Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Blaðsíða 7
ílagur-tEúuirat ■ Miðvikudagur 23. janúar 1997 -19 I MENNING O G LISTIR —— —I Braust út eldgos Barbara Westman er að sýna Íslendingum bláleitar myndir á Kjarvalsstöðum sem urðu til ejtír að eldgos braust út i höföi hennar í september sL Fyrri myndir hennar hafafarið víða því um árabil teiknaði hún forsíður fyrir The New Yorker. september sl kom Barbara hingað ásamt manni sín- um, Arthur C. Danto, sem ætlaði að halda hér fyrirlestur um Andy Warhol. Þeg- ar hún hafði „lent á tungl- inu“ og var á leiðinni frá Keflavíkur- flugvelli rigningar- dembu snemma morguns var „eins og eld- fjall gysi í höfðinu á mér. Ég sá hér eitt- hvað sem ég hafði leitað í mörg, mörg ár.“ t>að var sjón- deildarhringurinn sem heillaði svo Barböru, litirnir, gufan og rigningin í móðu morgundags- ins. „Það opnaði aftur huga minn að landslaginu sem ég hafði ekki málað í mörg ár.“ Teiknaði skilti Barbara hefur gert ýmislegt til að lifa af teikn- ingum sfnum, kennt í skólum og á söfnum, mál- að skilti á flutn- ingabfla og í 10 ár vann hún 3 daga vikunnar við Peabody safnið við Harvard háskóla þar sem hún teiknaði nákvæm landakort og myndir af fornleifum fyrir bækur 10 pró- fessora. Þannig hafði hún 4 daga tii að vinna að eigin verkum og nýtti þá til að teikna Bostonborg. Útgefandi nokkur fékk hana til að teikna myndir í bækur um borgina og eiginmaður hennar lýsir þessu tímabili svo: „Barbara naut ámóta hylli í Boston og besti kastarinn í Red Sox-liðinu í hafnarbolta... Ég uppgötvaði að Bar- bara hafði skapað myndræna goðsögn um Boston, ekki ósvipaða hinni sið- ferðilegu goðsögn jólanna sem Charles Dickens hafði búið lesendum sínum.“ Boston-teikningar Barböru hafa síðar orðið eins konar fyrirmynd stór- borgarinnar í bandarískum teiknimyndum sem flestir kannast við, þessi myrka borg með þröng- um götum og háum húsum. „Forsíðurnar breyttust. f fyrstu teiknaði ég mjög nákvæmiega, með mörgum strikum og mlkið af smáatriðum. Seinna varð þetta frjálsara, færri Knur og fólkið varð stærra." Barbara hefur teiknað myndir (fjölda bóka. Hún skrifaði Kka og myndskreytti bamabækur um hundana sina, Chartotte og Emilio. Tvær stúlkur borða pítsu Árið 1979 sendi Bar- bara vikuritinu The New Yorker 100 litlar teikningar sem notaðar voru undir ýmsum dálkum og upp úr því fór hún að vinna fyrir blaðið. The New Yorker hefur heila hjörð af listamönnum til að teikna í blaðið og f um áratug var Barbara ein af þeim. Bar- bara segist hafa verið hálflirædd við borgina og mannlífið þar fyrst eft- ir að þau Arthur fluttu þang- að. „í Bost- on, Hollandi og Frakk- landi er einhver heildar- svipur fólkij andliti, tjáningu, fatatísku en ekki New York. Þar eru allar teg- undir fólks." Því eru fyrstu forsíður Barböru afskaplega nákvæm- ar teikningar með hús og blokJdr í for- grunni. En smám urðu myndirnar frjáls- ari. „Fólk varð mér mikilvægara en á í í arkítektúrinn. Kannski hætti ég að vera svona hrædd. New York þvingaði mig til að einfalda hlutina." Barbara fékk mikinn áhuga á hvers- dagslegum athöfnum fólks. „Ég var vön að fela mig bak við súlur, horfa á fólk borða á veitingastöðum og rissa upp myndir í glósubókina rnína, áður en mér var hent út.“ Hamlandi form Um 1990 tók nýr ritstjóri við The New Yorker og hætti Barbara þá þar sem listamennirnir höfðu ekki lengur fijálsar hendur við forsíðuna. „Ég vissi líka í hjarta mínu að þetta var orðið of tak- markað form.“ Síðan þá hefur Barbara breytt um stfl. Er farin að mála með svörtum penslastrikum, en ekki bleki, og er hætt að teikna ailt sem hún sér. Hún segist vera búin að koma sér upp sínu orða- safni og þarf því ekki að eyða orku sinni í að tína upp öll smáatriði sem á vegi hennar verða likt og áður þegar hún ferðaðist um með strætó og neðanjarð- arlestum til að teikna allt sem fyrir augu bar. Og hugljómunin frá Reykjanesskag- anum er ekki farin að fölna því Barbara er enn að mála upp úr henni. „Og ég skemmti mér konunglega." lóa í höfðínu

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.