Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 11
|Ditgur-®tmmn
Föstudagur 21. mars 1997 - 23
FINA FRÆGA FOLICIÐ
Hr. Wales var ekki síður
stoltur af tilnefningunni.
Heitir Colin Jackson og er
íþróttamaður.
Fyrir skömmu voru valdir 50 eftirsóttustu
piparsveinar Bretlands. Aðstandendur kjör-
kassanna slógu upp veislu til að fagna úr-
slitunum með hinum útvöldu piparsveinum.
Til að afla trippunum nægra viðfanga kvöld-
ið góða var dágóðum hópi fagurra stúlkna
boðið til veislunnar. Og veislan sú stóð svo
sannarlega undir nafni eftir að menn, ryk-
aðir með afbrigðum, reyndu eftir fremsta
megni að raða saman brotunum
daginn eftir.
Sumir skemmtu sér betur
en aðrir. Og allmargir
fengu að smakka á því
sem allajafna er ekki á
boðstólum. Þannig mun
Wesley Cotton hafa leyft
kvennafansinum að skipt-
ast á um að sleikja bústna
brjóstvöðva sína.
Neil Hodgson er hr. Norð-austur. Hann er
líka íþróttamaður (þetta er nú ekki einleik-
ið. Er ekki til vel skapaður raungreina-
kennari eða tölvufræðingur?).
Kisulegir breskir
piparsveinar
Úótcvéífið
Teitur Þorkelsson
skrifar
Horfnar ástir
s
g hélt að ég elskaði
hana/hann þá, en núna sé
ég að ég hafði rangt fyrir
mér, þetta var ekki ást. Þessi
orð heyrast gjarnan af vörum
þeirra sem eru nýkomnir úr
ástarsambandi sem einhverra
hluta vegna leið undir lok. Við
mennirnir eigtrni erfitt með að
sætta okkur við að þessi heita
tilfinning eilífrar skuldbinding-
ar og þess að ekkert skipti máli
í heiminum annað en „við tvö“,
geti horfið út í bláinn á áhka
dularfullan hátt og hún varð til.
Það skyldi þó ekki vera að fólk
neiti sér um horfnar ástir til
þess að halda h'finu í hugmynd-
inni um eilífa ást og geta hugs-
að: Já, nú er þetta sönn ást,
næst þegar tilfinningin bankar
upp á. Sú fyrri getur ekki hafa
verið ekta vegna þess að hún
dó.
En fólk breytist í sífellu og
því er besta skilgreining ástar-
innar kannski sú að segja hana
vera það sem maður heldur að
hún sé á hverju augnabliki lífs
síns. Á þann hátt getur maður
horft til baka og játað að maður
hafi elskað. Og maður getur
saknað þess eins og maður
saknar bernskunnar. Hún er
björt minning sem er mikils
virði án þess að maður vilji
endilega hverfa þangað aftur.
Og fyrir þá sem þurfa huggun
má hugga sig við það að nýjar
bjartar minningar eru alltaf að
verða til, í dag og morgun.
Herra Miðlöndin, Lee Garrick, er
meðeigandi að klúbbnum Miss
Moneypenny’s og er hann náttúru-
lega yfir sig kátur vegna tilnefning-
arinnar því kvengestum staðarins
hefur fjölgað umtalsvert.