Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Blaðsíða 1
Fréttir og þjóðmál Sjóslys Akureyri Áíall við björgim Erfiðar aðstæður við björgun á þýsku flutningaskipi. Nítján manna áhöfn bjargað. Skipverja tók út af varðskip- inu Ægi í gærkvöld og ann- ar slasaðist þegar brot kom á skipið á níunda tíman- um. Varðskipsmenn voru að reyna að komu línu til þýska flutningaskipsins Vikartinds sem var í nauðum statt, rétt undan strönd Þjórsárósa á Suð- urlandi. Skömmu síðar tókst Landhelgisgæslunni að bjarga allri 19 manna áhöfn flutninga- skipsins við mjög erfiðar að- stæður með því að hífa þá um borð með þyrlu og fljúga með þá í land, þar sem björgunar- sveitir tóku við þeim. Slæmt veður var og rak þá Vikartind upp í sandinn. Síðustu fregnir hermdu í gær að skipið sæti fast en hefði ekki lagst á hliðina. Vikartindur er ársgamalt skip, 8000 tonn að stærð. Til- kynning barst fyrst til Land- helgisgæslunnar um hádegi í gær en þá var skipið statt um sex sjómílur frá landi og rak. Ankeri skipsins náðu festum um 1,5 sjómflur frá landi og skömmu síðar náðu skipverjar að koma aðalvélinni í gang. Þá brást ankerisbúnaður og þurfti áhöfn skipsins að rífa afturspil- ið til að fá varahluti. Unnið var að viðgerðum án árangurs fram á kvöldið þangað til skipstjórinn þáði aðstoð Gæslunnar. BÞ Á fundi sem menntskælingar á Akureyri héldu í gær um umhverfismál og stóriðjur sagði Hjörleifur Guttormsson m.a. að erlendir fjárfestar virtust í sömu stöðu og landsmenn forðum, að geta helgað sér land hér þegarþeim hentaði. Dável var mætt á fundinn eða 60-70 manns og sýndu MA-nemar málflutningnum mikla athygli. Á gólfinu hvíldi fyrrum Kínaleiðtoginn en ósagt skai látið hvort það endurspeglar stjórnmálaástandið í MA. Mymt. gs Biskupskjör Vígslubiskup fer fram Kandídötum til biskups fjölgar hratt. Ein kona og tveir karlar komnir fram. Sr. Sigurður Sigurðar- son vonast eftir að tekist verði á um málefni. Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, ætlar að gefa kost á sér til biskupskjörs. Þetta kom fram í samtali við Dag-Tímann í gær. „Ég er ákveðinn í að vera með og sú ákvörðun er tekin í sam- ráði við nokkra presta,“ sagði sr. Sigurður sem segist hafa byrjað undirbúning fyrir nokkru og vonar að kosninga- baráttan snúist ekki aðeins um persónur heldur málefni. „Óneitanlega er einhver blæ- brigðamunur á okkur þótt guð- fræðilega greini okkur ekki á.“ Kandídötum ijölgar nú hratt, því í fyrradag lýsti sr. Gunnar Kristjánsson, sókn- arprestur á Reyni- völlum í Kjós, því yfír að hann yrði með í biskupskjöri. Auk þeirra tveggja hefur sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sóknarprestur í Þykkvabæ, skýrt frá að hún verði í kjöri. Séra Karl Sigur- björnsson, sóknarprestur í Ilall- grímskirkju, hefur sterklega verið nefndur til sögunnar og nýtur hann mestra vinsælda hjá þjóðinni ef marka má nýlega skoðanakönnun DV. En það er ekki þjóðin heldur guðfræðipró- fessorar í föstu starfi, allir prestar landsins og leikmenn á Kirkjuþingi sem kjósa biskup, auk kjörmanna í prófastsdæm- unum. Gjaldgengir til kjörsins eru allir prestar á landinu. Aður Eir sagði í gær að hún væri farin að kynna sínar hug- myndir sem fælust einkum í að reynt yrði að finna prestum betra skipulag í störfum þeirra. „Að við prófum að vinna saman á svæðum og leitum hugmynda um aukið samstarf og meiri að- gæslu í prestastarfinu. Þar þarf bæði meiri sálgæslu og betri skipulagningu. Þetta þyrfti að útfæra þannig að hugmyndirn- ar kæmu frá grasrótinni." -Einhverju sinni var því spáð að þú gætir aldrei náð kosningu þar sem þú værir kona? „Já, það á eftir að koma í ljós. Ég færi ekki fram ef ég teldi ekki að ég ætti mögu- leika.“ Sr. Karl Sigurbjörnsson sagð- ist enn bíða átekta með að taka ákvörðun um hvort hann færi fram. „Biskupskjör hefur ekki verið tímasett og ég mun ekkert láta uppi fyrr en það liggur fyr- ir.“ BÞ Flugleiöír Aldrei íleiri farþegar Hagnaður af starfsemi Flugleiða í fyrra var 632 milljónir króna, en var 656 milljónir árið áður. Hagn- aður af reglulegri starfsemi, þ.e. rekstri og íjámagnsliðum, var hins vegar rúmar 400 milljónir króna, sem er veru- lega betri afkoma en í fyrra, eða 92 milljónum meiri. Velta fyrirtækisins jókst um 20% frá árinu 1995. Flugleiðir fluttu fleiri farþega en nokkru sinni fyrr í sögu sinni, eða 1.275.954. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að góður vöxt- ur á öllum sviðum, bætt nýting og aðhald hafi skilað sér í bættri afkomu, þótt ýmis ytri skilyrði hafi verið óhagstæð. Verðhækkanir á eldsneyti hafi t.d. hækkað kostnað fyrirtækis- ins um 300 milljónir í fyrra. Eldisneytisverð fer nú lækkandi á ný. Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup: „Ég er ákveðinn í að vera með og sú ákvörðun er tekin í samráði við nokkra presta. “ Lífið í landinu Lítill Víkingur kr. 250.- Skipagata 14, 5. hæð, sími 462 7100 - opið öll hádegi og öll kvöld

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.