Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Page 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Page 10
22 - Miðvikudagur 26. febrúar 1997 RADDIR FÓLICSINS IDagur-tJKmóm Bréfleiðis... Heimilisfanglö er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 88,602 Akureyri í tilefni af skrífum um Hestamannafélagið Fák Þórður H. Ólafsson gjaldkeri Fáks skrtfar * skammdeginu gerir fólk ým- islegt sér til dundurs. Sumir fara á skíði, aðrir í göngu- ferðir, margir á hestbak en ein- staka maður sest niður og níðir félagið sitt niður og líður væntanlega betin- á eftir. Einn úr síðastnefnda hópn- um sá sig knúinn til að setja á blað handfylii af skítkasti í blaðagrein sem, undir nafn- leynd, birtist í hinu annars ágæta dagblaði Degi- Tímanum á miðvikudaginn og skotmarkið var Hestamannafélagið Fákur og stjórnendur þess. Ef greinin hefði einungis ver- ið í léttum dúr og tekið mál- efnalega á hlutunum hefði mér ekki dottið í hug að stinga niður penna. Fáksfélagar sem og aðr- ir geta haft allar þær skoðanir sem þeir vilja án þess að það pirri neinn, bara að rætt og skrifað só um hlutina málefna- lega og með rökum. öll um- ræða og skrif um málefni fé- lagsins á tilfínninganótum leys- ir engan vanda og síst af öllu fínnst mér að slíkar greinar eigi erindi í útbreidd dagblöð, en sum þeirra vantar eflaust efni til uppfyllingar. Undarleg fyrirsögn Grein „Fáksfélagans“ með nafnleyndina er meira og minna á tilfínninganótunum og full af fínni rómantík um liðna tíma og hugaróra um aftur- hvarf til þeirra, en því miður þurfti hann líka að krydda hana með smá skítkasti, kannski til að fá útrás fyrir einhverja óút- skýrða óánægju með eitthvað sem almennilega kemur ekki fram í greininni hvað er. Fyrst er það fyrirsögnin: Er Hestamannafélagið Fákur von- laust fyrirbæri ? Bara fýrirsögnin, sem ég geng út ílrá að sé „Fáksfélag- ans,“ hún ein og sér hefur orðið til þess, hvað svo sem hver mun nú eða seinna skrifa málefna- lega eða ómálefnalega um fé- lagið nú í þessari grein eða öðr- um greinum, að eftir stendur sú skoðun hjá einhverjum hesta- mönnum og öðrum að eitthvað stórkostlegt sé að hjá Hesta- mannafélaginu Fáki. Órökstuddar dylgjur En hvað ætli geti verið að? Það er reyndar tilfeliið að nú síðast- liðin tvö ár hefur félagið farið í gegnum ákveðna þætti í sínum rekstri og verið að horfa til framtíðar og núverandi stjórn hefur verið að framkvæma ákveðnar breytingar á rekstri og framtíðarskipan félagsins, sem ailt of langt mál er að fara út í hér. Sumt af því hefur birtst í síöustu tölublöðum fréttabrófs Fáks, sem hefði verið rétti vett- vangur fyrir þau skoðanaskipti, sem hér fara fram. Fróttabréfíð er opið öllum Fáksfólögum með sínar skoðanir og skrif, en til þess er ætlast að greinar séu birtar undir nafni, alla vega þegar verið er með grófar að- dróttanir að einstaklingum eins og gert í grein „Fáksfélagans." An þess að ég ætli að fara elta ólar við eða reyna að svara eða sannfæra þennan „Fáksfó- iaga“ um alla þá hluti sem ég skilgreini sem skítkast sá ég þörf þjá mór til að setja á blað örfáar athuga- semdir við þennan grein- arstúf. Fyrir utan órökstuddar dylgjin- um stjórnarmenn og fram- kvæmdastjóra félagsins bæði núverandi og fyrrverandi eru fjölmargar rangfærslur í greininni. Eitt lítið dæmi er meðhöndlun „Fáksfélagans“ á ákvörðun um sölu á reið- skólahestum þess, en þar fer hann reyndar heilan hring því framarlega í greininni segir hann: „Alla reiðskólahesta er búið að selja eða fella svo og öll reið- ver.“ Þegar kemur svo aftast í greinina þá segir: „Nú er allt búið að vera, hestarnir dauðir og hnakkarnir týndir.“ Bara þessi hringferð með hlutina segir manni reyndar allt sem segja þarf um þessa grein „Fáksfélagans." Staðreyndin er hins vegar sú að Fákur hefur um árabil átt hesta sem notaðir hafa verið fyrst og fremst á reiðnámskeiðum á vegum íþrótta- og Tómstundaráðs. Þannig var komið að útlagður kostnaður Fáks vegna þessara hesta var hærri en það gjald sem þeir aðilar, sem nýttu hest- ana, voru tilbúnir að greiða fyr- ir afnot af þeim, sem þýðir á mannamáli að Fákur safnaði upp tapi vegna þeirra. Eina lausnin sem við töldum skynsamlega og án áhættu fyrir félagið var að selja alla hestana svo og öll reið- tygi. Hesta- mannfélagið Fákur á ekki og hefur held- ur ekki efni á að líta á sig sem félags- málastofnun, þar sem fólk innan og utan fólagsins er styrkt með óbeinum fjár- framlögum frá fólaginu hvort sem það eru hestaeigendur í fó- lagshúsunum eða börn og ung- lingar sem áhuga hafa á því að læra á hest. Ef styrkja á starf- semi eins og reiðnámskeið fyrir börnin í borginni verða aðrir en Fákur að standa straum af þeim kostnaði. Allir reiðskóla- hestarnir, sem voru rétt um 40 talsins, voru seldir um og eftir síðustu áramót svo og nánast öll reiðtygi. Ekki er mér kunn- ugt um að neinn kaupandi hafí fellt einn einasta hest, þannig að í dag eiga þeir allir með tölu að vera einhvers staðar sprell- lifandi úti í haga eða f notkun. Bara til fróðleiks fyrir félagann, þá hafa þau reiðtygi sem voru í eigu Fáks undanfarin ár verið geymd í mjög góðri og læstri geymslu í Reiðhöllinni. Svartnættishjal Upphaf greinarinnar er svona : „Það lítur út fyrir að þetta gamla góða félag sé að syngja sitt síðasta vers, að því komið að grotna niður í sandinn eða moldina,“ og niðurlag greinar- innar er síðan: „ Það virðist svo að allt sé að renna út í sandinn hjá þessum mönnum og stefni að því að Fákur verði ekki eldri en sjötíu og fimm ára.“ Þetta er svartsýnn félagi í Fáki sem þetta skrifar og hefur ekki mikla trú á því sem verið er að gera og getum við í stjórninni hugsanlega sjálfum okkur um kennt. Eg held þó reyndar að þeir séu fjölmargir sem hugsa jákvætt og með sanngirni til þess sem félagið hefur verið að gera til margra ára svo og þess sem verið er að gera nú, og þeir séu í raun ör- fáir félagar í Fáki sem sjá ekk- ert nema svartnættið framund- an, hinir taka með jákvæðum hætti þátt í því að byggja Hesta- mannfélagið Fák áfram upp og það stendur síður en svo á brauðfótum og framundan er góðæri hjá þessu stærsta hesta- mannfélagi landsins, sem hefur á félagssvæði sínu stærstu hest- húsabyggð í heimi. Stöndum nú saman Fáksfé- lagar og hættum skftkasti hver í annan, hugsum um það eitt að standa vörð um félagið okkar það gera ekki margir aðrir fyrir okkur. Ég er þess reyndar fullviss að það heyrir til undantekninga í félaginu að fólk nærist á því að rífa félagið niður en ef til vill vorður skoðunum manna eins og þessa félaga okkar ekki breytt, sem í skjóli nafnleyndar hefur komið óorði á félagið, sem seint eða aldrei verður leiðrótt þjá öllum. Til þess að „Fáksfólaginn,“ sem ekki þorir að láta nafns sín getið, öðlist nú hugarró er stjórnin og framkvæmdastjóri Fáks tilbúin til að setjast niður með þessum huldumanni og gera tilraun til að ræða málefni félagsins hvenær sem er, en þá verður hann að svipta af sér hulunni og segja tíl nafns. Einu vildi ég síðan koma á framfæri við ritstjórn Dags- Tímans: ég hélt það heyrði til liðinni tíð að greinarhöfundar fengju birtar slíkar greinar sem þessa nema þá undir fullu nafni. Með Fákskveðju. Eina lausnln sem við töldum skynsamlega og án áhættu fyrir fé- laglð var að selja alla hestana svo og öll reiðtygi. Hestamann- félagið Fákur á ekki og hefur heldur ekki efni á að líta á sig sem félagsmála- stofnun,... Tóznatar á tvöföldu veröi Víkverji Morgunblaðsins gerði það að umkvörtimar- efni á dögunum hve verð á íslensku grænmeti væri svimandi hátt. Frekar vildi hann japla á ódýrum út- lenskum tómötum en rán- dýrum íslenskum. Á þessu eru hins vegar tvær hliðar. Alltaf gaman að fá ódýrar matvörur en þær verða þá að vera ætar. Sú er þetta ritar býr á miklu tómata- heimili. Ailtaf eru til tómat- ar í skál og varla líður sá dagur að nokkrum tómöt- um sé ekki sporðrennt af heimilisfólki - nema á vet- urna þegar ekki fást inn- lendir tómatar. Erlendu tómatarnir skemmast nefnilega mörgum sinnum hraðar en þeir innlendu. Jafnvel þó ekki séu keyptir nema 2-3 í einu bregst ekki að alltaf skulu þeir eyðileggjast. Einn almenni- legur tómatur hlýtur að vera betri en tveir ónýtir, þó þeir ónýtu kosti samtals það sama og þessi eini! Gaman á Eskifirði Fréttaritarar eru eins mis- jafnir og þeir eru margir. Fáir eru þó jafn litríkir og hún Regína, fréttaritari DV á Eskifirði. Nýlega skrifaði hún frétt um það þegar hugulsamur sjómaður færði íbúum og starfsfólki á Dvalarheimilinu Huldu- hlíð glæný hrogn og lifur. í fréttinni kemur fram að Regína er einn af vist- mönnunum og er hún svo þakklát fyrir þessa gjöf að í lokin ályktar hún að mann- lega sjónarmiðið ríki meira á litlum stöðum út á lands- byggðinni en í fjölmenninu á Reykjavíkursvæðinu. Sjálfsagt eitthvað til í því l\já Regínu, en hvað varð um hlutlausu frétta- mennskuna? Úr „sjúrnölum“ Þegar sjúklingar eru lagðir inn á sjúkrahús þarf að taka skýrslu sem í daglegu tali eru kallaðar „sjúrnal- ar“. Orðalagið í þessum skýrslum er oft skondið eins og eftirfarandi dæmi sanna: • Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athuga- vert. • Sjúklingur hefur form- legar hægðir. • Fékk vægan verk undir morgunsárið. • Skoðun við komu leiddi í ljós unglingspilt. • Það sem fyllti mælinn var þvagleki. • Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur. • Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sum- arbústað, en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri. Umsjón; Auður Ingólfsdóttir.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.