Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 7
iBagur-'íEímimT Föstudagur 21. mars 1997 - 19 Pálmasunnudagur í vændum... tlar þú á sunnudag að keyra upp í Lágafells- kirkju, eða aðra ónefnda kirkju utan borgar- marka, horfa þar á víðigrein (ellegar pálmagrein) vígða, þramma svo fylktu liði niður í miðbæ Reykjavíkur og slengja 66 gráður norður gallanum eða silfurlitu dúnúlpunni á götuna til að minnast innreiðar Krists í Jerúsalem á sínum tíma? Nei, lfldega ekki en einhvern veginn þannig tóku pflagrímar í Jerúsalem á 4. og 5. öld að minnast þess þegar Jesús reið inn í Jerúsalem skömmu fyrir páskahátíðina. Pflagrímarnir minntust síðustu daga Krists í þessu jarðlífi með því að líkja eftir þeim. Guðspjöllin segja að menn hafi fagnað Jesús á sín- um tíma með pálmaviðargrein- um, höggvið lim af trjám eða skorið strá af ökrum til að dreifa á veginn og breytt jafnvel yfirhafnir sínar á hann. (Þeim sem vilja halda þessum sið við er bent á að þegar mjög langt var á milli kirkna létu menn nægja að ganga í kringum kirkjuna og kirkjugarðinn.) Síðar breiddist siðurinn út á Vesturlöndum og hér eru heim- ildir fyrir því að einhvers konar trjágreinar hafi verið vígðar í kirkjum þennan dag. Ef enginn er áhuginn fyrir þessu, en heimilsfólkið kristið samt, má benda á að Magnús Tómasson opnar sýningu í and- dyri Hallgrímskirkju á pálma- sunnudag á verkum með trúar- legu ívafi. Þar verður líka hald- in Hallgrímsstefna um sálma- skáldið og verk hans á morgun kl.10-16. Þeir sem hyggja á ferðalög um páskana ættu svo að fylgjast vel með veðrinum á sunnudag- inn því: Sjaldan er sama veður á pálma og páska. (Heimild: Hrœranlegar hátíð- ir eftir Árna Björnsson) Kennarar óskast -síðustu forvöð Síðasta sýning á Kennurum óskast í þjóðleikhúsinu eftir Ólaf Hauk Sím- onarson verður í kvöld. Leikritið gerist í heimavistarskóla úti á landi. Kennarahjón úr höfuðborginni koma þangað til að hefja nýtt líf. Þau gera það - en það reyndist kannski ekki eins og þau höfðu vonast til... Icarus - Ekki strætóarnir. Nei, þessi lcarus er barokk-hópur frá Hol- landi og ætlar að spila tónlist frá endurreisnartímanum í Listakiúbbi Leikhúskjallarans kl. 21 á mánudagskvöldið. Hópurinn ætlar m.a. að spreyta sig á höfundum eins og Cassari, Marini, Buonamente, Frescobaldi. Kostar 400 kr. fyrir meðlimi en 600 kr. fyrir útlimi.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.