngu fyrir sögunni „Ég var alltaf manna árrisulast- ur fram undir 1971 þegar ég byrjaði á Morgunblaðinu. Þar hófst starfið klukkan eitt og stóð fram á kvöld og til hvers að vakna snemma ef maður þurfti ekki að mæta fyrr en klukkan eitt?“ spyr hann. „Mér fannst bara rétt að taka mið af sögu Moggans." Árni og Ingó hafa starfa mik- ið saman allt fram á þennan dag en með hléum þó, á Helg- arpóstinum, í útvarpi og sjón- varpi. Þeir eru mjög ólíkir menn en eiga ýmis sameiginleg áhugamál. Báðir hafa þeir áhuga á íjölmiðlun og kvik- myndum. „Þú hefur áhuga á Bítlunum og ég hef áhuga á Herman's Hermits,“ segir Árni. Þar eru þeir komnir að stærsta deilu- málinu, hvor hljómsveitin er betri, Bítlarnir eða Herman’s Hermits. Þessi ágreiningur hef- ur staðið lengi og segir Árni að aldrei hafi gróið um heilt milli þeirra. Deila um þetta efni hef- ur nefnilega alltaf skotið upp kollinum annað slagið. „Við stuðum hvorn annan eins og við getum,“ segja þeir. -GHS

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.