Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 3
íOttgur-íIImrám Laugardagur 22. mars 1997 - 15
Katrín Bjarnadóttir og Guðrón Dís
Emilsdóttir.
Myhdir: GS
nám við skólann frá upphafl og
er því að fá styrkinn í þriðja
sinn, 40.000 kr. „Ég fékk
37.000 í fyrra og hækkunin er
svo sem ekki mikil milli ára. Ég
reyni að borga skólann að
mestu leyti sjálf og þessir pen-
ingar eiga að fara í mötuneytið.
Ég fæ það sama og þeir sem
búa t.d. í Eyjafirðinum.“
Oddný er ágætlega sátt við
sína upphæð en finnst þó mun-
urinn dálítið mikill hjá þeim
sem leigja á eigin vegum og
hinna sem búa á vist. „Eg er að
fá 40.000 á ári og borga
200.000 fyrir mat og húsnæði.
Ég ætla að leigja á næsta ári því
ég hef heyrt að krakkarnir sem
það gera spari sér pening. Þau
eyða kannski ekki jafnmiklum
peningum í fæði. Hér erum við
að borga fyrir tvær heitar mál-
við að fá styrk á annað borð. Ég
hugsaði ekkert út í það þegar
ég fór hingað að ég fengi neinn
styrk. Það var bara bónus,"
sagði Oddný Eva og hélt áfram
að rýna í skruddurnar.
Dýrara að leigja
sjálfstætt
Gústav Magnús Ásbjörnsson er
ekki nágranni Oddnýjar Evu, en
hann kemur frá svipuðum slóð-
um úr Borgarfirði. Hann er á
þriðja ári og hafði nauman tíma
til að tala við blaðamenn Dags-
Tímans enda nýbúinn að fá sér
pizzusneið og ekkert vit að láta
hana kólna. „Ég fæ 40.000 og
er ánægður með mitt. Þetta
dugar akkúrat fyrir húsaleig-
unni og það er ágætt."
Gústav Magnús segist sjálfur
borga sitt nám að langmestu
leyti. Dráttur greiðslunnar olli
honum þó engum vandræðum.
„Ég veit hins vegar nokkur
dæmi þess að aðrir nemendur
Allir ánægðir með dreifbflisstyrkinn
Það ríkti gleði um síðustu
helgi þegar framhalds-
skólanemar fengu margir
hverjir úthlutað dreifbýlisstyrk.
Dreifbýhsstyrk hlýtur sá sem
getur ekki stundað nám á fram-
haldsskólastigi í sinni heima-
byggð og er upphæðin frá
40.000 og
j -Hir oQ D'"113
.nöspJó"sd°
Asrun osw upp
í rúmlega 63.000
eftir aðstæðum. Á Alþingi var
tekist á um þennan málaflokk í
vikunni og kom fram gagnrýni
á ýmis atriði við úthlutun. En
styrkþegarnir á heimavist MA
sem Dagur-Tíminn heimsótti í
vikunni, voru ánægðir með sitt.
Ánægð miðað við hina
Ásrún Ösp Jónsdóttir kemur frá
Árskógsströnd og býr á her-
bergi í heimavist MA með
Hilmu Gunnarsdóttur úr Aðal-
dal. Þær eru báðar í fyrsta bekk
í skólanum og eru því að fá
dreifbýlisstyrkinn í fyrsta skipi.
Upphæðin nemur um 40.000 og
eru báðar sáttar við sitt. „Mað-
ur fær ekki fullan styrk þegar
maður er á heimavist, þetta er
borgað niður, en
ég er bara
ánægð,“ segir
Ásrún Ösp.
„Miðað við
hvað hinir
krakkarnir
eru að fá,“
bætir hún
við.
Það er
fljótfarið
frá Ár-
skógs-
strönd til
Akureyr-
ar og Ás-
rún Ösp
fær eng-
an
Gunr'aísd°tt'r ferða-
styrk. Öllu lengra er úr
Aðaldalnum en dæmið lítur eins
út frá hinu opinbera. Þess má
geta að fyrir fullt fæði eru
greiddar 160.000 á heimavist
MA en húsnæðiskostnaðurinn
er metinn á 40.000.
Naumur ferðastyrkur
Katrín Bjarnadóttir og Guðrún
Dís Emilsdóttir koma langan
veg í MA, eða alla leið frá
Vopnafirði. Þær eru báðar í
fyrsta bekk og hlutu 49.000 kr.
frá hinu opinbera. Þær fá því
40.000 til að lifa sem þær eru
sáttar við og 9.000 í ferðastyrk
sem verður að teljast harla lítið
Oddný Eva Böðvarsdóttir.
miðað við að flugfar frá Vopna-
firði til Akureyrar kostar á m-
unda þúsundið. Álíka langt er
fyrir Katrínu og Guðrúnu Dís að
sækja skóla á Egilsstöðum.
„Þetta er náttúrlega dálítið lítið
sem ætlað er í ferðastyrk og
hlutfallslega mætti þessi hluti
styrksins vera metinn hærra.
En 49.000 kr. eru háinarksupp-
hæð, ef maður er í nið-
urgreiddu húsnæði á heimavist
og þetta er allt í lagi,“ segja
vopnfirsku námsmeyjarnar.
Katrfn og Guðrún Dís segjast
ekki hafa orðið fyrir neinum
persónulegum erfiðleikum
vegna þess að dregist hefur að
borga styrkinn út. Fyrst var
rætt um febrúar. „Ekki fyrir
okkur en þetta hefur kannski
valdið foreldrum okkar smá
vandamálum."
En þegar stóra stundin
rennur upp og ávísunin kemur í
hendur námsmannanna, hvað
gerist þá? „Það er gleði hjá öll-
um og margir sem nota tæki-
færið og djamma ærlega."
Styrkurinn fer í
mötuneytið
Oddný Eva Böðvarsdóttir kem-
ur frá Hvanneyri og er á þriðja
ári í MA. Hún hefur stundað
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund mánudaginn 24. mars
n.k. á Hótel Sögu, Súlnasal kl. 20:30.
Fundarefni:
1. Nýgerður kjarasamningur kynntur.
2. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn verður með eftirfarandi hætti:
Á félagsfundinum 24. mars kl. 21:00-23:00
Þriðjudag 25. mars kl. 08:00-22:00 í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 á 1. hæð
Miðvikudag 26. mars kl. 08:00-18:00 í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 á 1. hæð
Félagsmenn eru hvattirtil að mæta áfundinn.
tfðir á dag sem er kannski full-
mikið.“
Ástæða þess að Oddný Eva
fór alla leið til Akureyrar var þó
upprunalega heimavistin og
stóð valið milh Laugavatns og
Akureyrar. „Það kom ekki til
greina að fara til Akraness, af
því að það er Akranes," segir
hún með áherslu og hlær.
Rökin fyrir því að Oddný Eva
fær yfirleitt styrk eru þau að
ekki er dagleg ferð til Akraness
frá Hvanneyri. „Ég er mjög sátt
voru orðnir staurblankir."
Gústav telur ólíkt Oddnýju
Evu að munurinn hjá þeim sem
búa á heimavist og hinna ætti
að vera meiri, þeim í hag sem
leigja sjálfstætt. „Það er miklu
dýrara dæmi,“ segir Gústav og
horfir girndaraugum á pizzuna
sína. Blaðamenn kveðja. BÞ
Gústav Magnús 'Ásbjörnsson.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur