Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Síða 3
jDagur-ÍDmtrm
Miðvikudagur 26. febrúar 1997 -15
TÆKNILÍFIÐ f LANDINU
Mynddiskar
Með vorinu er búist við að ný tœkni, svokallaðir
stafrœnir mynddiskar, tröllríði markaðnum
enda um mun víðtœkari byltingu að rœða en
þegar t.d. geisladiskarnir tóku við af
hljómplötunum.
essir nýju diskar munu
leysa af hólmi VHS-tækn-
ina sem tækjaframleið-
endum hefur lengi þótt gölluð
um margt. Ekki verður þó ein-
asta um að ræða margfalt betri
myndgæði á heimabíóinu held-
ur byltir tæknin ekki síður
tölvuheiminum
auk þess sem
notandinn
er virkjað-
ur meira.
DVD-
tæknin
(Digital
Video
Disk) þýðir
ekki bara
betri mynd-
gæði heldur er
mögulegt að setja
á diskinn kvikmynd sem
áhorfandinn getur síðan horft á
mismunandi klippta. Eins er
hægt að ráða sjónarhorninu
eða velja sér upptökuvél sem
þykja góðar fréttiy fyrir unn-
endur íþróttaviðburða hvers
konar. Skemmtilegt að koma
sér t.d. fyrir í markinu þegar
vítið er tekið!
Hvaða endi viltu?
Þá verður hægt að velja endi á
kvikmyndir og mismunandi út-
gáfur fyrir vissa aldurshópa,
leyniorð er þá valið til að sjá
fullorðinsútgáfuna eða óklipptu
útgáfuna. Hægt er að velja um
32 tungumál og hljóðrásir
verða með sömu gæðum og þeir
geisladiskar sem nú eru á
markaðnum en þeir verða
áfram í fullu gildi þar sem DVD
afspilunartækin spíla hefð-
bundna hljómdiska, tölvugeisla-
diska, CD-ROM og CD-I. Eitt
tæki sem lítur út eins og
geislaspilararnir sem við
þekkjum í dag mun því
koma í staðinn fyrir,
græjurnar, vídeótækið
og tölvuna! Diskarnir
eru nákvæmlega
eins útlítandi og
tónlistargeisla-
diskar en í raun
eru tveir þunnir
diskar límdir sam-
an svo hægt sé að
koma fyrir efni á
báðar hliðar.
Kemur með
vorinu
Það er Toshiba sem fer
fremst í þessari tækni og hér á
landi er það Einar Farestveit &
Co hf. sem hefur umboð fyrir
„Mynddiskurinn tekur
á hvora hlið 4,7 gíga-
bœti sem er svipað
magn efnis og þrjár
heimilistölvur myndu
rúma eða 3200
diskettur. “
þeirra vörur. Þráinn Bjarnason
verslunarstjóri býst við að tæk-
in og diskarnir komi á markað-
inn með vorinu. „í raun er allt
tæknilega klárt en menn eru
eitthvað að deila um höfunda-
rétt og slíkt en hingað til hefur
þessari tækni seinkað vegna
þess að nauðsynlegt þótti að
búa til hindranir til þess að ekki
væri hægt að margfalda efni.“
Þráinn segir að menn séu sam-
mála um að tæknin sé stórkost-
leg og þó að Toshiba leiði þetta
verði allir að vera með og nú sé
ljóst að Sony muni taka virkan
þátt í markaðssetningunni frá
byrjun.
.Mynddiskur-
inn tekur á
hvora hlið
gíga-
bæti sem
er svipað
magn
efnis og
þrjár
heimilis-
tölvur myndu
rúma eða 3200
diskettur. Gæðin eiga
efir að aukast mikið því ef við
berum þessa tækni saman við
venjulegan VHS-spilara með
um 240 línur þá verða í þessum
nýja spilara um 720 línur. Það
er samt alveg hægt að nota
gamla sjónvarpsskjáinn en það
þarf milhtengingu á milli sem
þá skilar hinni margföldu upp-
lausn.
Ekki mjög dýrt
Þráinn segir að DVD-afspilarinn
muni kosta um 5-700 dollara
og að mismunurinn felist í þeim
gæðamun sem er á þeim þrem-
ur spilurum sem Toshiba kem-
ur með á markaðinn í byrjun.
Hann segir einnig ljóst að
mynddiskarnir verði á viðráð-
anlegu verði og segir að nú sé
talað um að þeir verði eitthvað
ódýrari en hefðbundnir hljóm-
diskar. En býst hann við að það
muni spretta mynddiskaleigur
um allt innan nokkurra ára?
„Já, óg býst við því að við eigum
eftir að fara út í diskaleiguna
að leigja okkur myndir eða
annað efni og að vídeóleigur
eins og við þekkjum þær í dag
Þá verður hœgt að
velja endi á kvikmynd-
ir og mismunandi út-
gáfur fyrir vissa ald-
urshópa, leyniorð er
þá valið til að sjá full-
orðinsútgáfuna eða
óklipptu útgáfuna.
fyrirtækin geta illa sætt sig við
að missa sinn hlut í markaðs-
setningu sem í dag gefur mögu-
leika á að markaðssetja fyrst
vestan hafs og síðan í Evrópu.
Þetta er kvikmyndafyrirtækjum
þyrnir í augum því hýja tæknin
greinir ekki á milli kerfa og
sama er hvort sýna á myndina í
NTSC eða PAL.
„Þetta er rosa tækni og mað-
ur bíður spenntur eftir að greitt
verði úr þessum lagaílækjum,
kannski má búast við
einhverjum töfum frá Banda-
ríkjamarkaði yfir í evrópskan."
-mar
hverfi. En vídeótækin munu
verða áfram því það er
kannski stærsti gallinn á
þessari nýju tækni að
það verður ekki hægt
að taka efni upp,
tækin eru aðeins til
afspilunar. Fram-
leiðendur spá því
að þess verði þó
ekki lengi að bíða
og tala um að
koma upptökutækj-
um á markað strax
á næsta ári.“
Grænu Ijósin
En höfundarrétturinn er
enn vandamál og kvikmynda-
Lán í fimm ár
Leiðrétting
í viðtali við Draumeyju Aradóttur
kennara í gær var óljóst hvort hún
gæti fengið námslán í samtals íjög-
ur ár eða fimm. Hið rétta er að
Draumey á kost á námsláni í fimm
ár til viðbótar ef henni tekst að nýta
rétt sinn til fulls. Það fer meðal
annars eftir því í hvaða nám hún
fer.